Fréttablaðið - 10.12.2022, Blaðsíða 72
og kunni ekki tungumálið,“
segir Arna Ósk, en lausn skólans var
að láta hana skipta um bekk.
Þegar heim til Íslands var komið,
þá á leið í fjórða bekk, hélt eineltið
áfram. „Ég gat ekki mætt í skólann
mánuðum saman,“ segir Arna Ósk
hugsi – og heldur áfram: „Mamma
og pabbi einhvern veginn reyndu að
gera allt sem í þeirra valdi stóð.“ Ein
eltið hafi ekki stoppað fyrr en hún
var komin á unglingastig.
Í ofbeldissamband
Sextán ára var Arna Ósk komin í
of beldissamband með manni sem
var tíu árum eldri. „Mér datt aldr
ei til hugar að fara,“ útskýrir Arna
Ósk og heldur áfram: „Einu sinni lét
hann mig bíða úti í bíl í heila nótt á
meðan hann skrapp inn í heimsókn
einhvers staðar. Hann sagðist koma
eftir smá en kom ekki til baka fyrr
en um morguninn. Ég sat enn þá í
bílnum og mér datt ekki einu sinni
í hug að fara. Svo skemmd var ég.“
Hún hafi verið heltekin af mann
inum.
„Síðan fékk ég nóg þegar hann
sat ofan á mér og lamdi mig ítrekað
í framan. Ég var marin og bólgin
eftir hann og fór grátandi á vídeó
leigu í Skeifunni, þar var hringt á
lögregluna,“ segir Arna Ósk. Lög
reglan hafi farið með hana heim
til foreldra hennar og mælt með að
þær mæðgur heimsæktu Kvenna
athvarfið. „Það hjálpaði mér mjög
mikið. Það var í fyrsta skipti sem ég
skildi að ofbeldi er ekki í lagi,“ segir
Arna Ósk og það augljóslega ýfir
upp gömul sár að rifja upp söguna.
„Maður fer oft í það sem maður
þekkir og ég hreinlega trúði því að
það væri bara eitthvað að mér og ég
ætti þetta allt skilið,“ segir Arna Ósk.
Í sambandinu leiddist hún út í
óreglu, „þetta er hluti af fortíðinni
sem ég er ekkert sérlega ánægð
með.“
Hluti af fortíðinni
Arna Ósk er greind með ADHD og
f lókna áfallastreituröskun og frá
sextán ára til tvítugs notaði hún
örvandi lyf til að deyfa kvíða og
vanlíðan. „Ég tengi ekkert við þessa
manneskju sem ég var þá í dag,“
segir Arna Ósk einlæg, en hún á tvö
börn og hefur fengið mikla aðstoð
til að komast á þann stað sem hún
er á í dag.
„Helst af öllu myndi ég vilja
setjast niður með þeim, segja þeim
hvernig þær létu mér líða og útskýra
fyrir þeim hvaða áhrif þetta hefur
haft á mig í öll þessi ár,“ segir Arna
Ósk og vísar til starfsmanna leik
skólans og heldur áfram: „Þær voru
fullorðnar konur og ég þriggja til
f imm ára barn sem hafði enga
rödd.“
Arna Ósk segir æskuna móta
einstaklinga hvað mest. „Þegar þú
ert barn þá ertu að læra á traust og
sjálfsmyndina. Fá veganesti út í lífið.
Þarna var verið að brjóta á og beita
lítil börn of beldi.“ Hún taldi sig
lengi vel eiga of beldi skilið og því
stígi hún mikilvægt skref núna fyrir
litlu Örnu með því að skila skömm
inni til þeirra sem hana eiga. n
Arna Ósk hefur
fengið mikla
aðstoð og er á
mun betri stað í
dag.
Fréttablaðið/
Sigtryggur ari
Mér datt
aldrei til
hugar að
fara.
Jólagjafir fyrir útivistarfólk
Fornix MIPS
kr. 29.490
Fovea Clarity
frá kr. 29.490
Zonula Clarity
frá kr. 32.990
Bakbrynjur fyrir börn
og fullorðna
frá kr. 16.490
Keppnisbúnaður
mikið úrval
POCito barnahjálmar
frá kr. 21.990
Obex MIPS
kr. 29.490
Nexal Clarity
frá kr. 34.490
POCito barnagleraugu
frá kr. 11.490
Hjóla-/útivistargleraugu
frá kr. 27.490
trollveggen down850
dúnúlpa dömu/herra
kr. 72.990
trollveggen Thermal Pro
millilag dömu/herra
kr. 28.990
pureUll ullarnærföt
dömu/herra margir litir
frá kr. 14.990
lofoten/lyngen skíðasokkar
margar gerðir/litir
frá kr. 5.990
svalbard flannelskyrta
herra margir litir
kr. 22.990
/29 ullarhúfur
margir litir
kr. 7.990
Peloton ehf • Klettagarðar 23 • www.peloton.is • 666-1199
38 Helgin 10. desember 2022 LAUGARDAGURFréttablaðið