Fréttablaðið - 10.12.2022, Síða 96
Sunna Mar-
grét segir það
aldrei hafa verið
ætlunina að
verða tónlistar-
kona. Lífið og
aðstæður hafi
leitt hana á þá
braut.
FRÉTTABLAÐIÐ/
JASMINE DEPORTA
Þrátt fyrir ungan aldur hefur
Sunna Margrét Þórisdóttir
komið víða við þegar kemur
að listsköpun. Auk þess að
syngja, semja tónlist og sinna
myndlist rekur hún ásamt
manni sínum útgáfufyrirtæki
í Sviss, þar sem hún gefur út
bæði eigin tónlist og tónlist
frá upprennandi tónlistar-
fólki á svæðinu.
erlamaria@frettabladid.is
„Það er kannski pínu klisja, en
segja mætti að tónlistin hafi alltaf
verið í mér. Pabbi sagði að ég hefði
alltaf verið syngjandi sem barn. Ég
bablaði víst rosa mikið áður en ég
byrjaði að tala og var í rauninni
með mitt eigið tungumál. Ég var
líka mjög taktviss og þegar ég var
fimm ára bað ég um að fá að læra
á píanó eins og eldri systir mín.
Þannig byrjaði þetta,“ segir Sunna
Margrét Þórisdóttir, myndlistar- og
tónlistarkona, sem gengur undir
listamannsnafninu Sunna Margrét.
Sunna Margrét býr í borginni
Lausanne, í frönskumælandi hluta
Sviss, þar sem hún og maður henn-
ar, Stéphane Kropf, hafa komið sér
vel fyrir ásamt tveggja og hálfs árs
syni, en þar reka þau saman útgáfu-
fyrirtækið No Salad Records.
„Ég flutti til Sviss árið 2016 til þess
að fara í bachelor-nám í myndlist
við ECAL-listaháskólann. Eftir það
ákvað ég svo að fara í framhalds-
nám og taka masterinn í myndlist
og var að útskrifast núna í sumar.
En meðfram því hef ég verið bæði
að semja og taka upp mína eigin
tónlist. Svo stofnaði ég plötuútgáfu
í lok árs 2019, í raun til þess að gefa
út mína eigin tónlist,“ segir Sunna
Margrét og heldur áfram:
„En þetta er farið að stækka og
við erum farin að taka að okkur
alls konar hæfileikaríkt tónlistar-
fólk. Eins og staðan er núna er þetta
mjög lókal, mikið til tónlistarfólk
frá þessu svæði þar sem við búum,“
segir Sunna Margrét.
Ólíkar tónlistarsenur
Að sögn Sunnu Margrétar voru það
talsverð viðbrigði að flytja til meg-
inlands Evrópu, þá helst fyrir þær
sakir hversu frábrugðin tónlistar-
senan þar ytra sé þeirri íslensku.
„Það er eiginlega bara himinn
og haf á milli. Það var mitt mesta
menningarsjokk sem tónlistarkonu,
að flytja frá Reykjavík til Lausanne,“
segir Sunna Margrét, og útskýrir
nánar:
„Það er sagt að tónlistarfólk
á Íslandi vinni mikið saman, sé
óhrætt við að gera eitthvað sem er
öðruvísi og það megi allir vera með.
En hérna hefur fólk lítinn áhuga á
einhverju sem kannski telst öðru-
vísi. Ég hef rætt þetta við tónlistar-
fólk sem ég vinn með hér og það er
rosa sárt að sjá að það er mikið af
hæfileikaríku tónlistarfólki sem
langar að gera eitthvað nýtt og öðru-
vísi, en finnur sér engan stað og fær
ekkert að blómstra,“ segir hún.
Áður en Sunna Margrét f lutti
til Sviss hafði hún verið áberandi
í íslensku tónlistarlíf i, en um
fimm ára skeið var hún meðlimur
í hljómsveitinni Bloodgroup, sem
naut gríðarlegra vinsælda bæði
hérlendis og erlendis. Hún segir að
þar hafi hún fengið tækifæri til að
ferðast um heiminn og spila á tón-
leikum. Þetta hafi verið dýrmætt
tækifæri sem hafi hjálpað henni í
listsköpun sinni.
„Þetta var mjög skemmtilegur
tími og ég lærði mikið á þessu, en
þegar ég byrjaði fyrst í hljómsveit-
inni vissi ég ekkert hvað ég var að
gera. Ég þekkti Bloodgroup ekkert
og var ekkert inni í því hvað þau
höfðu verið að gera í tónlist. Á þeim
tíma var ég bara átján ára nemandi
í FÍH að hlusta á djass,“ segir Sunna
Margrét og hlær.
Hljómsveitin hætti störfum árið
2015 og segir Sunna Margrét að þá
hafi myndlistin tekið við. Fyrst
Myndlistarskóli Reykjavíkur og svo
ECAL-listaháskólinn í Sviss.
„Þegar Bloodgroup-ævintýrið var
búið ákvað ég að taka stúdentinn í
myndlist, en ég ætlaði ekkert út í
myndlist og hugsaði aldrei um mig
sem einhverja myndlistarkonu. Svo
bara small eitthvað og í kjölfarið
sótti ég um að komast inn í lista-
háskólann þarna úti. Ég bjóst ekki
einu sinni við því að fá viðtal. En ég
komst inn og núna allt í einu er ég
komin með mastersgráðu í mynd-
list,“ segir Sunna Margrét.
Hefur aldrei planað lífið
Sunna Margrét segir tónlistina þó
allsráðandi þessa dagana þó að
myndlistin skipi einnig stóran sess
í hennar listsköpun. Hún segist
sækja innblástur víða, bæði í mynd-
list og mannleg samskipti.
„Ég er búin að semja ótrúlega
mikið af tónlist eftir að ég f lutti
út. Ætli það hafi ekki verið einhver
heimþrá. Ég samdi mikið til heið-
urs ömmu minni af því ég saknaði
hennar svo ótrúlega mikið, en hún
er því miður fallin frá núna,“ segir
Sunna Margrét. Þá hafi móðurhlut-
verkið einnig mótað hana þegar
kemur að tónsmíðum.
„Ég samdi mikið þegar ég var
ólétt og það voru allt öðruvísi lög
heldur en ég samdi áður en ég varð
ólétt. Þegar maður eignast barn
breytist allur heimurinn. Það er
eitthvað svona auka auga eða auka
skilningarvit sem maður eignast,“
segir hún.
Að sögn Sunnu Margrétar eru
spennandi tímar fram undan. Á
Þorláksmessu komi út lag með rúm-
enskri tónlistarkonu sem Sunna
segist gríðarlega spennt fyrir. Þá sé
hún að leggja drög að því að búa til
tónlist fyrir heimildarmynd sem
mikil leynd hvílir yfir.
„Þetta er í fyrsta skipti sem ég
sem tónlist fyrir skjáinn, en tökur
ættu að byrja á næsta ári og von-
andi gengur það upp. Ég get ekki
sagt mikið meira en það enn sem
komið er,“ segir Sunna Margrét.
Aðspurð segir Sunna Margrét
það ekki hafa verið á stefnuskránni
að verða tónlistarkona. Lífið og
aðstæður hafi leitt hana á þá braut.
„Það var aldrei einhver pæling
að ég ætlaði mér að vinna við tón-
list. Ég var bara alltaf að því og ég
held að ég hafi aldrei planað líf mitt
þannig séð. Allt í einu var ég komin
í Bloodgroup og svo eiginlega líka
óvart komin út í myndlistarnám.
Mér finnst oft hlutir bara gerast. Að
plana næsta ár er lengsta plan sem
ég hef gert, en það er mest tengt No
Salad Records,“ segir Sunna Margrét
og bætir við:
„Það hefur verið þannig að ef ég
reyni að plana eitthvað, þá gerist
eitthvað allt annað. En ég er mjög
þakklát fyrir það sem ég hef og hef
fengið að upplifa í lífinu. Ég hef
verið heppin og ætla að reyna að
njóta þess sem mér hefur verið gefið
og er mjög spennt fyrir því sem er
fram undan.“ n
Sækir innblástur í mannleg samskipti
Þegar maður eignast
barn breytist allur
heimurinn. Það er
eitthvað svona auka
auga eða auka skiln-
ingarvit sem maður
eignast.
Það getur verið erfitt
að velja réttu bókina
Gjafabréf í Bókabúð
Forlagsins leysir málið Þrír verðflokkar
5.000 kr. 10.000 kr. 15.000 kr.
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Opið 10–19 alla daga til jóla | www.forlagid.is
62 Lífið 10. desember 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ