Fréttablaðið - 09.12.2022, Blaðsíða 24
Okkur þykir mikil-
vægt að allir krakk-
ar viti af okkur, að þau
viti að bókasafnið sé
opið öllum og að þau séu
alltaf velkomin.
Eydís Stefanía Kristjánsdóttir
„Nú má hafa gaman á bókasöfnum,“ segir Eydís Stefanía Kristjánsdóttir barnabókavörður. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
Eydís Stefanía Kristjánsdótt-
ir barnabókavörður tekur
daglega á móti börnum í
starfi sínu hjá Amtsbóka-
safninu á Akureyri. Hún
segir mikilvægt að börnin
viti að þau eru alltaf vel-
komin á bókasafnið.
starri@frettabladid.is
Það er mjög gefandi að starfa á
bókasöfnum, ekki síst þegar hluti
starfsins snýst um að taka á móti
börnum og kynna fyrir þeim
dásemdir bókanna, segir Eydís
Stefanía Kristjánsdóttir, barna-
bókavörður á Amtsbókasafninu á
Akureyri, en þar hefur hún starfað
síðan í ágúst í fyrra.
„Mér finnst langskemmtilegast
að spjalla við krakkana, lesa fyrir
þau og sýna þeim alla króka og
kima bókasafnsins. Það er frábært
þegar ég næ að kveikja hjá þeim
áhuga á lestri og á bókasafninu
almennt. Okkur þykir mikilvægt
að allir krakkar viti af okkur, að
þau viti að bókasafnið sé opið
öllum og að þau séu alltaf vel-
komin. Allir sem hafa lögheimili
á Akureyri fá hjá okkur frítt bóka-
safnskort og allt okkar efni lánast
án endurgjalds.“
Liður í því að láta bæjarbúa vita
af safninu er að bjóða skólahópum
reglulega í heimsókn þar sem
krakkarnir fá fræðslu um safnið
og mikilvægi lesturs. „Einnig er ég
oft með upplestur eða við fáum
til okkar vinsæla rithöfunda til
þess að lesa upp úr bókum sínum
eða vera með ritlistasmiðju. Það
þykir okkur góð leið til þess að
vekja áhuga og forvitni krakka um
bækur, lestur og sögugerð.“
Bókasöfnin hafa breyst mikið
Starfsemi bókasafna hefur tekið
miklum breytingum á undanförn-
um 10 til 20 árum og eru þau ekki
lengur bara safn fullt af bókum þar
sem alltaf þarf að hafa hljótt, segir
Eydís. „Nú má hafa gaman á bóka-
söfnum. Við á Amtsbókasafninu
erum til dæmis ekki bara að lána
út bækur heldur einnig borðspil,
kökuform og annan óhefðbundinn
safnkost. Við erum einnig með
alls konar viðburði á safninu. Alla
fimmtudaga yfir vetrartímann er
sögustund og föndur þar sem ég
les fyrir börnin og við föndrum og
höfum gaman saman. Einnig erum
við með spilaklúbba bæði fyrir
börn og fullorðna, íslenskuklúbb,
handavinnuklúbb og margt fleira.
Á safnið eru allir velkomnir og
við kappkostum að bjóða upp á
notalegt umhverfi og góða þjón-
ustu. Með fjölbreyttum safnkosti,
alls konar viðburðum og klúbbum
vonumst við til þess að ná til sem
flestra hópa samfélagsins.“
Spennandi ungir höfundar
Hún segir marga flotta unga
rithöfunda vera að gefa út nýjar
bækur um þessar mundir. „Ég tek
sérstaklega eftir því í barnabók-
unum sem mér finnst frábært. Það
er greinilega mikill áhugi á því að
skrifa bækur fyrir börn. Þá er það
bara undir okkur fullorðna fólkinu
komið að fá börnin til þess að
lesa þessar flottu bækur. Að mínu
mati er eitt sem rithöfundar þurfa
að hafa í huga þegar kemur að
því að skrifa bækur fyrir börn og
unglinga og það er að bókarkápan
selur oftar en ekki bókina. Krakkar
í dag eru ekki mikið að lesa aftan
á bækurnar til þess að fræðast um
innihald bókarinnar heldur grípa
oftast bókina sem fyrst fangar
augu þeirra.“
Það eru nokkrir höfundar sem
hafa fest sig vel í sessi hjá ungu
kynslóðinni að sögn Eydísar og
nefnir sem dæmi þau Gunnar
Helgason, Ævar Þór Benediktsson,
Bjarna Fritz og Birgittu Haukdal.
„En eins og ég segi eru margir nýir
og flottir höfundar að skjóta upp
kollinum og munu vonandi festa
sig vel í sessi hjá komandi kyn-
slóðum. Af þeim má meðal annars
nefna Rebekku Sif Stefánsdóttur,
Lóu Hlín Hjálmtýsdóttur og auð-
vitað marga fleiri.“
Tekur tarnir í lestri
Bókaáhuginn hefur fylgt Eydísi frá
því hún var smástelpa. „Á full-
orðinsárum tek ég tarnir þar sem
ég les og les hverja bókina á fætur
annarri en dett svo úr lestrarstuði
inni á milli. Ég les nánast hvað sem
er, allt frá morðsögum eftir Yrsu,
Ragnar og Stefán Mána til róman-
tískra bóka eftir Jenny Colgan og
Söruh Morgan. Mér finnst hins
vegar ekki gaman að lesa bækur
þar sem fyrir kemur eitthvað yfir-
náttúrulegt. Mér finnst gott að geta
lifað mig inn í söguna, geta mátað
mig við hana og ímyndað mér
hana í raunveruleikanum. Ég næ
því ekki alveg þegar ég les um eitt-
hvað sem ég trúi ekki á. En það er
bara ég og sem betur fer erum við
misjöfn. Svo les ég auðvitað líka
eina og eina barna- og unglinga-
bók. Bæði fyrir börnin mín og mig
sjálfa en það er gott að geta mælt
með einhverri bók þegar krakkana
vantar hugmyndir að lesefni.“ n
Kynnir króka og kima bókasafnsins
8 kynningarblað 9. desember 2022 FÖSTUDAGURBÓK AJÓL
Jólablað
Nettó
Allt fyrir
jólin á
einum stað
Skoðaðu
blaðið á
netto.is
Skannaðu QR
kóðann og fáðu
blaðið í símann