Stétt með stétt - 01.05.1939, Side 39

Stétt með stétt - 01.05.1939, Side 39
 BE □ □ 0 □ 3QHEIEI0E 3H ÐE 30BOE 3BE 3D VOR \1S ^ÍC3 3QBQŒIQE 3Q □ □ I □ □ □ B 0 □ □ DE Sólargeislar sindra um hlað, sumerhljómar berast að, inn í bæinn boðar það bjarta og langa daga. Vorsins glaða vinarmál verði ljós í hverri sál, eins og gullin gróðurnál, græðir tún og haga. Göngum, vinir, vori á hönd, vakning tengi sáttabönd; yfir landið, strönd af strönd, streymi bróðurandi. Fyrir rétt vors föðurlands, fyrir rétt hvers einstaks manns, fyrir rétta framtíð hans frelsið stjórni landi. Maríus Ólafsson. 3B □ E EEU=3E= 3DBIQE 30 □ E □□Œ3QQEE □ □ □ 0 □ 0 □ □ □ □ feldasta atvinnubót, sem hér hefir þekkzt. Sú umbótastefna Sjálfstæðisflokks- ins, sem kom fram í þessu stórvirki, ræktun bæjarlandsins, aukningu hafn- armannvirkja, undirbúningi hitaveitu og ýmsu fleiru, varð til þess að gera hrun eyðileggingarstefnu kommúnism- ans enn þá augljósara en ella. Fjöldi verkamanna og sjómanna færði sér hina fengnu reynslu í nyt og gekk þegar í lið Sjálfstæðismanna 'og gerði mögulega þá eflingu flokksins, sem áður er á drepið. En miklu fleiri en þeir, sem þetta eðlilega spor hafa stigið, hafa látið von- brigðin yfir ávöxtunum af stjórn vinstri flokkanna sér að kenningu verða. Einn- ig þeim verkamönnum, sem enn hafa ekki náð þeim stjórnmálaþroska að að- hyllast sjálfstæðisstefnuna, er nú orðið ljóst, að hrun atvinnuveganna hefir í för með sér eymd fyrir þá sjálfa. Kom- múnistarnir höfðu vonað, að við þá stórfelldu tilraun, sem nú hefir verið gerð til þess að endurreisa atvinnulíf landsmanna, mundi skapast tækifæri til þess fyrir þá að koma af stað ófriði og illindum meðal verkamanna. En þeir hafa talað fyrir daufum eyrum. Reynsl- an hefir bent einnig þeim, sem enn telja sig fylgjandi hinni rauðu stefnu í stjórn- málum, að ráðin til viðréttingar at- vinnuveganna koma ekki frá kommún- istum. Verkefni Sjálfstæðismanna 1 verka- mannastétt hafa aldrei verið meiri en nú. Annars vegar ber þeim að taka upp öfluga baráttu gegn kommúnismanum, til þess að honum lánist ekki að gera verkalýðssamtökin að skálkaskjóli fyr- ir sína landráðastarfsemi. Hins vegar hljóta þeir að halda áfram því starfi, sem þeir þegar hafa hafið, að efla Sjálf- stæðisflokkinn og gera hann að enn þá meiri almennings- og verkamannaflokki en nokkru sinni fyrr. í þessari tvöföldu baráttu munu verkamenn njóta stuðnings allra góðra Sjálfstæðismanna hvar í stétt, sem þeir standa. Bjarni Benediktsson. 21

x

Stétt með stétt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stétt með stétt
https://timarit.is/publication/1741

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.