Fréttablaðið - 09.12.2022, Blaðsíða 2
Æ oftar þurfa einstakl-
ingar frá að hverfa
vegna mikillar eftir-
spurnar í bílnum.
Marín Þórs-
dóttir, deildar-
stjóri hjá Rauða
krossinum
Klippt fyrir tvöföldun
Nýr Vesturlandsvegur í gegn um Mosfellsbæ var formlega tekinn í notkun í gær af Sigurði Inga Jóhannssyni innviðaráðherra sem klippti á borða við athöfnina
ásamt öðrum. Um er að ræða tvo áfanga, samtals tæplega tvo kílómetra frá Skarhólabraut að Reykjavegi. Með Sigurði Inga voru Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri
Vegagerðarinnar, Davíð Þorláksson, framkvæmdastjóri Betri samgangna og Regína Ásvaldsdóttir, bæjarstjóri Mosfellsbæjar. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Frá því að neyslurýmið Ylja
tók til starfa í mars hafa verið
skráðar þúsund heimsóknir.
Deildarstjóri verkefnisins
segir bílinn sem rýmið er í
ekki duga til og að allt of oft
þurfi fólk að hverfa frá.
lovisa@frettabladid.is
HEILBRIGÐISMÁL Frá því að neyslu-
rýmið Ylja tók til starfa í mars hafa
um hundrað einstaklingar heimsótt
það um þúsund sinnum.
„Nóvember markaði ákveðin
tímamót í Ylju en þá var þúsundasta
heimsóknin skráð í neyslurýmið,“
segir Marín Þórsdóttir, deildarstjóri
verkefnisins hjá Rauða krossinum,
en hann rekur rýmið.
Ylja er opin virka daga á milli
klukkan 10 og 16 og eru 30 prósent
gesta konur en 70 prósent karlar.
„Úrræði sem opin eru fyrir heim-
ilislausa á daginn eru af skornum
skammti. Kirkjan rekur Skjól fyrir
konur og teljum við það vera helstu
ástæðu þess að þær nýti sér Ylju
síður en karlar,“ segir Marín.
Hins vegar séu engin úrræði fyrir
karla sem opin eru á daginn.
„Neyðarskýlum borgarinnar er
lokað klukkan tíu á morgnana og
eru ekki opnuð aftur fyrir en fimm
seinnipartinn,“ segir Marín en þau
sem koma í Ylju fá einnig hlý föt yfir
köldustu mánuði ársins.
„Vímuefnavandi er ekki eingöngu
félagslegur vandi heldur er hann
blanda af heilbrigðis- og félags-
legum vanda,“ segir Marín. Þeir
gestir sem sæki Ylju fái nær alltaf
sálfélagslegan stuðning við komu
sína í bílinn.
„Það er í 94 prósentum tilfella
samkvæmt tölunum sem við tókum
saman í lok september síðastliðn-
um,“ segir Marín.
Auk sálfélagslegs stuðnings er lág-
marks heilbrigðisþjónusta vegna
Þúsund heimsóknir og
neyslurýmið er sprungið
Forseti Íslands og þáverandi heilbrigðisráðherra kynntu sér neyslurýmið í bíl
Rauða krossins í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
olafur@frettabladid.is
NEYTENDUR Allt að 88 prósenta
verðmunur er á jólabókunum í ár
samkvæmt nýrri verðkönnun verð-
lagseftirlits ASÍ.
Bækurnar eru oftast ódýrastar
í Bónus og því næst í verslun For-
lagsins. Penninn-Eymundsson,
sem þjónustar bókaunnendur um
allt land allan ársins hring, er oftast
með hæsta verð.
Engar verðmerkingar var að sjá
í Nettó, en reglur Neytendastofu
kveða á um að vörur skuli verð-
merktar hvar sem þær eru til sýnis
og auðvelt eigi að vera að sjá verð og
þjónustu á sölustað.
ASÍ bendir á að verð á algengum
bókatitlum breytist ört í verslunum
á þessum árstíma. n
Mikill verðmunur
á jólabókunum
Mikill verðmunur getur verið á jóla-
bókunum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
kristinnpall@frettabladid.is
ÚKRAÍNA Um 14.500 evrur eða rúm-
lega tvær milljónir íslenskra króna
söfnuðust á góðgerðarmarkaði fyrir
utan Evrópuráðið í gær og rennur
allur ágóðinn til kaupa á rafstöð
fyrir sjúkrahúsið í Karkív.
Eliza Reid forsetafrú var heiðurs-
gestur markaðarins og opnaði hann
með ávarpi.
Um 20 þjóðir Evrópuráðsins tóku
þátt og buðu til sölu mat og ýmsan
varning frá hverju landi. Þar á
meðal var fastanefnd Íslands, sem
sá um skipulagningu markaðarins.
Á íslenska borðinu voru seldar
íslenskar bókmenntir í enskri
og franskri þýðingu. Seldar voru
bækur eftir Jón Kalman, Einar
Kárason, Auði Övu og Elizu Reid,
sem voru gefnar markaðnum og
allur ágóði rann til söfnunarinn-
ar. n
Eliza og félagar söfnuðu fyrir rafstöð
Hægt var að
nálgast bók
Elízu á íslenska
básnum.
MYND/
FORSETAEMBÆTTIÐ
sára og sýkinga veitt í bílnum auk
skaðaminnkandi ráðgjafar. Verk-
efnið er samstarfsverkefni Reykja-
víkurborgar og Rauða krossins og er
til eins árs. Marín segir þau hafa lært
mikið á þessum reynslutíma.
„Bíllinn, sem er bráðabirgðaúr-
ræði, dugar ekki til,“ segir Marín.
Einungis tveir geti nýtt sér rýmið í
einu.
„Æ oftar þurfa einstaklingar frá að
hverfa vegna mikillar eftirspurnar
í bílnum. Það reynist starfsfólki
mínu afar þungbært því í þau skipti
vita þau til þess að fólk er að nota í
ótryggum aðstæðum, berskjölduð
fyrir almenningi og hættan á of-
skömmtun stóreykst,“ segir Marín. n
2 Fréttir 9. desember 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ