Stétt með stétt - 01.05.1939, Side 41
Bornaleikvellir hér og erlendis
Mig langar að lýsa
með fáum orðum
því, sem einna mest
hreif mig, er ég ferð-
aðist til Englands
sumarið 1936, en
það var barnaleik-
völlur einn í Lond-
on, stór og fallegur,
sem ég skoðajði og
vakti hjá mér sér-
staka hrifningu, eða meir en nokkuð
annað, sem ég sá í hinni stóru borg, og
hvað vel fór um börnin og hvað mikið
og margbrotið þau höfðu sér til skemmt-
unar, og að sjá brosandi andlitin þeirra
af ánægju.
Ég get nú ekki hugsað svo hátt, að við
íslendingar eigum eftir að hafa eins
fallega leikvelli og jafn fjölbreytileg
skemmtiáhöld, en ósk mín væri sú, að
börn okkar hefðu betri leikvelli heldur
en þá, sem nú eru hér í bæ, og þá um
leið fullkomnari leikföng en komið er.
íslenzku börnin fara margs á mis,
eins og að vísu á sér stað með flesta í
þessari veröld. Hér í bænum eru leik-
vellir í fyllsta máta ófullkomnir að leik-
föngum og öllum aðbúnaði, og vil ég til
samanburðar lýsa einum barnaleikvelli
í London.
Leikvöllur þessi er skammt frá Kings
Cross. Það, sem fyrst vakti athygli
mína, var vaðtjörn, sem börnin virtust
una sér vel í. Voru sum börnin í sund-
fötum, en svo voru önnur, sem aðeins
fóru úr sokkunum, og þarna léku þau
sér í ýmsum leikjum, sem voru við hvers
hæfi, og af andlitum þeirra ljómaði
sæla og ánægja. Þar voru og sólskýli,
grasfletir, rólur, sem tóku 15—20 börn.
Karlmenn gættu barnanna í leikjum
þeirra og höfðu stjórn á öllu.
Matur og kaffi var á vissum tíma og
borðuðu þá þau börn, sem nesti höfðu.
Börnin koma með mat, því að eins og
gefur að skilja er tíminn langur, sem
þau una þarna.
Getum við íslendingar ekki gert meira
fyrir börnin en orðið hefir? Það hafa
að vísu á síðastliðnum árum verið
byggðir leikvellir, en þeir eru að mestu
snauðir að leikföngum, sem börnin
myndu una sér við.
Það væri æskilegt, að stjórnir þær,
sem hafa með slíkt að gera, vildu taka
til athugunar uppsetningu á fullkomn-
ari leikföngum, og vildi ég mega nefna
rólur, sem tækju fleiri í einu, sólskýli
og rennur, sem hægt væri að ganga upp
í þar til gerðum stiga, sezt efst á efri
enda og rennt sér niður með miklum
hraða.
Það væri æskilegt að taka til athug-
unar, hvað hægt er að gera fyrir börn-
in, svo að leikvöllur þeirra gæti orðið
fagur og vistlegur. Eins langar mig að
endingu að stinga upp á, að gera leik-
völl í suðurhluta Hljómskálatúnsins.
Þar er sólríkt og mundi að sjálfsögðu
verða mjög eftirsóttur af börnum bæj-
arbúa.
Það þarf að gera meira fyrir börnin
en gert hefir verið, svo að þau hafi ann-
an stað að aðhyllast en götur bæjarins,
þar sem hættur og allskonar freistingar
eru í hverju spori. Þetta er þýðingar-
meira atriði en margur heldur, en það
útheimtir tíma og peninga.
Margt fleira mætti um þetta ræða, en
Björgv. Kr. Grímsson.