Fréttablaðið - 10.12.2022, Síða 94
Mér fannst þetta svo
spennandi og nýtt
viðskiptamódel því
það er ekki hægt að
kaupa línuna, bara
leigja hana og það er
bara notaður endur-
unninn textíll.
JOEBOXER.IS | KRINGLAN 4-12 (1. HÆÐ) | 103 REYKJAVÍK | S. 5332009
Sól Hansdóttir fatahönnuður
hannaði fatalínuna Sjö litir
villskunnar úr endurunnum
textíl og afgöngum. Fatalínan
er aðeins til útleigu.
lovisaa@frettabladid.is
Fyrir viku síðan kom út ný fatalína
í hönnun Sólar Hansdóttur sem
hönnuð var í samstarfi við fataleig-
una Spjöru. Verkefnið er samstarfs-
verkefni þeirra tveggja en fatalínan
er aðeins til útleigu, ekki einkaeigu.
Línan heitir Sjö litir villskunnar.
„Þær höfðu samband við mig hjá
Spjöru og vildu fá mig með í verk-
efnið. Þetta var í febrúar og þá voru
þær að sækja um styrki fyrir þessu
verkefni,“ segir Sól, sem þá var á
kafi í verkefni með Reykjavíkur-
dætrum, en fannst þetta spennandi
og samþykkti að vera með.
„Mér fannst þetta svo spennandi
og nýtt viðskiptamódel því það er
ekki hægt að kaupa línuna, bara
leigja hana og það er bara notaður
endurunninn textíll og afgangar úr
annarri framleiðslu,“ segir Sól, sem
notaði það allt í f líkurnar auk fata
sem hún fékk hjá Rauða krossinum
í f lokkunarmiðstöðinni sem átti að
henda og föt úr skápnum sínum.
„En ég keypti líka af framleið-
endum afganga og svampa af dýnu-
framleiðanda sem ég notaði,“ segir
Sól, en ef f líkurnar eru skoðaðar
sjást þeir vel.
Ný nálgun
Hún segir þetta nýja nálgun á tísku
sem hafi oft og tíðum verið á hendi
fárra, því hönnunarvörur eru dýr-
ari en hraðtíska [e. Fast fashion].
„Það hafa ekkert allir efni á því
að kaupa 300 þúsund króna Gucci
kjól og ég hef alveg skilning á því að
fólk sæki í hraðtísku þegar það er
kannski að reyna að búa eitthvað
outfit til fyrir myndatöku eða ein-
hvern viðburð og þess vegna finnst
mér þessi fatalína svo f lott svar við
því,“ segir Sól, en meðalleiga á kjól
eða f lík hjá Spjöru er um átta þús-
und krónur.
Sól er með meistargráðu í fata-
hönnun frá Central Saint Martins
í London og grunngráðu í fata-
hönnun frá Listaháskólanum og
hefur komið víða við. Hún starfar
bæði í London og Reykjavík og
sýnir frekar erlendis.
„Ég vinn meira hérna heima.
Það er svo æðislegt að vera hérna
að vinna og skapa. Það er einhver
orka hérna og pláss fyrir sköpun.
Ég finn dálítinn mun á því að vera
hér og þar upp á það að gera, en ég
reyni að fara fram og til baka eins
og ég get,“ segir Sól. n
Svampar og afgangar í nýrri fatalínu
Sól Hansdóttir
fatahönnuður
segir gott að
vinna á Íslandi
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
lovisaa@frettabladid.is
Í kvöld er fyrsta mánaðarlega
klúbbakvöldið á Bravó sem lýkur
á miðnætti. Kvöldið er skipulagt af
þeim Giitu Hammond og Natalie
Gunnarsdóttur, eða DJ Yamaho.
„Klúbbakvöldið kallast After
Eight og er fyrir þá sem vilja byrja
dansinn snemma,“ segir Giita, en í
hverjum mánuði verða nýir plötu-
snúðar og dansað frá klukkan 20
til miðnættis.
„Hugmyndina að After Eight
fékk ég fyrir nokkrum árum þegar
ég bjó á Írlandi. Ég er mikill tón-
listarunnandi, elska að fara á tón-
leika og dansa. Ég var orðin þreytt
á að þurfa að vaka seint á nóttunni
til að dansa við góða danstón-
list,“ segir Giita og að svo hafi hún
kynnst klúbbakvöldi þar sem
plötusnúðar spiluðu til miðnættis
einn sunnudag í mánuði.
„Það var ókeypis inn og brjáluð
stemning,“ segir Giita og að svo í
heimsfaraldri Covid hafi margt
breyst vegna þess að barir og
klúbbar þurftu að loka fyrr.
„Klúbbarnir opnuðu fyrr, fólk
mætti snemma, dansaði allt
kvöldið og fór svo heim. Þetta var
fullkomið og ég hugsaði með mér
að ég vildi að svona væri þetta allt-
af,“ segir Giita, sem flutti til Íslands
í sumar með fjölskyldunni sinni og
ákvað að slá til í Reykjavík.
„Ég hafði samband við gömlu
bekkjarsystur mína Natalie og
henni leist vel á þetta,“ segir hún
en Natalie spilar á fyrsta kvöldinu
ásamt Gunna Ewok. Hægt er að
kynna sér klúbbinn á Facebook
undir After Eight klúbbur. n
Klúbbakvöld sem
lýkur á miðnætti
Natalie G. Gunnarsdóttir og Giita
Hammond bjóða í dans í kvöld.
FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Ég var orðin þreytt á að
þurfa að vaka seint á
nóttunni til að dansa.
Sól fékk af-
gangssvampa
hjá dýnufram-
leiðanda sem hún
notaði í línuna
60 Lífið 10. desember 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 10. desember 2022 LAUGARDAGUR