Fréttablaðið - 14.12.2022, Blaðsíða 10
Eftirspurnin er svo
mikil að þetta er eigin-
lega nauðsynlegt.
Eyjólfur
Vestmann
Ingólfsson,
rekstrarstjóri
Inter Continen-
tal Aviation
*Verðskrá Airbus og Boeing samkvæmt sögulegum verðum fyrir A320neo og Boeing 737 Max.
Heimildir: Bloomberg, Airbus, Boeing, Simple Flying © GRAPHIC NEWS
Kínverjar framleiða sína fyrstu farþegaþotu
Farþegaöldi
Hámarksdrægi
Pantanir í vinnslu
Flugvélar framleiddar
Verð (milljarðar ISK)*
158–192
5.550 km
Meira en 1.100
Ekki vitað
14,2
140–244
8.740 km
6.200
10.616
15,9
137–230
7.129 km
3.590
11.025
17,5
Comac C919
Samanburður ugvéla
Kínverska vélin er ekki eins hagkvæm og Airbus/Boeing hvað varðar eldsneytisnýtingu og drægi.
Airbus og Boeing hafa samt áhyggjur af að C919 muni draga úr pöntunum til þeirra innan Kína.
Airbus
A320
Boeing
737
China Eastern Airlines varð fyrsta ugfélagið
til að fá aenta Comac C919-ugvél og markar það
mikil tímamót í samkeppni Kína við Airbus og Boeing.
COMAC C919: Birgjar
Flugriti
General
Electric (GE)
Lendingar-
búnaður
Liebherr
Aerospace
Hrey¡ar
CFM International
(Samvinna á milli
GE og Safran)
Dekk, hemlar
Honeywell
Stél, vængir Aviation
Industry Corporation
of China (AVIC)
Álið í skrokki
vélarinnar
Arconic
Samskipta- og
leiðsöguker¤
Rockwell
Collins
Sérfræðingur í
flugmálum segir
C919-farþega-
þotuna vera
tilraun til að
auka sjálfstæði
Kínverja í flug-
vélaframleiðslu.
FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
Fyrsta kínverska farþega-
þotan var afhent fyrir helgi
og mun áætluð jómfrúarferð
hennar fara fram næsta vor.
Viðskiptaáætlun framleið-
anda þotunnar er metnaðar-
full en framleiðandanum
gæti reynst erfitt að keppa
við Boeing og Airbus.
Í seinustu viku varð China Eastern
Airlines fyrsta f lugfélagið í heim-
inum til að fá afhenta Comac C919-
farþegaþotu. Flugvélin er sú fyrsta
sinnar tegundar sem framleidd er í
Kína og markar hún mikil tímamót
í samkeppni Kínverja við Airbus og
Boeing.
Þotan er smíðuð af kínverska
ríkisrekna fyrirtækinu Comac
og er hún hugsuð sem eins konar
keppinautur við Airbus A320neo og
bandarísku Boeing 737 Max f lug-
vélarnar. Vélin á rætur að rekja til
ársins 2008 þegar framleiðandinn
Comac var stofnaður.
Það hefur ekki enn fengist stað-
fest hve miklum fjármunum kín-
verska ríkið hefur veitt í þetta
verkefni, en sérfræðingar telja það
vera á milli 49 til 72 milljarðar
Bandaríkjadala. Xi Jinping, forseti
Kína, hefur lagt mikla áherslu á að
þjóðin framleiði sína eigin farþega-
þotu en fram til þessa hefur Boeing
verið helsti söluaðili á kínverskum
flugmarkaði.
Boeing býr yfir meira en 100 ára
reynslu í f lugiðnaði en Kínverjar
byrjuðu aftur á móti ekki að prófa
sig áfram í þeim geira fyrr en á
áttunda áratug seinustu aldar. Á
tíunda áratugnum fór eftirspurn
eftir f lugferðum í landinu ört vax-
andi og árið 2017 framleiddi Boeing
meira en 200 nýjar f lugvélar fyrir
kínverska markaðinn.
Á sama ári hófu hins vegar
bandarísku og kínversku ríkis-
stjórnirnar viðskiptastríð og í fram-
haldi af því stöðvuðu Kínverjar
allar nýjar pantanir frá Boeing. Með
þeirri ákvörðun opnaðist gluggi
fyrir innlendan framleiðanda.
Hönnunin á Comac C919-vél-
inni er ekki mjög frábrugðin hinni
sígildu Boeing 737 Max. Báðar eru
með einn gangveg, eru jafn breiðar
og rúma svipaðan farþegafjölda.
Hreyflar beggja f lugvéla eru einnig
mjög svipaðir en þeir eru frá fyrir-
tækinu CFM, sem er sameiginlegt
verkefni bandaríska fyrirtækisins
General Electric og hins franska
fyrirtækis Safran.
Comac C919 er smíðuð í Kína en
reiðir sig engu að síður á erlenda
varahluti og hefur það skapað
ákveðin vandamál fyrir framleið-
andann. Sérfræðingar innan f lug-
geirans segja að alþjóðlegir sam-
starfsaðilar hafa verið hikandi við
Kínverjar svífa inn á flugmarkaðinn
Helgi Steinar
Gunnlaugsson
helgisteinar
@frettabladid.is
að afhenda hátæknibúnað til kín-
verskra fyrirtækja sökum ótta við
brot á hugverkarétti. Ríkisstjórn
Bandaríkjanna hefur í gegnum
tíðina ásakað Kína um að stela
hátækniupplýsingum og var Comac
um tíma sett á svartan lista hjá
Bandaríkjastjórn yfir fyrirtæki sem
sögð voru styðja kínverska herinn.
Annað sem gæti valdið Comac
erfiðleikum í framtíðinni er viðhald
á C919-flugvélunum. Framleiðend-
ur eins og Boeing og Airbus hafa í
gegnum árin byggt upp alþjóð-
legt tengslanet en það gæti reynst
alþjóðlegum flugfélögum erfitt að
gera við sínar Comac-þotur ef allar
viðgerðir þurfa að fara fram í Kína.
Eyjólfur Vestmann Ingólfsson,
rekstrarstjóri hjá Inter Continental
Aviation, segir að innleiðing Comac
á f lugmarkað muni ekki koma til
með að hafa neikvæð áhrif á sam-
keppnisaðila. Fyrirtækin Boeing,
Airbus og Embraer hafa einfaldlega
ekki náð að anna gríðarmikilli eft-
irspurn eftir minni farþegaþotum
á alþjóðavísu.
„Ég held að þetta sé mjög gott
fyrir framboðið á þessum markaði.
Eftirspurnin er svo mikil að þetta
er eiginlega nauðsynlegt. En svo er
auðvitað punktur líka að Kínverjar
eru með þessu að gera tilraun til
að vera ekki eins háðir Evrópu og
Bandaríkjunum með flugvélafram-
leiðslu,“ segir Eyjólfur. n
Nana Akufo-Addo, forseti Gana, hefur verið gagnrýndur vegna viðbragða
sinna við efnahagskreppu landsins. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
helgisteinar@frettabladid.is
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn til-
kynnti í gær að hann hefði samið
við ríkisstjórn Gana um 426 millj-
arða króna neyðarlán, en vestur-
afríska þjóðin glímir við mikla
efnahagskreppu um þessar mundir.
Ríkisstjórn Gana, sem er þegar
mjög skuldsett, stendur frammi
fyrir sögulega hárri verðbólgu, um
40 prósentum. Ganverski gjaldmið-
illinn, cedi, hefur einnig tekið á sig
gríðarlegt högg í kjölfar stríðsins í
Úkraínu.
„Það gleður mig mjög að tilkynna
að AGS og ganverska ríkisstjórnin
hafa samið um þriggja milljarða
dala lán sem dreift verður yfir
þriggja ára tímabil,“ segir Stephanie
Roudet, yfirmaður sendinefndar
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í Gana.
Talsmenn AGS segjast vonast eftir
því að lánið muni hjálpa Gana að
endurheimta stöðugleika og sjálf-
bærni í skuldaferli sínu. Samkomu-
lagið verður yfirfarið í Washington
þar sem framkvæmdastjórn sjóðs-
ins mun veita lokasamþykki sitt
fyrir því.
Nana Akufo-Addo, forseti Gana,
hefur mátt þola mikla gagnrýni
vegna viðbragða sinna við efna-
hagskreppu landsins og þá sérstak-
lega fyrir það að leita aðstoðar hjá
Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. For-
setinn fullyrti fyrir fjórum árum að
þjóð hans þyrfti ekki lengur á utan-
aðkomandi aðstoð að halda.
Íbúar Gana hafa þurft að búa við
síhækkandi verðlag og óttast nú að
lánið muni neyða ríkisstjórnina til
að grípa til íþyngjandi niðurskurð-
araðgerða.
Efnahagur landsins hefur verið
aðkrepptur frá því í byrjun árs 2022
og hækkaði verðbólga meðal ann-
ars úr 13,9 prósentum í janúar í 37,2
prósent í september.
Sumir sérfræðingar segja aftur
á móti að opinberar tölur standist
ekki og að raunveruleg verðbólga
gæti jafnvel verið í kringum 98 pró-
sent. Verð á bensíni og dísilolíu í
landinu hefur til að mynda hækkað
um 88,6 prósent og 128,6 prósent og
gjald fyrir almenningssamgöngur
hefur hækkað um 100 prósent.
Gana er mikill gull- og kakó-
framleiðandi og býr yfir miklum
gasforða, en greiðslubyrði lána
hefur rokið upp úr öllu valdi. Þar
að auki hefur stríðið í Úkraínu haft
gríðarlega neikvæð áhrif á efnahag
þjóðarinnar, sem og stóran hluta
Vestur-Afríku. n
Gana og AGS sættast á yfir fjögur hundruð milljarða neyðarlán
10 Fréttir 14. desember 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMARKAÐURINN FRÉTTABLAÐIÐ 14. desember 2022 MIÐVIKUDAGUR