Fréttablaðið - 10.12.2022, Side 102
frettabladid.is
550 5000
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 2022 - 2025
Reykjavík • Mörkin 3 | Akureyri • Undirhlíð 2
ALLT FYRIR
HJÁ TÖLVUTEK
GRÆJUJÓL
Tobbu
Marinós
n Bakþankar
Það má skipta um skoðun og það
er svo geggjað. Ég dýrka hvað það
er mikið frelsi fólgið í að fyrirgefa
sér og þakka sér fyrir að skipta um
skoðun.
Leyfa sér að prófa alls konar
og um leið átta sig á því líkt og
frænka mín Sheryl Sandberg segir
– starfsframinn er ekki stigi –
hann er klifurgrind. Við verðum
ekki að fara upp eða niður. Það má
– og á – að fara einn til hliðar, tvo
upp, einn niður og sveif la sér.
Mér finnst þessi vitneskja gera
það svo miklu auðveldara að taka
áhættu í starfi og leyfa mér að
takast á við krefjandi verkefni.
Tilhugsunin um að læra eitt-
hvað eitt og vinna við það alla
ævi hentar mörgum en alls ekki
öllum.
Eldri kynslóðum var kennt að
vera ekkert að vesenast neitt. Ef
þú varst kennari þá áttir þú að
vera ánægður með að kenna 5.-J
alla ævi.
Pabbi þinn var kannski kennari.
Þú gast þá líka gert það. Skipti
engu sérstöku máli hvort þig
langaði það eða hafðir hreinlega
ánægju af samskiptum við börn.
Systemið krafðist þess að þú
héldir þig við það sem þú hafðir
lært.
Díana átti að vera gift Karli
Bretaprins. Þú átt að kenna 5.-J.
Í dag getur fólk verið framúr-
skarandi kennari en samt ákveðið
að hætta og reka verslun, stofna
matreiðsluskóla eða gerast
hótelrekandi á Balí.
Koma svo kannski aftur í
kennsluna síðar með enn meiri
reynslu og lífsgleði.
Við erum höfum frelsi til að
velja og ættum að njóta þess.
Einn niður, tveir til hliðar og
tveir upp. Hrufla sig á leiðinni en
halda áfram. Njóta útsýnisins.
Ferðalagið telur, ekki reitirnir. n
Að kenna 5.-J
Jólafjör í IKEA um helgina!
©
Inter IKEA System
s B.V. 2022
Taktu þátt í jólafjöri IKEA um helgina frá kl. 13-17. Smakkaðu sætar smákökur
og ljúffengt jólaglögg, sjáðu rétta handbragðið við að setja saman og skreyta
piparkökuhús í eldhúsdeildinni og fáðu mynd með jólasveininum í rammadeildinni.
Á jólamarkaðnum í gróðurhúsunum er úrval af fallegri íslenskri stafafuru í bland
við bústinn norðmannsþin, jólaskraut, safaríkar jólaklementínur og fleira góðgæti
og hátíðlegir réttir á veitingastaðnum færa þér bragð af jólum!
Verslun opin 11-20 alla daga
Skoðaðu alla afgreiðslutíma á IKEA.is
H100-125 cm 2.990,-
H125-150 cm 3.990,-
H150-175 cm 5.990,-
H175-200 cm 7.990,-
H200-225 cm 8.990,-
Fallegur
og sígrænn
norðmannsþinur!
Íslensk stafafura
9.990,-
Lífið er … að mæta því óvænta
Lífið er að muna
eftir jólasveinunum