Stétt með stétt - 01.05.1939, Síða 45
V
að vita hver maðurinn er — ekki bara
hvað hann er. „Embættið þitt geta allir
séð, en ert þú, sem ber það, maður?“
segir Einar Benediktsson. Það er engin
tilviljun, að mesta kraftaskáld Islend-
inga mótar hér þá spurningu, sem allt-
af leynist í íslenzkri þjóðarsál. Gull-
hnappar og titlatog hefir ekki villt okk-
ur sýn. Við höfum alltaf vitað, að „ef
að úr buxunum fógetinn fer og frakk-
anum svolitla stund“, þá er hann skap-
aður eins og þú og ég. Fógetinn hefir
nefnilega oft haft buxnaskipti fyrir
augunum á okkur. Sú „fjarlægð, sem
gerir mennina mikla“, er lítt hugsanleg
í þjóðfélagi, þar sem allir þekkja alla.
Þess vegna eru lítil líkindi til þess, að
nokkrum Islendingi takist að gera sig
að guði í augum þjóðarinnar.
Það, sem ég vildi með þessu sagt hafa,
er þetta: Við íslendingar höfum betri
skilyrði til þess að skilja hvern annan,
en nokkur önnur þjóð. Við höfum betri
tök til að meta hag hvers annars og að-
stöðu. Við þurfum ekki að berjast við
arfgenga hleypidóma, sem staðfesta
óbrúanlegt djúp milli stétta þjóðfélags-
ins. Við vitum að „lokun Selvogsbanka“
bitnar jafnt á þeim, sem ræður yfir
framleiðslutækjunum og hinum, sem
leggur fram hina líkamlegu vinnu. Við
vitum að sama blóðið rennur í æðum
verkamannsins og útgerðarmannsins,
bóndans og kaupmannsins, iðnaðar-
mannsins og ráðherrans.
Af öllu þessu ætti að mega ráða, að
harðvítug og illvíg stéttabarátta getur
ekki þrifist hér til lengdar. Kjörorð
sundrungarmannanna „stétt gegn stétt“
á sér ekki djúpar rætur í hugsunar-
hætti Islendinga. Þótt því hafi farið
fram um sinn, að nokkuð hafi skorizt
í odda, er engin ástæða til að ætla að
svo verði til langframa. Hjá ágreiningi
verður ekki komizt. En við höfum betri
skilyrði en allir aðrir til þess að jafna
ágreininginn með gagnkvæmum skiln-
ingi.
Af öllum flokkum þjóðarinnar er
Sjálfstæðisflokkurinn sá eini, sem ekki
er stéttaflokkur. Hann hefir tekið upp
kjörorðið „stétt með stétt“. Með því
hefir hann tekizt þann vanda á hendur
að vera jafnt flokkur verkamannsins
og atvinnurekandans. Og hann hefir til
þessa verið þeim vanda vaxinn. Fleiri
og fleiri verkamenn skipa sér daglega
undir merki Sjálfstæðisflokksins:
Stétt með stétt.
Árni Jónsson.
Sjálfstæðismenn og konur!
Sækið fundi og skemmtanir dagsins.
★
Útifundurinn við Varðarhúsið hefst
kl. iy4 e. h.
★
Skemmtunin í Gamla-Bíó hefst kl.
3 e. h. Aðgöngumiðar seldir frá
kl. 11 f. h. og kosta 1 krónu.
★
Barnadagsskemmtunin í Nýja-Bíó
hefst kl. 3 e. h. Aðgöngumiðar seldir
þar frá kl. 11 f. h. og kosta 50 aura.
★
Slkemmtunin að ’Hótel Borg hefst
kl. 9 e. h. Aðgöngumiðar seldir í
Varðarhúsinu uppi og kostis 2 krónur.
★
Kaupið merki Óðins; kosta 50 aura.
★
Kaup|ið stærsta rit dagsÆns |„Stétt
með stétt“, kostar 1 krónu.
★
27