Fréttablaðið - 09.12.2022, Blaðsíða 42
Brotin er í alla staði
mjög vel heppnuð
glæpasaga. Jón Atli hóf
feril sinn sem leikrita-
skáld og því eru per-
sónurnar sérstaklega
vel skrifaðar og trú-
verðugar.
Brynhildur Björnsdót tir
Það var algjört grín að
halda þessu leyndu.
BÆKUR
Brotin
Jón Atli Jónasson
Útgefandi: JPV
Fjöldi síðna: 327
Brynhildur Björnsdóttir
Jóni Atla Jónassyni eru lögreglu-
konur og börn nokkuð hugleikin
þessi árin. Í skáldsögunni Andnauð
sem kom út á Storytel í sumar er
lögreglukona sem leggur ýmislegt
í sölurnar til að eignast barn og
einnig skrifaði hann fyrir nokkrum
árum nokkra þætti í finnskri sjón-
varpsþáttaseríu um lögreglukonu
sem átti fatlað barn sem hafði áhrif
á líf hennar og störf.
Hvatvís og hnífskörp
Í glæpasögunni Brotin er lögreglu-
konan Dóra í forgrunni en hún lifir
með því að hafa fengið voðaskot í
höfuðið við skyldustörf sem hafði
þau áhrif á heilann að breyta per-
sónuleika hennar, losa um hömlur
og hvatvísi og skerpa athyglis-
gáfuna. Þessi breyting gerir Dóru
í senn af burða góða í sínu fagi þar
sem hún sér hlutina ekki eins og
aðrir og kemur því oft auga á það
sem öðrum yfirsést, en einnig full-
komlega ófæra um að sinna starf-
inu þar sem hún hefur ekki stjórn á
hvatvísi sinni og hnífskarpri tungu.
Vinnufélagi hennar Rado á ekki
síður áhugaverða baksögu, allt frá
því að koma til Íslands sem barn á
f lótta undan Bosníustríðinu að því
að vera tengdur inn í helstu glæpa-
gengi landsins. Saman fá þau það
verkefni að finna stálpið Morgan
sem hverfur úr skólaferðalagi á
Þingvöllum en sagan fer svo um
víðan völl innlendra gengjastríða
og alþjóðlegra stórglæpamanna
sem svífast einskis.
Vel heppnuð glæpasaga
Brotin er í alla staði mjög vel
heppnuð glæpasaga. Jón Atli hóf
feril sinn sem leikritaskáld og því
eru persónurnar sérstaklega vel
skrifaðar og trúverðugar í framand-
leika sínum og plottið er þykkt og
safaríkt með ólíkum þráðum sem
að lokum bindast vel og rækilega
saman.
Lýsingarnar á undirheimum
Reykjavíkur eru óþægilega trú-
verðugar og innsýnin í átök milli
glæpagengja og hvernig lögreglan
skipuleggur rassíur er áhugaverð
og spennandi, ekki síst núna þegar
raunveruleiki slíks færist sífellt nær
hinum almenna borgara. Lýsingar
á slagsmálum og líkamsmeiðingum
verða kannski full langdregnar,
alla vega fyrir lesanda sem hefur
ekki mikla þolinmæði fyrir slíku í
myndmiðlun heldur, en virka samt
til að gefa atburðum trúverðugan
blæ.
Jón Atli hefur unnið við skriftir á
sjónvarpsþáttum, bæði hér heima
og erlendis, árum saman og það er
mjög auðvelt að sjá fyrir sér hvern-
ig Brotin gæti orðið að sjónvarps-
seríu. Og helst nokkrum þar sem
persónur Dóru og Rado eiga heil-
mikið inni. n
NIÐURSTAÐA: Vel heppnuð
glæpasaga, áhugaverð persónu-
sköpun og flétta sem gengur vel
upp.
Brotin: Fyrsta sería
tsh@frettabladid.is
Ásmundarsalur stendur að tveimur
Bókakokteilum í salnum í samvinnu
við rithöfundana Ragnar Jónasson
og Sverri Norland. Fyrra kokteil-
kvöldið fór fram í gær en það seinna
verður haldið í kvöld klukkan 20.00.
Þar mun gestum bjóðast tækifæri til
að smakka eftirlætiskokteil uppá-
haldshöfundar síns og spjalla við
höfundinn um leið.
Tólf rithöfundar taka þátt í dag-
skránni og hafa valið sér eftirlætis
drykk og verða sex þeirra á staðnum
til að skála við lesendur sína hvort
kvöld. Á staðnum verður barþjónn-
inn Marshall Williams frá Reykja-
vík Roasters sem blandar drykki
höfundanna. Glæsilegur nýr kok-
teilseðill hannaður af Lilju Cardew
verður til sýnis. Þá munu listakon-
urnar Salka Rósinkranz og Tóta
Kolbeins einnig prenta bókamerki á
staðnum sem eru tilvalin til að læða
inn í prentaðar jólagjafir.
Bækur höfundanna verða auk
þess til sölu og hægt að fá áritanir.
Að sögn skipuleggjenda er þó aðal-
atriðið einfaldlega að hittast og hafa
gaman, skiptast á hugmyndum og
spjalla um bækur yfir góðum drykk.
Aðgangur er ókeypis og allir eru
velkomnir, höfundar jafnt sem les-
endur.
Rithöfundarnir sem koma fram á
Bókakokteil í Ásmundarsal í kvöld
eru Jón Kalman Stefánsson, Katrín
Jakobsdóttir, María Elísabet Braga-
dóttir, Sigríður Hagalín Björns-
dóttir, Sverrir Norland og Pedro
Gunnlaugur Garcia. n
Rithöfundakokteill í Ásmundarsal
Listamaðurinn Hildigunnur
Birgisdóttir fer á sextugasta
Feneyjatvíæringinn 2024 fyrir
Íslands hönd. Hún segir valið
hafa komið sér í opna skjöldu
en kveðst þegar vera byrjuð
að undirbúa sig.
tsh@frettabladid.is
Hildigunnur Birgisdóttir útskrifað-
ist frá Listaháskóla Íslands 2003
og hefur verið virk í sýningarhaldi
í tæpa tvo áratugi. Hún segir þó
fregnirnar um Feneyjatvíæringinn
hafa komið sér í opna skjöldu.
„Það var náttúrlega bara pínu
óraunverulegt að heyra af þessu. Ég
var afar þakklát, átti náttúrlega ekki
von á þessu þar sem það var ekk-
ert opið kall og ég var ekkert búin
að sækjast eftir þessu. Ég var bara
ógeðslega upp með mér,“ segir hún.
Hvenær fékkstu að vita að þú
hefðir verið valin?
„Það var í maí. Það var algjört
grín að halda þessu leyndu. Ég gat
sagt manninum mínum og dóttur
minni og þau voru ekki alveg með á
hreinu hvað þetta væri. Það var gott
að komast á jörðina hjá þeim eftir að
hafa öskrað úti í bíl. Er þetta mikið
vesen? var spurningin sem ég fékk,“
segir Hildigunnur og hlær.
Oft að fást við sömu hlutina
Hildigunnur segist oft hafa heimsótt
tvíæringinn og er því vel kunnug
þessum heimsþekkta listviðburði.
„Þetta er bara eitthvað sem mynd-
listarmenn gera. Þetta er svona hálf-
gerð uppskera á tveggja ára fresti.“
Með list sinni skoðar Hildigunnur
gjarnan afurðir mannaldarinnar og
neyslusamfélagsins og spyr spurn-
inga um fegurð, notagildi og sam-
hengi hlutanna. Hún segist strax
vera byrjuð að pæla í því hvers konar
verk hún muni sýna á tvíæringnum.
„Ég er oft að fást við sömu hlutina
en þeir koma fram í mjög breyti-
legum birtingarmyndum hjá mér, ég
vinn ekki í einn miðil eða á einn hátt
í einhverju heildarkonsepti eða svo-
leiðis. Mér þótti einmitt mjög vænt
um að vera valin en þurfa ekki að
fara í gegnum inntökuferli, af því þá
er ég frjáls undan tiltekinni heildar-
hugmynd og get haldið áfram með
það sem ég er nú þegar að gera.“
Risastórt samhengi
Hildigunnur gerir ráð fyrir að hún
muni sýna mörg verk á tvíæringn-
um en ekki eitt stórt.
„Verk taka auðvitað alltaf mið af
aðstæðum. Þetta verður bara sýning
á mínum verkum. Þannig að það er
það sem ég er að fara að gera, ég held
bara áfram með verkin mín og þau
fá kannski svolítið meira súrefni
núna og fá að dafna,“ segir hún.
Þannig þú þarft þá kannski ekkert
að hugsa þessa sýningu öðruvísi en
vanalega?
„Nei, ekki bara nema að hver
einasta sýning er náttúrlega öðru-
vísi af því það er alltaf annað sam-
hengi. Þetta er náttúrlega risastórt
samhengi sögulega séð í gömlum
iðnaðarbyggingum.“
Sigurður Guðjónsson var fulltrúi
Íslands á Feneyjatvíæringnum í ár
og var sýningarrýmið nú í fyrsta
sinn í gömlu skipasmíðastöðinni
Arsenale. Hildigunnur gerir ráð
fyrir að hún muni einnig sýna þar.
Framleiðum umframefni
Þú vinnur gjarnan með fundna hluti
úr nærumhverfi. Muntu halda því
áfram á tvíæringnum?
„Það verður alveg örugglega
einhver fundinn hlutur, ég er
náttúrlega alltaf heilluð af verkum
mannanna. Við erum að framleiða
umframefni á hverjum degi. Neyslu-
samfélagið er í óðaönn að framleiða
efni fyrir næsta tvíæring.“
Spurð um hvaða hlutverki henni
finnist listin gegna gagnvart neyslu-
samfélaginu segir Hildigunnur:
„Þetta er allt hluti af sömu orma-
gryfjunni sem við mannkynið erum
búin að koma okkur í, listin er að
sjálfsögðu ekkert undanskilin henni
og ekki ég heldur. Þannig að mín
afstaða hlýtur að eiga sér stað inni
í miðri hringiðu þess. Ég er svo sem
ekkert að fjalla um málið úr vernd-
uðu umhverfi rannsóknarstofunnar
heldur er ég bara inni í skrímslinu
að reyna að henda reiður á þessum
óskapnaði og er hluti af þessu kerfi
á sama tíma.“
Stór sýning á ferlinum
Heldurðu að þetta verði stór stökk-
pallur fyrir þig sem listamann?
„Ég held að það geti alveg verið.
Þetta er alla vega alltaf stór sýning í
ferli listamanns. Þetta er gott tæki-
færi fyrir listamann til að þroskast,
taka stöðuna og jafnvel hleypa sér
eitthvert sem maður hefði ekki
áður farið. Það er náttúrlega alveg
of boðslegt magn af sýningum og
listamönnum sem eru þarna þannig
að þetta er líka bara mikil ofgnótt og
mikil veisla. En það yrði skemmti-
legt ef einhver þeirra hundruð þús-
unda sem fara þarna í gegn myndi
kveikja á listinni manns og finna
samhljóm með henni og einhverju
innra með sér.“ n
Allt sama ormagryfjan
Ragnar Jónasson og Sverrir Norland skipulögðu kokteilinn. MYND/AÐSEND
Hildigunnur Birgisdóttir listamaður á vinnustofu sinni úti á Granda. Hún er
þegar byrjuð að undirbúa sig fyrir Feneyjatvíæringinn. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Eyjólfur Kristjánsson og Einar Örn
Jónsson djamma saman inn í helgina
ásamt góðum gestum.
Hreimur Örn Heimisson er gestur þáttarins.
Léttöl
Í KVÖLD KL. 20.00
18 Menning 9. desember 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 9. desember 2022 FÖSTUDAGUR