Fréttablaðið - 09.12.2022, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 09.12.2022, Blaðsíða 46
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Auður Húnfjörð audur@ frettabladid.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrir@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolbeinn@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is Sérkennilegur klæðnaður Íslendinga erlendis Lopapeys- an þykir benda sterklega til þess að Íslendingur sé á ferð. Álfgrímur Aðalsteinsson birti myndir af sér í yngri og jólalegri útgáfu samhliða til- kynningu um útgáfu Hátíðar í hjarta. Lagið er á Spotify. ninarichter@frettabladid.is Álfgrímur  Aðalsteinsson, lista- maður og áhrifavaldur á TikTok, hefur sent frá sér nýtt frumsamið jólalag í annað sinn á þessu misseri. Lagið heitir Hátíð í hjarta og er hug- ljúf ballaða. Hann svarar nokkrum jólalegum spurningum af þessu til- efni og minnir á að jólin þurfa ekki að vera fullkomin. Álfgrímur syngur lagið og fær til liðs við sig fjölda hljóðfæraleikara. Hann samdi lagið við texta föður síns Aðalsteins Ásbergs Sigurðssonar. Álfgrímur, eru f leiri jólalög á leiðinni? „Ekki árinu sem er að líða því miður en með þessu áframhaldi verður maður kannski kominn með heila jólaplötu eftir einhvern tíma.“ Ertu mikið jólabarn? „Ég var mikið jólabarn. Sérstak- lega þegar ég var á þeim aldri þar sem hver einasti maður sem vissi af tilvist manns gaf manni jólagjöf. Núna er ég í þessu skrítna millibils- ástandi þar sem ég er ekki lengur barn og það eru engin börn í nán- ustu fjölskyldunni, en þá er um að gera að skapa nýjar hefðir!“ Hvað er það hátíðlegasta á jólum? „Sparistellið sem má ekki snerta nema um hátíðirnar.“ Hver er besti jólamaturinn? „Klárlega hangikjötið! Það er eini alvöru jólamaturinn.“ Hvaða jólasiði heldur þú fast í? „Að hlusta á jólaplötu Borgar- dætra á repeat og að drekka heitt súkkulaði að morgni jóladags.“ Hvað er efst á jólaóska- listanum? „Um daginn datt mér í hug að DNA-próf hjá Íslenskri erfðagreiningu gæti verið frumleg og skemmtileg jólagjöf. Annars eru kerti og spil auðvitað alltaf klassík.“ Hvað gefur þú mörg- um jólagjöf? „Ég gef fjölskyldunni minni gjafir og mínum nánustu vinum. Kannski í kringum tíu manns.“ Hvað þurfa allir að hafa í huga á aðventunni? „Að jólin geta verið jafn erf- iður tími fyrir marga eins og hann getur verið góður fyrir aðra. Jólin þurfa líka ekki að vera full- komin.“ n Jólabarn í leit að nýjum hefðum Klæðnaður oftast nefndur 1. Flest atkvæði hlaut klæðn- aður frá útivistarmerkinu 66°Norður. 2. Íslenska lopapeysan. 3. Svört föt, „ekknaher Ís- lands“. 4. Flíspeysur, „oft með nafni fyrrverandi vinnuveitanda“. 5. Inniskór með sokkum. 6. Primaloft-úlpur. 7. Svartar, þykkar leggings. „Oft við fínan kjól eða hælaskó.“ 8. Michael Kors-töskur. 9. Fatnaður úr Geysi. 10. Buff. Niðurstöður óformlegrar könnunar á samfélagsmiðlum benda til þess að sá fatnaður sem helst kemur upp um þjóð- erni Íslendinga í útlöndum sé svartur klæðnaður í bland við flíkur frá íslenska útivistar- fyrirtækinu 66°Norður. ninarichter@frettabladid.is Landsmenn kannast við tilfinn- inguna sem skapast á ferðalögum erlendis þegar Íslendingar mæta óvænt öðrum Íslendingum, ef til vill þar sem mannmergð er mikil eða utan helstu ferðamannastaða. Þetta skapar gjarnan undarlegt andrúms- loft og sér í lagi í aðdraganda þess sem ý mist er algjör hundsun eða eitt hressi- leg t : „G óða n daginn, eruð þið Íslending- ar?“ Það er f leira en tungumálið sem einkennir Íslendinga á ferð, og samkvæmt óformlegri könnun á Twitter, þar sem tugir svara bárust, mynduðust ákveðnar línur í þeim klæðnaði sem Íslendingar telja ein- kenna samlanda sína á ferðalagi erlendis. n Íslendingur sem bjó á Spáni fullyrti að Íslendingar væru eina þjóðin sem léti sjá sig í sokkum með sandölum. Einn notandi komst svo að orði að íslenskar konur væru svo gjarnan í svörtu að tala mætti um „íslenska ekknaherinn“ þegar landinn ferðaðist er- lendis. 1 Gættu þinna handa Yrsa Sigurðardóttir 3 7 9 8 10 6 3 Metsölulisti Vikuna 30. nóvember - 06. desember 5 Reykjavík glæpasaga Ragnar Jónasson Katrín Jakobsdóttir Játning Ólafur Jóhann Ólafsson Eden Auður Ava Ólafsdóttir Yule Lads Brian Pilkington Kyrrþey Arnaldur Indriðason Amma Glæpon Enn á ferð David Walliams Hamingja þessa heims Sigríður Hagalín Keltar Þorvaldur Friðriksson Bannað að ljúga Gunnar Helgason 2 22 Lífið 9. desember 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.