Fréttablaðið - 09.12.2022, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 09.12.2022, Blaðsíða 1
Ég held að það megi búast við breytingum á fiskveiðistofnum umhverfis Ísland, fækkun tegunda. Katherine Richardson, prófessor við Kaupmanna- hafnarháskóla 2 6 8 . T Ö L U B L A Ð 2 2 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s F Ö S T U D A G U R 9 . D E S E M B E R 2 0 2 2 Enn hópur sem sendir jólakort Hildigunnur fer á tvíæringinn Tímamót ➤ 12 Menning ➤ 18 Fæst einnig fjórhjóladrifinn Laugavegi 174, 105 Rvk. www.hekla.is/skodasalur Škoda Enyaq Coupé RS iV. Sportlegur og alrafmagnaður Fordæmalausar breytingar í hafinu umhverfis landið. Pró- fessor telur að þorskurinn gæti skaðast, möguleg tækifæri í makríl og sardínum. bth@frettabladid.is UMHVERFISMÁL „Ég held að það megi búast við breytingum á fiskveiði- stofnum umhverfis Ísland, fækkun tegunda, til dæmis þorsks sem vill vera í köldu vatni, og aukningu teg- unda sem lifa í hlýrra vatni, til dæmis gæti makríll aukist eða sardínur,“ segir Katherine Richardson, prófess- or í haffræði við Kaupmannahafnar- háskóla og stjórnandi ROCS. Nýjar rannsóknir sýna að áður óþekktar breytingar eiga sér nú stað í hafinu umhverfis Ísland. Katherine tekur fram að forsendur skorti til að alhæfa um hvernig breytingar á umhverfi hafi áhrif á fiskistofna. ROCS stendur fyrir rannsókna- setur Margrétar Danadrottningar og Vigdísar Finnbogadóttur um haf, loftslag og samfélag og nýtur stuðnings íslenska ríkisins, Rannís og Carlsberg-sjóðsins. Meðal rannsókna sem unnar hafa verið í dansk-íslenskri samvinnu eru borkjarnasýni sem tekin voru í fyrra á Reykjanesgrunni á skipi Hafrann- sóknastofnunar. Þessa dagana er verið að kynna niðurstöður á ráð- stefnu í Reykholti. Katherine segir að skeið umbreyt- inga eigi sér stað í hafinu umhverfis Ísland. Núverandi líkön geri ráð fyrir fækkun þörunga, eða minni frum- framleiðslu í sjónum. Þörungar séu lykillífverur í framleiðslu á súrefni og undirstaða lífkeðjunnar í hafinu. Rannsóknir ROCS sýni fram á aukn- ingu þeirra. „Við erum að ganga inn í nýtt tímabil hvað varðar lífríki sjávar, þar með taldar fiskveiðar,“ segir Kather- ine og bætir við að þeir sem stundi sjávarútveg þurfi að vera meðvitaðir um þessar breytingar. Daði Már Kristófersson, prófess- or í hagfræði við Háskóla Íslands, segir margt á huldu um vistkerfið umhverfis Ísland. Furðu sæti að Íslendingar hafi ekki rannsakað vist- kerfi hafsins meir en raunin sé í ljósi mikilli hagsmuna. Vísbendingar séu samkvæmt rannsóknum um að útbreiðslu- munstur loðnu sé að breytast. Loðna sé kaldsjávarfiskur og mikilvæg þorskinum sem fæðutegund. n Þorskstofninn í hættu vegna loftslagsbreytinga HÚSNÆÐISMÁL Fólki sem neyðist til að sofa í bílum vegna húsnæðiseklu hefur fjölgað upp á síðkastið. Þetta segir Vilborg Oddsdóttir, félagsráðgjafi hjá Hjálparstarfi kirkjunnar. „Ég hef hitt fólk sem segist velja að gista í hjólhýsi en það vill enginn gista í bílnum sínum.“ Fátækir og húsnæðislausir leita í vaxandi mæli í hlýju á daginn, gjarnan í opinberu húsnæði, á bóka- söfn, inn í sundlaugar, verslanir eða slíka staði. Vaxandi örvænting er meðal fólks á leigumarkaði vegna hækkana að sögn Vilborgar. SJÁ SÍÐU 6 Fleiri í húsnæðisvanda sofa nú í bílum Máninn hátt á himni skín yfir höfðum þeirra sem vinna að framkvæmdum við nýbyggingu Landspítalans við Hring- braut. Glottir tungl og hrín þótt engin sé hrönnin enn. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.