Fréttablaðið - 10.12.2022, Blaðsíða 40
Erla Þóra Bergmann Pálma-
dóttir landsliðskokkur er
annáluð fyrir sína ljúffengu
matargerð og eftirrétti
sem hafa slegið í gegn. Erla
er kokkur á Fjallkonunni
auk þess að vera í íslenska
kokkalandsliðinu sem tók
þátt í heimsmeistarakeppni
matreiðslumanna á dög-
unum.
sjofn@frettabladid.is
Erla hefur ástríðu fyrir matar-
gerð og nýtur þess að galdra fram
sælkerakræsingar. Nú er það
jólamaturinn sem á hug hennar
allan eftir annasaman tíma með
kokkalandsliðinu.
Ástríðan fyrir matargerðinni
hefur ávallt verið til staðar hjá
Erlu. „Ég hef alltaf haft áhuga á
matargerð frá því ég var lítil stelpa.
Áhuginn hefur líklegast kviknað
því ég var alin upp með ótrúlega
góðan mat í kringum mig bæði hjá
mömmu og ömmum mínum og
ég vildi helst alltaf fá að hjálpa til í
eldhúsinu,“ segir hún.
Eitt gull og eitt silfur
Miklar annir hafa verið hjá
kokkalandsliðinu síðustu vikur
og mánuði. „Ég var að klára mitt
fyrsta tímabil með kokkalands-
liðinu. Við erum nýkomin heim frá
Lúxemborg þar sem við vorum að
keppa á heimsmeistaramóti í mat-
reiðslu. Við fengum eitt gull og eitt
silfur sem skilaði okkur í sjötta sæti
sem við erum ótrúlega glöð með,
en á sama tíma er maður spenntur
fyrir næsta móti að gera enn betur,“
segir Erla, enda afar metnaðargjörn
og bíður spennt eftir næstu keppni.
„Þetta er frábær hópur sem er mikill
heiður að fá að vera partur af,“ segir
Erla og bætir við að samheldnin og
samstarfið sé ákaflega gott innan
hópsins.
Erla er byrjuð að setja saman
jólamatseðilinn og sviptir hér
hulunni af sínum jólamatseðli í ár
sem er ómótstæðilega girnilegur.
Erla býður lesendum upp á upp-
skrift að andabringu með gómsætu
eplasalati, hnetu-crumble toppuðu
með bláberjasósu sem á sér engan
líka. Í eftirrétt ætlar Erla að vera
með mandarínu crème brûlée sem
Ég hef alltaf haft
áhuga á matargerð
frá því ég var lítil stelpa.
Áhuginn hefur líklegast
kviknað því ég var alin
upp með ótrúlega góðan
mat í kringum mig bæði
hjá mömmu og ömmum
mínum og ég vildi helst
alltaf fá að hjálpa til í
eldhúsinu.
Andabringur og mandarínu
crème brûlée um hátíðirnar
Erla Þóra landsliðskokkur er annáluð fyrir sína ljúffengu matargerð og nýtur þess að galdra fram eftirrétti sem lokka
bragðlaukana. Hún er búin að setja saman jólamatseðilinn sinn. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Girnileg andabringan hjá Erlu með ómótstæðilega góðu meðlæti, eplasalati,
hnetu-crumble og toppuð með bláberjasósu.
er einstaklega jólalegur eftirréttur
en mandarínur eru táknrænar fyrir
jólin.
Andabringa með eplasalati,
hnetu-crumble og
bláberjasósu
1 -2 andabringur
Snyrtið andabringuna og skerið
fínar rákir í fituna. Steikið anda-
bringuna á fituhliðinni þar til hún
er gullinbrún. Snúið við og lokið
bringunni. Setjið í ofn og eldið við
180°C í 4–5 mínútur. Leyfið að hvíla
í nokkrar mínútur og skerið síðan í
þunnar sneiðar.
Bláberjasósa
2 skallotlaukar
1–2 hvítlauksrif
2–4 greinar garðablóðberg
100 g bláber (frosin eða fersk)
100 ml rauðvín
300 ml soð (anda eða kjúklinga)
1 - 2 tsk. bláberjasulta
30 g smjör
Brúnið laukinn á pönnu (gott að
Eftirrétturinn
hennar Erlu er
með jólalegu
ívafi þar sem
mandarínur
fara með aðal-
hlutverkið, hér
er á ferðinni
mandarínu
crème brûlée
sem á sér engan
líka.
nota sömu pönnu og notuð var
fyrir andabringurnar, gefur gott
bragð). Bætið bláberjum og garða-
blóðbergi við og leyfið að malla
aðeins. Bætið þá rauðvíninu við og
látið sjóða aðeins niður. Bætið þá
soðinu við og látið sjóða niður um
um það bil helming á vægum hita.
Sigtið sósuna og bætið síðan sultu
og köldu smjöri við og pískið allt
saman.
Eplasalat
1 grænt epli
100 g 36% sýrður rjómi
1–2 tsk. sykur
Eplið skrælt og skorið í bita. Sýrður
rjómi og sykur er hrært saman og
blandað við eplin.
Hnetu- og
trönuberja-crumble
50 g heslihnetur
50 g pekan hnetur
50 g þurrkuð trönuber
1 grein garðablóðberg
1 tsk. hunang
1 tsk. smjör
Skerið hneturnar fínt niður og
ristið á pönnu. Bætið við trönu-
berjum og garðablóðbergi. Síðan
er hunangi bætt saman við ásamt
klípu af smjöri.
Mandarínu crème brûlée
500 ml rjómi
6 eggjarauður
100 g sykur
Börkur af fimm mandarínum
1 vanillustöng
Sjóðið rjóma ásamt vanillu og
berki af fimm mandarínum. Leyfið
að malla í 3–5 mínútur. Þeytið
saman eggjarauður og sykur þar til
blandan verður létt og ljós. Sigtið
rjómablönduna og hellið rólega
saman við eggin og blandið vel
saman. Hellið í form og bakið í
ofnskúffu með heitu vatni ofan í á
150°C í 20–30 mínútur. Kælið í að
minnsta kosti sex klukkustundir.
Stráið hrásykri yfir og brennið. Svo
má rífa mandarínubörk með rif-
járni og setja yfir ef maður vill hafa
meira mandarínubragð. n
4 kynningarblað A L LT 10. desember 2022 LAUGARDAGUR