Fréttablaðið - 10.12.2022, Blaðsíða 88
Fisker Pear
er ætlað að
vera undir
30.000
dölum
í verði.
Barónsstígur 8-24
Akureyri 24/7
Reykjanesbær 24/7
extra.is
Mario Kart Go
Bílabraut, 2 bílar
9.999
Disney Encanto
Syngjandi Mirabel
7.999
Polly Pocket
Flugvél
11.999
kr.stk.
kr.stk.
Stickle Bricks
Stór kassi með
281 kubbum
7.999 kr.stk.
kr.stk.
við komum með
til þín
Marvins Ultimate
365 Töfrabrögð
5.999 kr.stk.
Breytilegt úrval milli verslana
Jólin eru komin
í Extra
njall@frettabladid.is
Royal Enfield hefur notað nóvember-
mánuð til að frumsýna Super Meteor
mótorhjólið, en Meteor hefur hingað
til aðeins komið í eins strokks 350
rsm útgáfu. Um nýtt hjól er að ræða
með nýrri grind, afturgaffli, fjöðrun,
bensíntanki og díóðuljósum.
Super Meteor hjólið er fyrsta mót-
orhjól Royal Enfield til að nota öfuga
framdempara. Mun hjólið koma á
markað í vor, en á Íslandi eru Royal
Enfield mótorhjólin seld hjá fyrir-
tækinu Vallarbraut ehf. n
Royal Enfield frumsýnir mótorhjól
Royal Enfield
Super Meteor
er fyrsta hjól
merkisins með
öfugum fram
dempurum.
MYND/ENFIELD
Rafbílavæðingin hefur hingað
til ekki náð til jeppaflokksins
sem heitið getur, ef undanskil-
inn er Hummer rafjeppinn.
njall@frettabladid.is
Skoska frumk vöðlaf y rirtæk ið
Munro hefur frumsýnt Mk1 raf-
jeppann sem ætlað er að keppa við
Ineos Grenadier. Bíllinn var frum-
sýndur við hátíðlega athöfn í Edin-
borg en hann fær nafnið eftir öllum
fjöllum Skotlands sem fara yfir 1.000
metra hæð. Bíllinn fer í framleiðslu
strax á næsta ári og mun kosta frá
10,4 milljónum króna í fimm dyra
útfærslunni. Fyrstu eintök verða
handsmíðuð en áætlað er að opna
verksmiðju í Skotlandi sem fram-
leiða mun 2.500 eintök á ári.
Bíllinn kemur á stigagrind eins og
alvöru jeppi, er með læstum milli-
kassa og möguleika á læsingum að
framan og aftan. Einn rafmótor er
í bílnum sem sendir aflið gegnum
tveggja þrepa millikassa sem gefur
möguleika á lágu drifi. Aflið verður
295 til 375 hestöfl eftir því hvaða
mótor er valinn, og rafhlöðurnar
61 eða 81 kWst en sú minni gefur
honum um 300 km drægi. n
Munro Mk1 rafjeppinn
frumsýndur í Skotlandi
njall@frettabladid.is
Fisker hefur hafið prófanir á Pear
raf bílnum og sést hann nú fyrst
opinberlega í nýju myndbandi
frá framleiðandanum. Bíllinn er
minni en Fisker Ocean og verður
líka talsvert ódýrari, en hann
mun kosta undir 30.000 dölum.
Bíllinn verður framleiddur
af Foxconn í Ohio í verksmiðju
sem var áður í eigu General
Motors. Henrik Fisker hefur
látið hafa eftir sér að þetta
verði bíllinn sem komi Fisker
yfir milljón bíla markið árið 2027.
Framleiðsla á bílnum mun hefjast
á seinni helmingi ársins 2024 og
verður framleiðslugetan 250 þús-
und bílar á ári. n
Fisker Pear kemur fyrst fyrir sjónir
Í myndbandinu sést Fiskers Pear bíllinn við prófanir í
Kaliforníu. MYND/AUTOCAR
njall@frettabladid.is
Brough Superior frumsýndi í mán-
uðinum nýja útgáfu af Lawrence
mótorhjólinu sem kallast Dagger.
Brough Superior voru ein eftirsótt-
ustu bresku mótorhjólin á fyrri hluta
síðustu aldar og hinn frægi Arabíu-
Lawrence átti eitt slíkt sem hann
hann lét líf sitt á.
Um er að ræða mótorhjól sem er
með koltrefja-boddíhlutum og er
meira að segja bensíntankurinn
úr koltrefjum. Einnig kemur hjólið
nú með nýrri útgáfu af vélinni sem
stenst nú Euro5 mengunarstaðla.
Hjólið er mun sportlegra en fyrri
útgáfa, kannski vegna þess að það
kemur á 18 tommu felgum og nokk-
urs konar „Clip-on“ keppnisstýri.
Áfram er notast við Fior álgaffalinn
að framan og láréttan afturdempara.
Vélin er rúmlega 100 hestaf la
V2-vél. Verð á hjólinu hefur ekki
verið gefið upp en það verður í tak-
mörkuðu magni eins og öll Brough
Superior hjólin. n
Brough Superior frumsýnir Dagger
Nýja hjólið er
með sportlegu
reiserútliti og
eru allir boddí
hlutir úr kol
trefjum. MYND/
BROUGH
Kassalaga útlit Munro Mk1 minnir mikið á gamla lagið á Defender sem og
Ineos Grenadier sem hann á að keppa við. MYND/AUTO EXPRESS
BÍLAR FRÉTTABLAÐIÐ 10. desember 2022 LAUGARDAGUR