Fréttablaðið - 10.12.2022, Qupperneq 34
Bara með því að fara
aðeins yfir útgjöldin
getum við sparað
okkur tugi ef ekki
hundruð þúsunda á
ári.
Það er líka
sniðugt að
einbeita
sér að
meðlætinu,
það elska
allir með-
læti og það
er svo dýrt
að kaupa
kjöt.
Hrefna Björk Sverrisdóttir hefur tileinkað sér mikið af sparnaðarráðunum sem hún deilir með lesendum, hún er nú meðvitaðari um sín eigin kaup. fréttablaðið/ernir
Athafnakonan Hrefna Björk
Sverrisdóttir hefur alla tíð
reynt að framkvæma þær hug-
myndir sem hún fær. Hún gaf
nýlega út bókina Viltu finna
milljón? en í bókinni deilir
hún sparnaðarráðum og talar
um peninga á mannamáli.
Ég hef alltaf haft einhvern
áhuga á fjármálum. Man
eftir því þegar ég var lítil
og las alltaf dálkinn um
gengi gjaldmiðla í Mogg-
anum,“ segir athafnakonan Hrefna
Björk Sverrisdóttir. Hún gaf nýverið
út bókina Viltu finna milljón? þar
sem hún deilir hinum ýmsu sparn-
aðarráðum og þekkingu sinni á fjár-
málum.
„Ég bjóst aldrei við því að ég
myndi skrifa bók en mér fannst
vanta bók um fjármál á mannamáli
sem almenningur getur nýtt sér í
sínu daglega lífi. Bók um peninga,
sem fólk skilur,“ segir Hrefna.
„Ég hafði lengi verið að sanka að
mér ýmsum sparnaðarráðum og
þau eru stærsti hluti bókarinnar,
enda eitthvað sem fólk getur nýtt
sér beint til að taka til í sínum fjár-
málum,“ segir hún.
„Við erum oft að eyða gríðarlega
háum upphæðum að óþörfu og bara
með því að fara aðeins yfir útgjöldin
getum við sparað okkur tugi ef
ekki hundruð þúsunda á ári,“ segir
Hrefna, en í bókinni er meðal ann-
ars einnig fjallað um skuldir, tekjur
og markmið ásamt því að útskýrð
eru algeng hugtök líkt og hlutabréf,
skuldabréf og rafmynt.
Sparnaðarráð
Þá eru í bókinni einnig viðtöl við
einstaklinga sem gefa sparnaðarráð
á sínu sviði.
„Sem dæmi gefur Hrefna Rósa
kokkur góð matarráð, Sæja innan-
hússarkitekt gefur góð ráð um það
hvernig maður getur gert fallegt í
kringum sig á ódýran hátt, það eru
ráð um sparnað í framkvæmdum,
við þrif, í samgöngum, í barnaupp-
eldi og bara alls konar,“ segir Hrefna.
Eru þetta ráð sem þú notar sjálf?
„Já, ég hef tileinkað mér mikið af
þessu en ekki allt. Ég er orðin með-
vitaðri um mín kaup,“ segir Hrefna.
„Ég hef átt það til að eyða miklum
peningum í alls konar rugl. Föt og
einhverja hluti sem mig vantaði
ekkert. Þegar ég fékk útborgað fór ég
og keypti mér eitthvað, um leið og
mig langaði í eitthvað þá fór ég bara
og keypti það, sem sýnir svo mikla
hvatvísi sem ég held að sé svolítið
íslenskt,“ segir hún.
„Núna hugsa ég meira um það
sem ég er að kaupa. Hvort ég sé að
kaupa góða hluti eða eitthvað sem
mig vantar, hvort það sé til betri
kostur og ef ég er að fara að kaupa
eitthvað í október til dæmis þá
minni ég mig á að það sé stutt í alls
konar afsláttardaga, eins og Black
friday,“ segir Hrefna.
„Ég reyni að vera skynsöm og
meðvitaðri um kaupin sem ég er
að gera. Ef maður sér eitthvað sem
mann langar rosalega mikið í, til
dæmis föt, en bíður í nokkra daga þá
yfirleitt gleymir maður því,“ bætir
hún við.
Börn og peningar
Einn kafli í bókinni snýr að börnum
og fjármálauppeldi og segir Hrefna
þann kafla sérstaklega mikilvægan.
„Börn endurspeglast svo mikið í for-
eldrum sínum og peningahegðun
erfist í rauninni að miklu leyti,“
segir Hrefna.
„Auðvitað skiptir máli hvernig
við tölum við börn um peninga eftir
því hvað þau eru gömul, en það er
hægt að kynna peninga fyrir þeim
snemma og ala þau upp á skynsam-
an hátt, og þannig gefa þeim ákveð-
ið forskot út í lífið,“ segir Hrefna.
Hún segir þó karaktera einstakl-
inga í grunninn ólíka þegar kemur
að peningum. „Þetta er bara í gen-
unum hjá okkur, í DNA-menginu
okkar. Það er til dæmis algengt að
fólk sem á f leiri en eitt barn tali
um hvað þau séu ólík þegar kemur
að peningum. Eitt barnið kannski
sparar allt og eyðir aldrei neinu
á meðan annað er bara ekkert að
pæla í peningum og sparnaði,“ segir
Hrefna.
„Dóttir mín sem er 16 ára er til
dæmis algjör rómantíker í þessu og
vill bara eyða peningunum þegar
hún fær útborgað eins og ég gerði
einu sinni, hugsar bara með sér að
hún fái útborgað aftur um næstu
mánaðamót og ég á svo erfitt með
þetta, er alltaf að segja henni að
spara,“ segir Hrefna og hlær.
Ætlar þú þá að byrja snemma
að tala um peninga og fjármál við
næsta barn?
„Já, ekki spurning, bý til lítinn
bankastjóra,“ segir Hrefna kímin,
en hún á von á sínu öðru barni með
eiginmanni sínum, Magnúsi Schev-
ing, hann á fyrir þrjú börn svo þetta
verður fimmta barn þeirra hjóna.
Góður gefari
Spurð að því hvort hún hafi hafið
skipulagningu jólanna sérstaklega
snemma í ár vegna litla barnsins
segir Hrefna svo vera, hún sé nánast
búin að öllu og er virkilega spennt
að hitta barnið. „Ég gerði allt fyrr í
ár en ég reyni alltaf að nýta alla til-
boðsdaga og kaupa jólagjafirnar yfir
allt árið,“ segir Hrefna, sem hefur
lagt sig fram undanfarin ár við að
verða góður „gefari“.
„Þá er ég að meina að ef ég sit með
einhverjum í kaffi í febrúar sem
minnist á að sig vanti eitthvað eða
langi í eitthvað þá punkta ég það
hjá mér í notes í símanum. Það auð-
veldar mér gjafakaupin og þá veit ég
líka að sá sem fær gjöfina verður svo
glaður,“ segir Hrefna.
Þá mælir hún með að fólk fari
ekki offari í desember, vandi sig við
kaupin og kaupi ekki óþarfa. „Til
dæmis þegar kemur að matnum.
Mann langar alltaf í allt af því að það
eru að koma jól og svo fyllir maður
ísskápinn af mat sem engan veginn
er hægt að klára á þessum þremur
dögum,“ segir Hrefna. „Það er líka
sniðugt að einbeita sér að meðlæt-
inu, það elska allir meðlæti og það
er svo dýrt að kaupa kjöt.“
Hrefna segist oft hafa heyrt fólk
tala um að það sé lélegt í peningum
og kunni ekki á þá. „Það er ekki
þannig, fólk hefur bara ekki fengið
réttu tólin og kynninguna á fjár-
málum, þá getur fólk orðið hrætt
við peninga og þeim fylgir oft mikill
kvíði,“ segir hún.
„Það er sérstaklega kvíðavaldandi
ef maður er byrjaður að byggja upp
einhverjar skuldir. Manni finnst
maður ekki geta horfst í augu við
það en lykillinn er að gera akkúrat
það,“ segir Hrefna.
„Það er erfitt og kvíðavaldandi en
það er miklu betra að taka upp tólið
og tala við þann sem maður skuldar
í stað þess að líta í hina áttina og fela
reikninginn í heimabankanum. Í
langflestum tilvikum er fólk til í að
semja og finna út úr hlutunum ef sá
sem skuldar hefur samband fyrir
gjalddaga,“ segir hún að lokum. n
Fólk geti orðið hrætt við peninga
Birna Dröfn
Jónasdóttir
birnadrofn
@frettabladid.is
32 Helgin 10. desember 2022 LAUGARDAGURFrÉttablaðið