Fréttablaðið - 14.12.2022, Side 17
Ég mæli hiklaust
með mjólkurþistli
yfir hátíðarnar. Ekki
bara fyrir þá sem ætla að
gera vel við sig í mat og
drykk heldur bara flesta.
Hlynur hefur sett stefnuna á að komast á HM og Ólympíuleikana. MYND/AÐSEND
Hlynur Andrésson hafnaði í
55. sæti af 83 keppendum á
EM í víðavangshlaupi sem
fram fór í nágrenni Tórínó
á Ítalíu á sunnudaginn.
Hlynur hljóp rúma 10 kíló-
metra á 31,53 mínútum.
gummih@frettabladid.is
„Ég varð í 39. sæti á þessu móti
árið 2019. Ég hélt að ég myndi gera
töluvert betur núna en sú varð ekki
raunin. Ég var svolítið svekktur
en þegar öllu er á botninn hvolft
þá er ég að stefna á aðra hluti og
þetta hlaup, sem ég tók þátt í, var
bara svona til að vera með,“ segir
Hlynur.
Það er margt spennandi á döf-
inni hjá Hlyni en í byrjun nýs árs
fer hann til Afríkuríkisins Nami-
bíu í fjögurra vikna æfingabúðir til
undirbúnings fyrir Sevilla-mara-
þonið sem verður haldið á Spáni
19. febrúar.
Hleypur sitt annað maraþon
Hlynur tekur þátt í sínu öðru
maraþoni á ferlinum í Sevilla
en í mars í fyrra setti hann nýtt
glæsilegt Íslandsmet í sínu fyrsta
maraþoni sem fram fór í Dresden í
Þýskalandi. Hlynur hljóp mara-
þonið á tímanum 2:13,37 klukku-
stundum og sló met Kára Steins
Karlssonar um þrjár og hálfa
mínútu. Hann hafnaði í 5. sæti í
hlaupinu.
„Að undirbúa sig fyrir maraþon
er töluvert öðruvísi heldur en að
undirbúa sig undir víðavangs-
hlaup og nú er ég kominn á fullt
að undirbúa mig fyrir maraþonið
í Sevilla. Draumamarkmið mitt
á ferlinum er að hlaupa maraþon
undir 2,10 klukkustundum. Ég veit
að ég þarf mikinn grunnhraða til
þess og ég vildi hlaupa hratt fyrst í
styttri vegalengdunum áður en ég
myndi hella mér út í maraþonið.
Ég er orðinn 29 ára gamall og
það er kominn tími á að einbeita
sér meira að maraþoninu,“ segir
Hlynur. Hann á einnig Íslands-
metið í 10 kílómetra götuhlaupi en
hann setti metið í janúar á þessu
ári, 29,24 mínútur. Hlynur kom
fyrstur í mark í hálfu maraþoni í
Reykjavíkurmaraþoninu í ágúst
en tími hans var 1:08,56 klukku-
stundir.
Hlynur hefur verið búsettur á
Ítalíu í eitt ár þar sem hann æfir
með atvinnumönnum.
„Það er ekki hægt að æfa fyrir
maraþon og ætla sér að hlaupa
undir 2,10 klukkustundum með
því að vinna 40 tíma á viku. Í dag
er standardinn það hár að þú þarft
að vera atvinnumaður í því sem
þú gerir. Það er gott að vera með
æfingafélögum og veðuraðstæður
á Ítalíu eru töluvert betri en heima
á Íslandi og það er miklu ódýrara
að lifa hér. Ég tel þetta vera einu
leiðina sem er í boði fyrir mig til
að eiga möguleika á að komast á
Ólympíuleikana. Það hefur verið
svona drifkrafturinn af hverju
maður hefur haldið sig í sportinu
af þessum krafti,“ segir Hlynur.
Stefnir á HM og Ólympíuleikana
Hlynur ætlar að taka þátt í 10
kílómetra götuhlaupi í Bolzano á
Ítalíu á gamlársdag og heldur síðan
til Namibíu þar sem hann leggur
lokahönd á undirbúning fyrir
maraþonhlaupið í Sevilla.
„Maður fær vel borgað fyrir að
taka þátt í þessum götuhlaupum
og ég er bara að taka þátt í þessu
hlaupi fyrir peningaverðlaunin.
Í Sevilla ætla ég að reyna við lág-
mörkin fyrir heimsmeistaramótið
og Ólympíuleikana. HM fer fram
í Búdapest í Ungverjalandi næsta
sumar og ári síðar verða Ólympíu-
leikarnir haldnir í París. Ég fer
í fjögurra vikna æfingabúðir til
Namibíu í byrjun janúar. Þar get
ég æft í góðu sumarveðri og í meiri
hæð sem gefur líkamanum kleift
að aðlagast erfiðari aðstæðum.
Þegar ég kem til baka frá Namibíu
hef ég tvær vikur til ná mér aftur
ferskum fyrir maraþonið í Sevilla,“
segir Hlynur. n
Á leið til Afríku í æfingabúðir
Í Sevilla ætla ég að
reyna við lágmörk-
in fyrir heimsmeistara-
mótið og Ólympíuleik-
ana. HM fer fram í
Búdapest næsta sumar
og Ólympíuleikarnir
verða haldnir í París ári
síðar.
Hlynur Andrésson
Hrafnhildur Hákonardóttir
hefur tekið Mjólkurþistil frá
ICEHERBS um árabil og segir
bætiefnið vera daglegan
gleðigjafa. Mjólkurþistillinn
er þekktur fyrir hreinsandi
áhrif og það veitir svo
sannarlega ekkert af því yfir
hátíðarnar.
Hrafnhildur hefur þjáðst af slitgigt
síðastliðin sex ár og segir mjólkur-
þistilinn hafi bætt líðan sína til
muna. Hún tekur líka D-vítamín,
Magnesíum með fjallagrösum,
Astaxanthin og stundum fjalla-
grös, allt frá ICEHERBS.
„Það er nú kannski svolítið pjatt-
að hjá mér, en ég heillaðist fyrst af
pakkningunum en er nú aðallega
hrifin af þeim því bætiefnin frá
ICEHERBS eru náttúruleg og hrein.
Allar upplýsingar eru á íslensku og
boxin fara vel í eldhússkúffunni
og ofan í mig. Það er auðvelt að
finna þessi vítamín í hillunum í
apótekum og verslunum og ég veit
hvað þau innihalda,“ segir Hrafn-
hildur.
Hjálpar lifrinni
„Ég er slæm af slitgigt og finn
fyrir verkjum í hálsliðum, baki,
höndum og fótum. Ég tek verkja-
lyf oftar á veturna en sumrin því
kuldinn fer alls ekki vel í gigtina.
Vinur minn mælti með mjólkur-
þistli með verkjalyfjum því hann
hefur hreinsandi virkni á líkam-
ann og hjálpar lifrinni að hreinsa
út óæskileg efni. Mjólkurþistillinn
hefur gert sitt gagn.
Ég veit það vegna þess að ég fer á
þriggja mánaða fresti í blóðprufu
til að mæla lifrargildi innkirtla
og annarra kerfa. Ég er enginn
unglingur en gildin eru alltaf í
góðu lagi.
Ég tek tvö hylki af ICEHERBS
Mjólkurþistli á morgnana mjög
samviskusamlega og hann fer
alltaf með mér í ferðalög.“
Ómissandi yfir hátíðarnar
Jólin eru alveg að koma með öllum
sínum freistingum, reyktu kjöti,
konfekti, smákökum, desertum, ís
og víni. „Það er erfitt að sniðganga
þennan góða mat þó allir viti að allt
þetta gúmmulaði sé ekkert sérstak-
lega gott fyrir kerfið. En það þarf nú
stundum að njóta og leyfa sér. Ég
hryn nú alveg í það í mat og drykk
en þá bæti ég við tveimur hylkjum
af mjólkurþistli fyrir svefn. Þetta
tryggir betri svefn hjá mér og ég
er orkumeiri daginn eftir þar sem
líkaminn er ekki að ströggla við allt
það sem ég innbyrði daginn áður.
Í stuttu máli sagt þá líður mér
betur í líkamanum þegar mjólkur-
þistillinn er með mér og ég finn að
líkaminn er í betra jafnvægi. Ef mér
líður vel í líkamanum þá verður
myrkrið, kuldinn, stressið og allt
annað mun bærilegra.
Ég mæli hiklaust með mjólkur-
þistli yfir hátíðarnar. Ekki bara
fyrir þá sem ætla að gera vel við sig
í mat og drykk heldur bara flesta.
ICEHERBS Mjólkurþistillinn með
íslenskum fjallagrösum hjálpar
til við að hreinsa líkamann af
umframefnum sem safnast
fyrir í lifrinni og líkam-
anum.“
Náttúruleg hreinsun
ICEHERBS Mjólkurþist ill
inniheldur hreinan
mjólkurþistil og
íslensk fjallagrös.
Mjólkurþistill
inniheldur virka
efnið sylimarin
sem er þekkt fyrir að
hafa góð áhrif starfsemi
lifrar og nýrna. Efni úr
mjólkurþistli á að hjálpa lifrinni
við myndum nýrra lifrarfrumna
og er þannig náttúruleg hreinsun
fyrir lifrina. Þá hefur plantan
andoxandi virkni og hjálpar til
við að losa óæskileg efni út úr
líkamanum. Sumir nota mjólkur-
þistilinn þegar þeir hafa neytt
áfengis vegna hreinsandi áhrifa
hans. Íslensk fjallagrös eru þekkt
sem Gingseng Íslands og ekki
að ástæðulausu. Þau innihalda
betaglúkantrefjar sem eru þekktar
fyrir að auka þyngdartap, bæta
meltingu og styrkja þarmana.
Fjallagrös eru rík af steinefnum,
einkum járni og kalsíum, og bera í
sér fléttuefni sem hindra óæski-
legar bakteríur. Fjallagrös hjálpa
til við að draga úr bjúg og er þessi
hreinsandi blanda frábær fyrir
almenna desembergleði.
Íslensk og kröftug bætiefni
ICEHERBS framleiðir hrein og
náttúruleg bætiefni. Þar er lögð
áhersla á að virkni skili sér í
réttum blöndum og að eiginleikar
innihaldsefnanna viðhaldi sér að
fullu. Vörurnar eru framleiddar á
Íslandi og innihalda engin óþarfa
fylliefni. n
ICEHERBS fæst í öllum betri
matvöruverslunum, apótekum
og heilsuvöruverslunum og í vef-
verslun iceherbs.is.
Mjólkurþistill gerir lífið léttara um jólin
Hrafnhildur Hákonardóttir segist finna mikinn mun á sér eftir
að hún fór að taka ICEHERBS Mjólkurþistil. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
ALLT kynningarblað 3MIÐVIKUDAGUR 14. desember 2022