Stétt með stétt - 01.05.1939, Blaðsíða 19
framboðslistanna, eftir því sem þeir
töldu skárra, af tvennu illu.
Þá má og minna á þann mikla styrk,
sem Málfundafélagið Óðinn veitti stétt-
arbræðrum sínum og samherjum 1 Hafn-
arfirði nú í vetur, þegar Bæjarútgerð-
in þar á staðnum gerði hina ódrengileg-
ustu herferð á samtök hafnfirzkra
verkamanna. Sú barátta gefur okkur
nokkra hugmynd um þá nauðsyn, að
allir sjálfstæðisverkamenn hvar á land-
inu sem þeir eru búsettir, sameinist í
eina órjúfandi heild til varnar og sókn-
ar í hinni hörðu lífsbaráttu.
Læt ég þessi dæmi nægja til þess að
gefa lesendum mínum nokkra hugmynd
um hið mikla og margþætta starf, sem
Málfundafélagið Óðinn hefir unnið á
þessu fyrsta starfsári sínu. En eins og
sjá má af dæmunum, hefir það eitt ver-
ið gert hér að umtalsefni, sem snertir
baráttu félagsins út í frá. Hitt eru þó
að sínu leyti engu minni afköst, hvað
áunnizt hefir í hinum raunverulegu mál-
efnum félagsins inn á við. En þar sem
að þau mál eru óviðkomandi almenn-
ingi og aðeins séreign félagsins, verður
ekki farið út í þau að þessu sinni.
Ég vil þó ekki skilja við þennan lið
á starfsemi Málfundafélagsins Óðinn,
án þess að láta þá skoðun mína í ljós,
að ég tel það fyrst og fremst þess verk,
að dagur hinnar stritandi alþýðu þessa
bæjar er nú í fyrsta skipti haldinn há-
tíðlegur undir sameiginlegum átökum
allra sjálfstæðisfélaganna hér í Reykja-
vík.
III.
Liðlega eitt ár er liðið frá því að Mál-
fundafélagið Óðinn var stofnað, en af
því, sem hér hefir verið drepið á af
störfum þess, sem þó er aðeins ómerki-
legt sýnishorn, má greinilega sjá, að
meðlimir félagsins hafa ekki alltaf leg-
ið á Iiði sínu. Það má og fullyrða, að
sérhvert starf, sem félaginu hefir auðn-
azt að framkvæma á þessu fyrsta starfs-
ári sínu, og sérhver unninn sigur þess,
hafi skapað meðlimum þess aukið þrek
og bjartara viðhorf til enn stærri átaka,
unz það að lokum hefir náð þeirri bjarg-
festu, sem mun hafa í för með sér ger-
breytingu á íslenzkum verkalýðssamtök-
um, er mun byggjast á samstarfi allra
stétta þjóðfélagsins til viðreisnar landi
og lýð, í stað þeirra sundrungar- og
eyðileggingarafla, sem þar hafa verið
æðst ráðandi að undanförnu.
Núverandi stjórn Málfundafélagsins
Óðinn skipa þessir menn:
Kristinn Árnason, form.,
Sveinn Sveinsson, varaform.,
Axel Guðmundsson, ritari,
Gísli Guðnason, gjaldkeri,
Jón Björnsson, fjármálaritari,
Meðstjórnendur:
Sveinn Jónsson og
Ingvi Hannesson.
Um þessa menn verður ekki ann-
að sagt en að þeir séu mjög lík-
legir til góðra átaka, og er þess fyllilega
að vænta, að Málfundafélagið Óðinn
eigi eftir að stíga mörg framfaraspor
undir þeirra forustu. Vona ég, að hver
einasti félagi geri skyldu sína með því
að styðja þá eftir föngum í því starfi,
og þá mun þess ekki langt að bíða, að
Málfundafélagið Óðinn verði eitt af öfl-
ugustu félögum Sjálfstæðisflokksins.
Sigurður Halldórsson.
5