Fréttablaðið - 14.12.2022, Page 16

Fréttablaðið - 14.12.2022, Page 16
Nýlega kom út þriðja bókin um íslensku ofurhetjurnar Land- verðina. Bókin, sem heitir Landverðirnir & Kafteinn Ísland: Fyrstu íslensku ofurhetjurnar, er með breyttu sniði í ár þar sem hún er bæði lita- og þrautabók með söguþræði segir Úlfar Svansson, einn af rithöfundum bókarinnar. „Í þessari æsispennandi lita- og þrautabók sameinast Landverð- irnir og Kafteinn Ísland í fyrsta skipti. Saman takast þau á við að berjast við illmenni landsins, á borð við Tjöruna, með hjálp les- andans sem þarf að leysa þrautir og sýna eigin ofurkrafta í verki.“ Í bókinni er lesandanum einnig boðið upp á að búa til sínar eigin ofurhetjur og illmenni. „Land- verðirnir vilja sjá listamanninn sem býr innra með okkur öllum, hver veit nema að þín teikning verði með í næstu bók um Land- verðina. Lesendur geta litað sínar uppáhalds íslensku ofurhetjur, hjálpað þeim að leysa þrautir og stöðvað illmenni bókarinnar ásamt því að búa til sínar eigin ofurhetjur. Þetta verkefni snýst um að gera öðrum gott, því það er það besta sem við getum gert.“ Hugrekki og vinátta grunnurinn Fyrri tvær bækurnar um Land- verðina komu út árin 2020 og 2021 og heita Landverðirnir – Atlas og Avion og Landverðirnir 2: Íra. „Landverðirnir eru hópur af íslenskum ofurhetjum sem eiga það allar sameiginlegt að bera ofurkraft íslensku náttúrunnar. Atlas stjórnar vatninu, Íra stjórnar ísnum, Avion stjórnar vindinum og illmennið Azar stjórnar eld- inum. Markmið Landvarðanna er að stöðva Azar og hamfarateymi hans sem hafa valdið náttúru- hamförum á Íslandi. Til þess að takast það þurfa þau að sýna hugrekki og vináttu. Það þarf að standa saman til þess að láta gott af sér leiða.“ Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is, s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. Sterkur hópur á bak við Landvarðabækurnar Upphafið af bókunum um Land- verðina má rekja til æskuvinanna Úlfars Konráðs Svanssonar og Dags Lárussonar frá Hafnarfirði sem byrjuðu að skrifa sögurnar um Landverðina árið 2019 eftir að hafa séð Tom Holland mæta sem Spider Man upp á barnaspítala í Banda- ríkjunum. „Hugmyndin hjá strákunum var að skapa íslenskar ofurhetjur sem gætu látið gott af sér leiða hér á landi,“ segir Ólíver Þorsteinsson, einn af höfundum bókarinnar og útgefandi hennar. „Fannar Georg kom næstur inn í teymið með sinn hæfileika sem listamaður og teikn- ari. Hann hannaði ofurhetjurnar út frá veikum hugmyndum rithöf- undanna og úr varð teymið Land- verðirnir. Ég sjálfur er eigandi Leó bókaútgáfu sem gefur bækurnar út og kom sterkur inn í teymið fyrir þessa þriðju bók okkar þannig að við gátum gefið hana út í tæka tíð. Listamaðurinn Arnar Marvin myndskreytti svo lita- og þrauta- bókina ásamt Fannari Georg.“ Landverð- irnir eru hópur af íslenskum ofur- hetjum sem eiga það allar sameigin- legt að bera ofurkraft íslensku náttúr- unnar. Úlfar Svansson Láta gott af sér leiða Allur hagnaður af litabókinni rennur til Barnaspítala Hringsins að sögn þeirra félaga eins og af fyrri bókunum tveimur. „Við höfðum enga sérstaka tengingu áður við Barnaspítala Hringsins en vildum búa til íslenskar ofurhetjur sem væru bæði hetjur í bókunum og einnig utan þeirra. Fyrsta árið gáfu Landverðirnir Barnaspítal- anum hálfa milljón og árið 2021 voru keyptar Playstation 5 leikja- tölvur ásamt tölvuleikjum og leik- föngum fyrir börnin á spítalanum. Við stefnum alltaf á að stækka og geta á sama tíma gefið meira af okkur. Vonandi næla sem flestir sér í eintak af nýju bókinni og taka þannig þátt í þessu skemmtilega ævintýri með Landvörðunum og Kafteini Ísland.“ Björt framtíð Framtíðin er björt hjá Landvörð- unum, segja þeir Úlfar og Ólíver. „Það bætist stöðugt við persónu- flóru bókanna og við erum strax tilbúnir með næstu bók þar sem við kynnum tvo nýja karakt- era til leiks, systkinin Flóru og Agor sem stjórna gróðrinum og steinum landsins. Á sama tíma eru Landvarðaleikföng á leiðinni í takmörkuðu upplagi sem lista- konan Hildur Hörn hefur hannað og handmálað frá grunni. Þetta er bara rétt að byrja hjá okkur í Landvörðunum.“ n Nánari upplýsingar á Facebook (@ landverdirofficial). 2 kynningarblað A L LT 14. desember 2022 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.