Heilbrigðisskýrslur - 02.12.1974, Blaðsíða 33
6.0 SKIL
Hér að framan hefur verið lýst framkvæmd og niðurstöðum könn-
unar. Tilgangurinn var að afla upplýsinga um heilbrigðis-
þjónustu utan sjúkrahúsa á landsbyggðinni í því skyni að auð-
velda rannsóknir, áætlunargerð og stjórnun á sviði heilsugæslu.
Gildi þeirra ályktana er dregnar verða, takmarkast af því að
könnunin náði einungis yfir vikuna 16-22. september 1974
og ber að hafa það í huga við lestur þess sem á eftir fer.
Hver íbúi á rannsóknarsvæðinu leitar læknis að jafnaði £
4.5 (miðtala) skipti á ári, þegar frá eru talin 2 af 29 heilsu-
gæslusvæðum sem könnunin náði til. Af sérstökum ástæðum, sem
gerð hefur verið grein fyrir, þótti ekki rétt að hafa þessi
tvö svæði með í útreikningum á læknissókn. Meðallæknissókn
á íbúa á 17 heilsugæslusvæðum var 3.2 -5.8 samskipti á ári,
6.1-7.6 á 4 svæðum og 2.3-3.1 á 6 svæðum. Ekkl virðist munur
á læknissókn eftir gerð heilsugæslustöðva en á hinn bóginn
reyndist mikill munur á lseknissókn á einstökum heilsugæslusvæð-
um. Þessi atriði og önnur, er hugsanlega hafa áhrif á eftir-
spurn eftir læknisþjónustu, s.s. stærð svæðis, þéttbýlisstig,
staðsetning heilsugæslustöðvar, samgöngur og aldursskipting
íbúa, þarfnast þó frekari rannsóknar. Þá þarf að meta nánar
áhrif árstíðabundinna sveiflna í samskiptum íbúa við heilsu-
gæslu á áætlun læknissóknar.
Samanburður á læknissókn við innlendar og erlendar kannanir,
t.d. (8), (9) og (1), (2), leiðir í ljós að meðallæknissókn
er í þessum könnunum á bilinu 3.0 -5.6 samskipti á íbúa að
meðaltali yfir árið. Læknissókn í Reykjavík er verulega meiri
en á landsbyggðinni. Einnig er munur á hlutfalli samskiptateg-
unda og íbúatölu eða fjölda í sjúkrasamlagi á lækni. I töflu
16 er birtur samanburður á hlutfalli samskiptategunda. 1 töflu
15 er gerður samanburður við Reykjavík og tvær erlendar við-