Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.12.2022, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 14.12.2022, Qupperneq 2
Giljagaur kom í heimsókn Aukin krafa í samfélaginu um dýrar jólagjafir veldur ónotum hjá einstæðri móður á Akureyri. Þung áskorun að þurfa að hugsa um hverja einustu krónu. bth@frettabladid.is AKUREYRI Einstæð móðir á Akureyri segir að samfélagskröfur um dýrar gjafir og annan aukakostnað fyrir jólin séu sligandi áskorun. Allstór hluti þjóðarinnar kvíði að geta ekki uppfyllt óskir barna sinna um jólin. „Einstætt foreldri þarf alltaf að hugsa um hverja einustu krónu,“ segir Þórlaug Þorfinnsdóttir, leik- skólakennari og móðir tveggja drengja. Þótt f lestir hlakki til jólanna og sjái fyrir sér andstæðu depurðar- innar þegar hátíðin gengur í garð er einnig til allstór hópur sem upp- lifir desember sem erfiðan tíma. Ein ástæða þessa er vaxandi krafa í samfélaginu um „dýr jól“ að sögn Þórlaugar. Hún segir að synir hennar séu nægjusamir og sparsamir en þeir beri sig saman við félaga sína er kemur að jólagjöfum og jóla- haldi. Sem leikskólakennari finni hún einnig að ung börn geri æ meiri kröfur. „Það er of boðslegur jólagjafa- þrýstingur núna í samfélaginu.“ Þórlaug leigir íbúð í blokk og greiðir um 180.000 krónur í mánað- arleigu. Hún fær meðlag, samanlagt um 87.000 með báðum drengjunum á mánuði. Meðlagið dugar skammt, einkum þegar mikill jólakostnaður bætist við. „Drengirnir mínir eru báðir í íþróttum og því fylgir mikill kostn- aður, ekki síst vegna ferðalaga. En ég set það aldrei fyrir mig, því strák- arnir mínir eru alltaf í forgangi.“ Þórlaug viðurkennir að loka sig stundum af og eiga erfiðar stundir út af fjárhagsáhyggjum. Tíminn nú sé sérlega viðkvæmur. „Ég fæ stundum sting í magann, f inn kvíðann koma. Hvernig á maður að fara að því að veita drengj- unum allt það besta sem ég óska þeim?“ Stundum hugsi hún hve gott það væri að eiga maka, fjárhags- lega, félagslega og uppeldislega. Því kerfið geri í raun ráð fyrir tveimur fyrirvinnum. „Ég er örugglega ekki ein um að hugsa: Guð minn góður, nú er kom- inn desember og ég þarf að eyða öllum þessum peningum, sem ég á ekki.“ Þórlaug telur að hækka þurfi meðlag og barnabætur, einkum ef ekki fylgi annar fjárstuðningur frá því foreldri sem ekki fer með forsjá. Þrátt fyrir áskoranir hlakkar hún og drengirnir hennar til jólanna. „En þetta líf er ekki alltaf dans á rósum.“ n Segir aukakostnað vegna jólanna valda kvíðasting Þórlaug Þorfinnsdóttir leiskólakennari segir að aukin krafa sé í samfélaginu um dýrar jólagjafir. Það geti valda kvíða hjá foreldrum. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN bth@frettabladid.is NEYTENDUR Framkvæmdastjóri Bónuss segir mikið um að neytendur hringi eða sendi tölvupósta til að fá upplýsingar um fyrirtæki og vöru- merki vegna kröfu um sniðgöngu á tilteknum vörum. Sama á við um Hagkaup. Verkalýðsforkólfar eru meðal hundraða Íslendinga sem hafa deilt á Facebook brýningu um að neyt- endur hundsi vörur frá Langasjó, félaginu sem rekur Ölmu, vegna leiguhækkana. Um ræðir vörumerki svo sem Freyju, Ali og Matfugl. „Enn sem komið er sjáum við ekki mikil áhrif af þessari brýningu, en maður veit ekki hvað gerist, jóla- ösin er ekki hafin,“ segir Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri Bónuss. Hann segir að eigi að síður hafi orðið viðbrögð. Mikið sé hringt og spurt um söluna á þessum vörum. „Bónus er ekki í pólitík og mun aldrei verða en neytandinn tekur upplýsta ákvörðun og við þurfum að haga okkar innkaupum í samræmi við það,“ segir Guðmundur. Sigurður Reynaldsson, fram- kvæmdastjóri Hagkaups, segir of snemmt að spá fyrir um áhrifin. „Hins vegar hefur verið nokkuð um fyrirspurnir þar sem viðskipta- vinurinn vill vita meira um ákveðn- ar vörur og hvaðan þær koma. Málið hefur því vakið athygli,“ segir Sigurður. n Mikið spurt um sniðgönguvörur Guðmundur Marteinsson, framkvæmda- stjóri Bónuss Ég er örugglega ekki ein um að hugsa: Guð minn góður, nú er kominn desember og ég þarf að eyða öllum þessum peningum, sem ég á ekki. Þórlaug Þorfinnsdóttir, leiskólakennari Giljagaur kom í heimsókn á Þjóðminjasafnið í gær og söng með börnunum sem voru ánægð að sjá hann. Nú eru jólasveinarnir farnir að tínast til byggða, í nótt kom Stúfur og í kvöld kemur Þvörusleikir. Það er því um að gera fyrir öll börn að vera stillt og góð svo þau fái ekki kartöflu í skóinn. FRÉTTABLAÐIÐ/ANOTON BRINK benediktarnar@frettabladid.is DÓMSMÁL Sakborningum í hryðju- verkamálinu var sleppt úr gæslu- varðhaldi í gær eftir að Landsréttur felldi úrskurð héraðsdóms um áframhaldandi gæsluvarðhald úr gildi. Úrskurður Landsréttar byggir á því að í geðmati segir að menn- irnir séu hættulausir sjálfum sér og öðrum. Einar Oddur Sigurðsson, verj- andi annars sakborningsins, segir að með úrskurðinum megi sjá að Landsréttur sé ósammála mati lög- reglu og héraðsdóms um að menn- irnir uppfylli skilyrði hegningarlaga um að teljast hættulegir. „Að mínu mati dregur þetta að miklu leyti úr þessum sakargiftum á hendur mönnunum,“ segir Einar. „Það hljóta að vera uppi núna vangaveltur hjá héraðssaksóknara um hvort þeir ætli að standa við þessa ákæruliði sem varða hryðjuverkin. Þetta er stórt atriði og það verður fróðlegt að fylgjast með,“ segir Einar. n Tveir meintir hryðjuverkamenn lausir úr haldi Einar Oddur Sigurðsson, lögmaður 2 Fréttir 14. desember 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.