Fréttablaðið - 09.12.2022, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 09.12.2022, Blaðsíða 20
Hörður Magnússon, fótbolta- lýsandi með meiru, er mikill bókaormur og veit fátt betra en að taka sér góða bók í hönd og lesa í frítíma sínum. gummih@frettabladid.is Sem endranær á þessum árstíma er úrvalið af bókum mikið og spurður hvaða bók eða bækur hann myndi helst vilja fá í jólapakka sinn um þessi jól segir Hörður: „Sú fyrsta sem kemur upp í huga minn er Reykjavík glæpasaga eftir Ragnar Jónasson og Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra. Það er spennandi bók sem mig langar klárlega að lesa. Ég hef haldið mikið upp á Ragnar í gegnum tíðina og ég væri alveg til í að fá þessa bók í jólagjöf.“ Hörður segist hafa lesið nokkrar af glæpasögum Ragnars. „Ragnar er eftirlætis höfundurinn minn og svo hef ég mikið dálæti á Arnaldi Indriðasyni og hef lesið töluvert eftir Einar Kárason. Ég hef gaman af hans nálgun. Bækur eftir Einar Má Guð- mundsson hafa einnig heillað mig en við eigum marga mjög góða íslenska rithöfunda. Það eru ekki bara glæpasögur sem ná til mín heldur líka bækur um mannlegt eðli og þá kemur Arnaldur sterkur inn,“ segir Hörður, sem vonar innilega að einhverjar bækur leynist í þeim jólapökkum sem hann kemur til með að fá. „Ég hef fengið bók í jólagjöf frá mömmu og pabba í mörg ár og mér finnst það virkilega notalegt að geta gripið í bókina um jólin. Ég er mikill áhugamaður um bækur og ég vona að bókin haldi stöðu sinni. Ég reyni líka yfirleitt að horfa á sjónvarpsþátt Egils Helgasonar, Kiljuna, en það fer svolítið eftir því hvaða bækur mann langar í og myndar sér skoðanir um. Kiljan hefur haft áhrif á mig varðandi það,“ segir Hörður, sem segist yfirleitt gefa bækur í jólagjöf. „Mér finnst bókin vera dýrmæt gjöf og góð bók getur gefið fólki ansi mikið.“ Sem fyrrverandi fótboltamaður og íþróttafréttamaður til margra ára er ekki úr vegi að spyrja hann hvort íþróttabækur höfði ekki til hans. „Ég hef í mörg ár haft bókina Íslensk knattspyrna eftir Víði Sigurðsson mér til yndisauka og þá sérstaklega þegar ég var að spila sjálfur. Ég hef kannski lesið hana minna í seinni tíð en ég reyni alltaf að fletta í gegnum hana. Mér finnst alveg magnað hversu duglegur Víðir hefur verið í að koma þessum bókum út ár eftir ár og ég ber mikla virðingu fyrir því. Þessar bækur hans eru heimildir til eilífðar og eru bara biblía fótboltaáhugamanns- ins,“ segir Hörður. Hef aldrei lagt í það Hefur aldrei hvarflað að þér að skrifa sjálfur bók? „Jú, það hefur alveg gert það en ég hef aldrei lagt í það. Ef við tölum út frá íþróttasjónarmiðum þá hef ég lesið margar frábærar bækur á ensku um ýmiss konar efni íþrótta- eðlis. Mér finnast svona bækur vanta hér heima. Þá er ég ekki að tala upp einhverja upptalningu á úrslitum heldur viðburði sem hægt er að vinna út frá og gera spenn- andi. Ég las til að mynda frábæra bók fyrir nokkrum árum um 100 metra hlaupið á Ólympíuleikunum í Seúl árið 1988 þegar Carl Lewis og Ben Johnson áttust við. Það var hægt að búa til spennandi bók um þennan viðburð og ég vil bara hvetja íslenska rithöfunda til að skoða þetta,“ segir Hörður. Spurður hvort hann hafi verið beðinn um að skrifa bók segir hann: „Nei, en hins vegar þegar ég var að vinna hjá Stöð 2 Sport skrif- aði ég tvo pistla fyrir Víði í Íslenska knattspyrnu að hans beiðni. Maður hættir sér ekkert inn á þennan ritvöll nema að vera með hundrað prósent sjálfstraust í það. Þetta er grimmur heimur og maður vill ekki vera að fara í eitthvað sem maður er ekki alveg klár í,“ segir Hörður, sem svo sannarlega hefur slegið í gegn í lýsingum RÚV á HM og hann mun lýsa stórleik Englendinga og Frakka í 8-liða úrslitunum annað kvöld. „Það er búið að vera virkilega gaman að taka þátt í þessu verkefni með frábærum hópi og þetta hefur gefið mér mikið. Mótið hefur líka verið stór- skemmtilegt,“ segir Hörður, sem starfar sem lýsandi fyrir Viaplay en var „lánaður“ til RÚV fyrir HM- verkefnið. n Þetta er grimmur heimur  Eftirlætis rithöf- undur Harðar er Ragnar Jónas- son. FRÉTTABLAÐIÐ/ SIGTRYGGUR ARI 4 kynningarblað 9. desember 2022 FÖSTUDAGURBÓK AJÓL

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.