Stétt með stétt - 01.05.1939, Qupperneq 43
V
Sjálfstæðisverkamenn vona, að nú
aukist atvinnurekendum og fram-
kvæmdamönnum kjarkur og áræði til
nýrra átaka og framkvæmda til auk-
innar atvinnu og hagsældar fyrir verka-
menn. Sjálfstæðisverkamenn skilja, að
hagur atvinnurekandans er um leið hag-
ur fyrir verkamanninn, því það eykur
honum von um mikla vinnu. Með langri,
stöðugri vinnu verður árskaup verka-
mannsins lífvænlegt. Hitt hefir minna
að segja hvert tímakaupið er, ef engin
vinna fæst.
Við treystum því, Sjálfstæðisverka-
menn, að einlægni fylgi þessu breytta.
viðhorfi Framsóknarflokksins og Al-
þýðuflokksins, og erum fúsir til að
gleyma öllum mótgerðum við okkur. Við
erum fúsir til samstarfs með Alþýðu-
flokknum í verklýðsmálum, sé okkur
sýnd sanngirni.
En gegn niðurrifsöflum kommúnista
verða allir sannir íslendingar að rísa
sameinaðir og þurka þann smánarblett
af þjóðinni.
Sjálfstæðisflokkurinn hefir sýnt
styrkleika sinn á þessum þrenginga-
tímum. Þangað sækir þjóðin nú þrek
og væntir forustu. Við Sjálfstæðisverka-
mennirnir höfum verið öruggir og ró-
legir. Við höfum treyst foringjum okk-
ar, og þeim fjölgar ört verkamönnun-
um, sem fylgja okkur þar að málum.
Sjálfstæðisflokkurinn vill vera flokk-
ur allra stétta, vera þjóðflokkur, og
hann er það. Hann er engu síður flokk-
Systrastapi
ur hinna smáu en þeirra stóru. Hann
er flokkur okkar verkamannanna, og
þar er okkar málefnum bezt borgið.
í dag, 1. maí, er hátíðisdagur okkar
verkamanna. Þetta er í fyrsta sinn, sem
við Sjálfstæðisverkamenn höldum hann
hátíðlegan. Við hann tengjum við mikl-
ar og bjartar vonir um aukið sjálfstæði,
frelsi og framtak fyrir okkur.
íslendingar allra stétta, sameinist um
baráttuna fyrir frelsi og sjálfstæði
þjóðarinnar. Aukið atvinnu og athafna-
frelsi. Einhuga þjóð getur allt, sundr-
uð þjóð hlýtur að eyðileggjast.
Með Óðins kveðju.
Axel Guðmundsson.
Blái borðinn er alltaf beztur
25