Fréttablaðið - 14.12.2022, Síða 22

Fréttablaðið - 14.12.2022, Síða 22
Það var norski landkönnuðurinn Roald Amundsen sem leiddi fyrsta leiðangurinn til að komast á suðurpól jarðar. Amundsen hafði upphaflega hugsað sér að verða fyrstur manna til að komast að norðurpólnum en hætti við eftir að amerísku landkönnuðirnir Frederick Cook og Robert Peary héldu því fram árið 1909 að þeir hefðu hvor um sig komist að pólnum. Amundsen beindi sjónum sínum því suður á bóginn fyrir leiðangur sem yrði mun erfiðari. Vegnar áhyggna af að bakhjarlar leið- angursins myndu draga stuðning sinn til baka þegar þeir heyrðu af breyttum áformum ákvað Amundsen að halda nýrri áætlun sinni leyndri. Ekki einu sinni áhöfnin vissi af því að ferðinni væri heitið að Suðurskautslandinu fyrr en skip þeirra, Fram, var farið úr höfn í Madeira í Portúgal. Þegar komið var til Suðurskauts- landsins 1910 settu pólfararnir upp búðir og undirbjuggu sig fyrir leiðang- urinn. Við fyrstu tilraun neyddist föru- neytið til að snúa til baka í búðirnar þar sem enn var miður vetur og kalt í veðri. Það var svo þann 19. október 1911 þegar Amundsen og fjórir förunautar hans lögðu af stað á fjórum sleðum með fimmtíu og tveimur hundum. Förin var löng og erfið en á endanum náðu Amundsen og félagar á suður- pólinn þar sem þeir settu niður norska fánann. Fjórum dögum síðar var förinni heit- ið aftur í búðirnar og náðu þeir þangað 25. janúar 1912. Þaðan var siglt til Ástr- alíu þar sem Amundsen tilkynnti um að för sín hefði heppnast. Hann vissi af leiðangri breska landkönnuðarins Ro- berts F. Scott sem hafði líka ætlað sér að verða fyrstur manna á pólinn. Teymi Scotts náði á pólinn fimm vikum á eftir norska teyminu en allir í föruneytinu létust á leiðinni til baka. Amundsen átti eftir að lenda í þó nokkrum ævintýrum í viðbót en hann hvarf árið 1928 þegar hann tók þátt í björgunaraðgerð í Norðuríshafi. „Aldrei hefur nokkur maður náð mark- miði sem er jafn þveröfugt óskum hans,“ sagði Amundsen eitt sinn um pólförina. „Svæðið í kringum norður- pólinn – djöfullinn hirði það – hafði heillað mig frá barnæsku og nú var ég hér á suðurpólnum. Gæti nokkuð verið brjálaðra?“ n Þetta gerðist: 14. desember 1911 Fyrstu menn stíga á suðurpólinn Roald Amundsen, landkönnuður. Hljómsveitin Fjaðrafok skemmtir gestum í Húsi máls og menningar í kvöld með slögurum frá þriðja áratug síðustu aldar. arnartomas@frettabladid.is Þriðji áratugur síðustu aldar virðist vera að sækja í sig veðrið þessa dagana eins og sjá má á öllum þeim Gatsby-partíum sem dúkkað hafa upp á samfélags- miðlum með tilheyrandi fjaðralengjum, hálsfestum og munnstykkjum. Hljóm- sveitin Fjaðrafok var stofnuð í kófinu í fyrra með það að markmiði að taka þátt í þessari bylgju og stígur á stokk í Húsi máls og menningar í kvöld. „Við erum að spila tónlist sem var vin- sæl á árabilinu 1920–1930, „the roaring twenties“,“ segir Katrín Guðnadóttir, söngkona Fjaðrafoks. Hópurinn kom upphaflega saman í fyrrasumar og fljót- lega hófst ráðabrugg um tónleikahald. „Vinkona mín, sem hafði mikinn áhuga á þessum áratug, fékk mig upphaflega til að taka þátt í þessu og þetta hefur verið mjög skemmtilegt.“ Ásamt Katrínu skipa sveitina Ari Agn- arsson á trommur, Ari Páll Kristinsson á kontrabassa, Magnús Pálsson á klarin- ett og Konstantín Shcherbak á banjólín. Katrín segir sveitina sækjast eftir slög- urum frá tímabilinu hvaðanæva, eins lengi og þeir séu skemmtilegir. „Mörg af þessum lögum voru gerð vin- sæl seinna meir af tónlistarfólki eins og Ellu Fitzgerald, svo við fórum aftur í tím- ann til að finna upphaflegu útgáfurnar af lögunum,“ segir hún. „Við viljum taka þetta í sama stíl og áður.“ Hvað er það við þennan áratug sem heillar fólk svona mikið? „Það er góð pæling, það er þessi djass og svo er þetta svo hresst og skemmti- legt,“ svarar Katrín. „Eftir Covid fór fólk að tengja við ýmsa atburði sem áttu sér stað fyrir hundrað árum síðan, eins og spænsku veikina og þess háttar erfið- leika. Það er kannski einhver nostalgíu- bylgja í gangi bara.“ Herlegheitin í kvöld verða aðrir tón- leikar Fjaðrafoks í Húsi máls og menn- ingar en þar fyrir utan hefur sveitin verið að spila á Gallerí Fold, árshátíðum og á götum Reykjavíkurborgar.  Stundum hefur verið fenginn liðsauki frá lindý- hopp-dönsurum til að taka skrallið upp á næsta plan. „Þetta eru svona dansar sem kannski ekki allir kunna svo það hefur verið gaman að fá lindýhopp-dansarana með. Þá hefur fólk ákveðið að tjútta með og dilla sér þótt það sé ekki með sporin á hreinu. Það er stemning í þessu.“ Tónleikar í Húsi máls og menningar í kvöld verða tvennir, þeir fyrri eru frá klukkan 16.30–17.30 og þeir seinni frá 18.00–19.00. Aðgangur er ókeypis. n Aldargamlir slagarar Hljómsveitin Fjaðrafok dúkkaði fyrst upp fyrir ári síðan. MYND/AÐDEND Það er kannski einhver nostalgíubylgja í gangi bara. 1136 Haraldur gilli Noregskonungur drepinn í Björgvin af Sigurði slembidjákni. 1287 Grandi milli Norðursjávar og grunns stöðuvatns í Hollandi gefur sig og veldur fimmta stærsta flóði sögunnar. 50.000 manns létu lífið en flóðið braut líka hafinu leið að Amsterdam sem eftir það gat þróast sem hafnarborg. 1890 Eyrarbakkakirkja vígð. Altaristafla hennar er eftir Lovísu Danadrottningu, máluð árið 1891. 1910 Vísir til dagblaðs í Reykjavík hefur göngu sína. Vísir og Dagblaðið sameinuðust í DV 26. nóvember 1981. 1912 Stórbruni á Akureyri. Tólf hús brunnu til ösku en enginn fórst. 1934 Golfklúbbur Reykjavíkur er stofnaður undir nafninu Golfklúbbur Íslands. 1935 Um mestallt Ísland geisar fárviðri og verður mikið manntjón. Tuttugu og fimm manns farast, síma- línur slitna niður og skemmdir verða á húsum. 1977 Ofviðri samfara stórflóði veldur tjóni víða á suður- strönd Íslands, til dæmis á Stokkseyri. Þetta voru talin mestu flóð á tuttugustu öldinni. 1989 Í Chile eru haldnar fyrstu lýðræðislegu kosning- arnar í sextán ár. 2003 Saddam Hussein finnst í byrgi nálægt Tikrit í Íran og er tekinn höndum af Bandaríkjaher. Merkisatburðir Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, Guðrún Hulda Hansen lést á hjúkrunarheimilinu Hlíð á Akureyri þann 9. desember síðastliðinn. Útför hennar fer fram miðvikudaginn 21. desember kl. 13.00 í Akureyrarkirkju. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabbameinsfélag Akureyrar. Viðar Hansen Eyjólfur Hannesson Jónbjörg S. Hannesard. Guðrúnard. Hannes Bjarni Hannesson makar og barnabörn Elskuleg móðir, tengdamóðir og amma, Elínborg Jóna Pálmadóttir sem lést á Landspítalanum í Fossvogi laugardaginn 10. desember verður jarðsungin frá Fossvogskapellu miðvikudaginn 21. desember kl. 13. Sóley Jónsdóttir Helgi Pétursson Fjóla Jónsdóttir Jón Ari Jónsson Lilja Jónsdóttir Kristóbert Fannberg Gunnarsson Jón Pétur, Hafþór, Arnbjörg Ella, Árný Lind og Hafdís Fannberg Elsku móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Anna Petersen lést á hjúkrunarheimilinu Hlévangi í Reykjanesbæ þriðjudaginn 6. desember. Útför hennar fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði mánudaginn 19. desember klukkan 15. Jón Hörður Hafsteinsson Guðfinna Ósk Kristjánsdóttir Lilja Hafsteinsdóttir Eiríkur Bragason Jóna Marý Hafsteinsdóttir Birgir Ómar Ingason barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur faðir okkar, afi og tengdafaðir, Gunnar Torfason verkfræðingur, lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli sunnudaginn 4. desember. Starfsfólkið á Skjóli fær innilegar þakkir fyrir góða umönnun á liðnum árum. Anna Gunnarsdóttir Jóhanna Jónsdóttir Laufey Gunnarsdóttir Nanna Dís Jónsdóttir Jóhann Heiðar Jóhannsson TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 14. desember 2022 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.