Stétt með stétt - 01.05.1939, Blaðsíða 15
Æ
Avarp
1. maí er hátíðisdagur, helgaður verkamannastéttinni. Hann á að vekja
menn til umhugsunar um aðstöðu verkamannsins, lífsskilyrði hans, þrótt og
þrautseigju í örðugu og óblíðu starfi.
Vfyrsta sinni í dag efnir Sjálfstæðisflokkurinn til hátíðahalda á þessum
degi verkamannsins. Menn kunna að spyrja: Hvers vegna hefir hann ekki
gert það fyrr? Ástæðurnar eru þær, sem hér skal greina.
Sjálfstæðisflokkurinn telur, að verkalýðssamtökin eigi að vera óháð póli-
tískum flokkum og halda sér utan við stjórnmálin, en snúa sér eingöngu að
hagsmunabaráttu verkamanna og stéttarmálum. Sjálfstæðisflokkurinn litur
svo á, að hátíðahöldin 1. maí til heiðurs verkamanninum, eigi að vera alger-
lega ópólitísk, eins og t. d. sjómannadagurinn í fyrra.
En meðan verkalýðssamtökin eru, eins og nú er, hneppt í einræðis- og
flokksfjötra, — meðan sjálfstæðis-verkamenn eru innan þeirra sviptir ein-
földustu mannréttindum, — meðan verkalýðsfélögin eru notuð sem harðvít-
ug flokksfélög, og meðan dagur verkamannsins, 1. maí, er ár eftir ár herfi-
lega misnotaður til pólitísks áróðurs, — þá getur fjölmennasti verkamanna-
flokkur landsins, Sjálfstæðisflokkurinn, ekki lengur horft aðgéfðalaas á slíkar
uðfarir. Þess vegna hefir hann nú ákveðið að fagna þessum degi með þeim
verkamönnum, er honum fylgja að málum.
Sjálfstæðisfélögin í Reykjavík, Óðinn, Hvöt, Heimdallur og Vörður, hafa
því tekið höndum saman og kosið nefnd til undirbúnings þessum degi. Vér
undirrituð, sem eigum sæti í 1. maí nefnd Sjálfstæðisfélaganna, viljum nota
þennan dag til að herða enn baráttuna fyrir frelsi, jafnrétti og lýðræði inn-
an verkalýðssamtakahna. Vér viljum nota þennan dag til baráttu fyrir sjálf-
stæðisstefnunwi, þeirri stjórnmálastefnu, sem bezt getur tryggt stærsta hags-
munamál verkamannanna: blómlegt atvirínulif með nægri og stöðugri vinnu.
Vér viljum skora á alla, er unna frelsi og framförum, samstarfi stéttanna og
sönnu lýðræði, að sameinast í dag til heiðurs hinni fjölmennu stétt íslenzkra
verkamanna.
1. maí nefnd Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík.
Gunnar Thoroddsen. Kristinn Arnason. Andrés G. Þormar. Axel Guðmundsson.
Gísli Guðnason. Hannes Jónsson. Helga Marteinsdóttir. Ingvi Hannesson.
María Maack. Marta Indriðadóttir. Oddur Jónsson. Ragnar Lárusson.
Soffía M. Ólafsdóttir. Stefán A. Pálsson.