Fréttablaðið - 10.12.2022, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 10.12.2022, Blaðsíða 20
Sif Sigmarsdóttir n Mín skoðun n Gunnar ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jón Þórisson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is, AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is, Lovísa Arnardóttir lovisa@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is. VEFSTJÓRI: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Guðmundur Gunnarsson ggunnars@frettabladid.is, HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Þorvaldur S. Helgason tsh@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Fyrr og síðar hafa íslenskir heildsalar haldið eftir sínum hlut, á kostnað almenn- ings, langt utan allrar sam- keppni. Svo virðist hins vegar sem á sama tíma hafi færni verslunar- eigenda á sviði verð- merkinga á tilboðs- dögum ekkert fleytt fram. Sigmundur Ernir Rúnarsson ser @frettabladid.is Árið 2000 keypti ég mér nýja skó. Það væri vart í frásögur færandi ef ekki væri fyrir þær sakir að skórnir urðu að dagblaðsfrétt. Sumarið 2000 hóf ég störf sem blaða- maður á Morgunblaðinu. Þegar ég mætti fyrsta daginn ætlaði ég að breyta heim- inum. Ég sá sjálfa mig fyrir mér hlaupa um bæinn með skjalatösku og diktafón eins og Lois Lane, með hárið blásið eins og Dolly Parton í kvikmyndinni „Nine to five“, vopnuð kúlupenna sem ég notaði til að f letta ofan af spilltum stjórnmálamönnum og siðblindum viðskiptajöfrum milli þess sem ég færi í blautan löns með ritstjór- anum. Raunveruleikinn varð annar. Fyrsta frétt mín fjallaði hvorki um pólitík né spillingu heldur ágang sílamáva á Tjörninni. Ritstjórinn bauð mér aldrei í löns heldur rölti ég daglega af skrifstofum Morgunblaðsins, sem þá voru til húsa í Kringlunni, yfir í verslunarmiðstöðina hinum megin götunnar þar sem ég keypti mér Sómasamloku með túnfisksalati í hádegismat. Einn daginn dró hins vegar óvænt til tíð- inda. Ég hafði farið ásamt samstarfskonu, sem starfaði á neytendasíðum blaðsins, á hinar daglegu samlokuveiðar. Við ákváð- um að kíkja í nokkrar búðir í leiðinni því útsölur voru að hefjast. Í skóbúð einni kom ég auga á skóna sem ég klæddist og hafði keypt í versluninni nokkrum vikum fyrr. Þeir voru komnir á útsölu og á handskrif- uðu blaði stóð að tilboðsverð væri 3.500 krónur. Upphaflegt verð var sagt hafa verið 4.900 krónur. Ég fann blóðið þjóta fram í kinnar mér. Ég hafði hnotið um spillingarmálið sem ég hafði leitað að allt sumarið. Skórnir höfðu ekki kostað 4.900 krónur þegar ég keypti þá fullu verði heldur 3.900 krónur. Verslunin hlaut að fara rangt með svo að afslátturinn virtist meiri en hann var. Við samstarfskonan hlupum uppveðraðar yfir götuna og greindum fréttastjóra frá hneykslinu, sem gaf okkur leyfi til að skoða málið nánar. Ég skaust heim og sótti kvittun sem ég átti fyrir skónum meðan samstarfskonan hringdi í verslunareigand- ann. Skórnir enduðu í blaðinu. Ekki þótti þó ástæða til að gera þá að þeirri stór- frétt sem okkur stöllum fannst tilefni til. „Fyrir mistök var ein skósendingin sett á rangt vörunúmer,“ var haft eftir verslunar- eigandanum sem fullyrti að skórnir hefðu alltaf átt að kosta 4.900 krónur. Harmað var að viðskiptavinur skyldi hafa orðið „fyrir barðinu á þessum mistökum“. Er það ekki skrýtið Í Fréttablaðinu í vikunni var sagt frá gremju neytenda yfir annmörkum á verð- merkingum í verslunum. Töluvert hefði borið á misræmi á upprunalegu verði á tilboðsdögum. Í Fésbókar-hópnum „Vertu á verði“, þar sem neytendur benda á vafa- sama viðskiptahætti, nefnir notandi dæmi um sófa í húsgagnaverslun, sem kostaði 349.990 krónur fullu verði. Þegar sófinn fór á tilboð á Svörtum föstudegi lækkaði verð hans niður í 319.992 krónur. Á verðmerk- ingu var því hins vegar haldið fram að upphaflegt verð sófans hefði verið 399.990 krónur. Í samtali við blaðamann Fréttablaðsins sagði eigandi verslunarinnar að um mannleg mistök væri að ræða. Sófinn hefði alltaf átt að kosta 399.990 krónur og hann hefði „bara verið vitlaust verðlagður“. Frá því árið 2000 hefur mannkynið kortlagt genamengi sitt, fundið upp snjall- símann, haft upp á Higgs-bóseindinni og uppgötvað vatn á tunglinu. Svo virðist hins vegar sem að á sama tíma hafi færni verslunareigenda á sviði verðmerkinga á tilboðsdögum ekkert f leytt fram. Er það ekki skrýtið? n Færni til verðmerkinga Það er ekki að spyrja að íslenska okr- inu. Og svo hefur raunar aldrei verið. En það hefur átt sér athvarf hérna í útnáranum, og þar er einmitt komin réttlætingin fyrir fésugunni, svo utan vega sem landinn er og hefur alltaf verið. En íslenska okrið hefur ekkert með fjar- lægðina frá meginlandinu að gera. Það snýst um græðgi og óheilindi. Og það sem meira er, algeran skort á samkeppni og vilja til að reka samfélag á forsendum réttlætis og sanngirni. Heildsalakerfið á Íslandi, sem hefur getið af sér ormagryfju einkaumboða af öllu tagi, er skilgetið afkvæmi af því sjálfstæði landsins sem var á sínum tíma ætlað fámennum klúbbi kaupahéðna, fremur en almenningi í landinu. Nýlenduveldið var einfaldlega yfirfært á hendur fárra útvalinna sem fengu að leika sér í peningabuddu alþýðunnar. Og þetta er vitað. Fyrr og síðar hafa íslenskir heildsalar haldið eftir sínum hlut, á kostnað almennings, langt utan allrar samkeppni. Ef einingarverðið hefur staðið í 100 krónum, hafa þeir þvingað það niður í 95 krónur, en fengið að kaupa inn varninginn á 110 krónur. Mismunurinn, fimmtán krónurnar, hafa svo alltaf verið geymdar erlendis, hjá birgjunum – og hans svo vitjað seinna meir, án þess að það hafi nokkurn tíma verið upplýst, hvað þá að nokkur einasti skattur sé greiddur af földu fénu. Og allra haganlegast hefur þetta auðvitað verið hjá þeim kærleiksríku kapítalistum sem eignast hafa einkaumboð á einhverjum útlenskum varningi, því þá er reiknikúnstin af þessu taginu slegin í gadda. Þetta er vitað. Og þetta hefur löngum verið haft í f limtingum í þröngum hópi íslenskra heildsala sem hafa komist upp með galskap- inn allt frá byrjun síðustu aldar, þegar kóngur- inn sleppti landanum lausum. Frægt er þegar forkólfar Bónuss gáfu íslenska heildsalakerfinu pungspark á sínum tíma. Og fóru að f lytja inn sjálfir, fram hjá kerfinu, altso í þágu almennings, en ekki einhverra fjöl- skyldna, útvalinna að íslenskum sið. Þá barst ramakveinið úr repúblikanaflokki lands- manna, þeirri hérlenskri hagsmunagæslu- hreyfingu sem á allt sitt undir auðmönnum, en hann hafði ekki önnur ráð en að uppnefna Bónus nógu oft svo Baugsveldið sæti eftir í hugum landsmanna. Á meginlandi Evrópu er einkaumboðskerfið ekki liðið – og hvað þá íslenska heildsalahugs- unin; að taka sitt, einmitt það lykilatriði að láta liðið borga, hvað sem það kostar. n Íslenska okrið Bir t m eð fy rir va ra um pr en tvi llu r. H eim sfe rði r á ski lja sé r r étt til le iðr étt ing a á slí ku . A th. að ve rð ge tur br ey st án fy rir va ra. 595 1000 www.heimsferdir.is Tenerife Flug aðra leið til 19.975 Flug aðra leið frá Flugsæti í janúar SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 10. desember 2022 LAUGARDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.