Stétt með stétt - 01.05.1939, Page 24

Stétt með stétt - 01.05.1939, Page 24
Pegar ég var í fiskvinnu - og nú Fyrir eitthvað 15 árum var ég í fisk- vinnu, af og til um fimm ára skeið á nokkrum vinnu- stöðvum. Fékk ég þá gott tækifæri til að kynnast allri vinnu- högun og starfs- Soffía M. Olafsdóttir. háttum> einnig hug fólksins, er vann með mér, því að oft hófust fjörugar samræður í kaffihléum og stundum að starfstíma loknum. Það var á uppgangs- tímum verkalýðssamtakanna, eða öllu heldur hátindi þeirra, því að skömmu síðar fóru að gera vart við sig hin ó- hollu áhrif þeirra, er stöfuðu af of ein- hliða hætti þeirra að einblína stöðugt á hækkandi kaupgjald og verkföll í sambandi við það, án nokkurar fyrir- hyggju. Ég byrjaði þá á mínum pólitísku ræð- um, ef ég má kalla það svo, því snemma var hugurinn litaður í þá átt, og ég gat ekki stillt mig um að láta uppi, hvað mér bjó í brjósti, því mér hraus hugur fullir af áhuga. Vitanlega eru oft skipt- ar skoðanir, en menn skilja nauðsyn þess, að standa saman. Við ætlum að gera Óðinn að stórveldi, og hann verður það. Við ætlum að gera hann að styrkri stoð Sjálfstæðisflokksins, til blessunar fyrir þjóðina, til frelsis og hagsældar fyrir íslenzka verkamenn. Með Óðins kveðju. Hannes Jónsson. við þessu ofurkappi verkalýðssamtak- anna, er aldrei gátu haft nema slæmar afleiðingar í för með sér fyrir verka- fólkið og þá þjóðina í heild. Einnig var ég því mjög mótfallin, að verkalýðssamtökin notuðu félagsgjöld- in til pólitískrar starfsemi. 1 stað þess var draumur minn sá í þeim efnum, að koma mætti upp fyrir það fé verkafólks- ins smátt og smátt vinnufyrirtækjum með hlutdeildarfyrirkomulagi. Ég hafði lesið um nokkrar tilraunir í þá átt, er sannir mannvinir verkalýðsins höfðu tekið sér fyrir hendur og komið á bæði í Englandi, Ameríku og víðar, og höfðu þær gefizt ágætlega og verið varanleg- ar. Einnig las ég seinna greinar um þetta mál eftir Magnús Jónsson og Thor Thors alþingismenn, er styrktu mig í þeirri trú, að vel mætti hið sama takast hér, ef vilji væri með. Síðar var það tekið upp í stefnuskrá Sjálfstæðisflokks- ins. — Á þeim árum, er ég starfaði að fisk- vinnu, virtist fólkið yfirleitt ekki kvíða komandi degi. Verkalýðsforkólfarnir lofuðu því gulli og grænum skógum, ef þeir væru studdir, en ekki höfðu þeir hugsað vinnuveitendum samt sjö dag- ana sæla og kölluðu þá blóðsugur og þaðan af verra, er fólkið átti svo að melta sem hvert annað hnossgæti við vinnuna. Nú er nokkuð umliðið síðan þetta var, en öðruhvoru hitti ég margt af því fólki, er ég vann með, á förnum vegi, og er kvíðbogi þess fyrir morgundeginum greinilegur. Þetta er orðin reitings- vinna. Óverkaður fiskur fer út úr land- 10

x

Stétt með stétt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stétt með stétt
https://timarit.is/publication/1741

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.