Stétt með stétt - 01.05.1939, Page 29

Stétt með stétt - 01.05.1939, Page 29
► af öðrum, en vilja ekkert leggja í söl- urnar sjálfir. Enda er aðferð þeirra nú búin að dæma sig sjálf, því að fyrir að- gerðir þeirra er nú allt atvinnulíf kom- ið í kaldakol, og afleiðing þess fyrir okkur verkamenn er atvinnuleysi og dýrtíð. Og síðan kommúnistar komust inn í verkamannasamtökin, hefir þar enginn friður verið. Við verkamenn verðum að taka höndum saman, hverja skoðun sem við höfum, til að útiloka áhrif þessara æsingaseggja. Á síðastliðnu ári var stofnað hér Mál- fundafélagið Óðinn, félag Sjálfstæðis- verkamanna. Þá fyrst fór að rofa til í málefnum okkar verkamanna, þegar stefna Sjálfstæðisflokksins fór að hafa áhrif í Dagsbrún. Nú ætlum við Óðinsmenn, og aðrir Sjálfstæðismenn, í fyrsta sinn að halda hátíðlegan 1. maí, frídag verkamanna. Og nú vil ég vera með. Við höldum sam- komur með ræðuhöldum og skemmtun- um. Við gefum út blað í tilefni dagsins og við seljum merki okkar Óðinsmanna, sem ég vona að allir Sjálfstæðismerm vilji bera. Ég vona, að allir verkamenn fylgi okkur. Mér væri það þung raun, að sjá félaga mína í flokki kommúnistanna. Með Óðins kveðju. Björn Benediktsson. Út í sólskinið 1 dag gangast sjálfstæðisfélögin í Reykjavík fyrir hátíðahöldum, — ekki fyrst og fremst í fjáröflunarskyni, held- ur til að treysta þau bönd, sem tengja stétt við stétt innan vébanda Sjálfstæð- isflokksins. Það er vitað mál, að ár frá ári stækk- ar sá hópur verkamanna, sem farið er að skiljast, að stefna Sjálfstæðisflokks- ins í atvinnu- og fjármálum þjóðarinn- ar er miðuð við þeirra hagsmuni, ekki síður en annara stétta. Að hún er ekki lýðskrum, með stundarhagsmuni flokks- ins fyrir augum, heldur byggð á þeirri þekkingu á atvinnulífi þjóðarinnar, sem reynslan ein getur veitt. Sjálfstæðisflokkurinn berst fyrir því, að þjóðfélagið geti uppfyllt þær kröf- ur, sem þessir menn gera um stöðuga atvinnu, og að þeir geti lifað eins og frjálsbornir menn. Af þeim ástæðum nálgast sú stund óðum, að Sjálfstæðis- flokkurinn verði stærsti verkalýðsflokk- urinn í landinu. Hann getur þá heldur ekki lengur látið undir höfuð leggjast að taka í sínar hendur aðalhátíðahöld- in þennan dag verkalýðsins. En jafnframt því, að sjálfstæðisfélög- in gangast fyrir hátíðahöldum af fram- angreindum ástæðum, þá hafa þau á- kveðið að stuðla að því, að sjálfstæðis- menn meðal allra stétta hér í höfuð- staðnum geti tekið höndum saman um það þennan dag, að leggja grundvöllinn að einhverju því velferðarmáli hinna fátækustu meðal þjóðfélagsins, sem ekki verður hrundið í framkvæmd nema með almennum samtökum. Þegar um slíkt er að ræða, þá verður manni jafnan fyrst fyrir að hugsa til 15

x

Stétt með stétt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stétt með stétt
https://timarit.is/publication/1741

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.