Fréttablaðið - 14.12.2022, Síða 28
ninarichter@frettabladid.is
Þann 30. nóvember síðastliðinn
barst tíu ára stúlku í Los Angeles
bréf frá Dýraeftirliti Los Angeles.
Bréfið innihélt svar við beiðni
barnsins, stúlku að nafni Made-
leine, um að halda einhyrning í
garðinum hjá sér.
Í bréfinu hlaut Madeleine kærar
þakkir fyrir að sýna framúrskarandi
ábyrga hegðun í tengslum við dýra-
hald. Formlegt samþykki var veitt
að uppfylltum eftirfarandi skil-
yrðum.
1. Að einhyrningurinn skuli hljóta
umönnun samkvæmt tíundu
reglugerð laga í Los Angeles um-
dæmi.
2. Að þarfir einhyrningsins séu í
öllu tilliti uppfylltar hvað varðar
aðgengi að sólarljósi, geislum
mánans ásamt reglulegu aðgengi
að regnbogum.
3. Eiganda er skylt að gefa ein-
hyrningnum vatnsmelónu, eftir-
læti einhyrninga, að minnsta kosti
einu sinni í viku.
4. Horni einhyrningsins skal
haldið við góða heilsu. Það feli í
sér að pússa hornið að minnsta
kosti mánaðar lega með mjúkum
klút.
5. Allt glimmer og gljáskraut sem
notað er á einhyrninginn skuli
vera í samræmi við reglugerðir, án
eiturefna og endurvinnanlegt.
Bréfinu fylgdi sérlegt útprentað
leyfi fyrir einhyrningahaldi, stimpl-
að og undirritað af Marciu Mayeda,
formanni stofnunarinnar. Þá var
tekið fram í bréfinu að hugsanlega
gæti reynst erfitt að finna einhyrn-
ing í ljósi þess hve sjaldgæfir þeir
væru, en þangað til gæti Madeleine
hugsað um lítinn tuskueinhyrning
sem bréfinu fylgdi. n
Bréfið sem stúlkan ritaði
Leyfið sem barst frá stofnuninni
Hlaut formlegt samþykki til að halda einhyrning
Einhyrn-
ingurinn
sem bréfinu
fylgdi.
Hinn fimm ára gamli Grettir
Thor Árnason vantar lítið upp
á til að ná að safna fyrir fram-
leiðslu á sínu eigin barnaefni
á Karolina Fund. Móðir hans,
Þórhildur Stefánsdóttir, segir
son sinn stórhuga.
odduraevar@frettabladid.is
„Hann er algjör dýrakall og á held
ég svona fimm hundruð dýr hérna
heima og hefur alltaf verið að búa
til sögur,“ segir Þórhildur Stefáns-
dóttir um fyrsta myndbandið sem
hún bjó til með syni sínum Gretti
Thor Árnasyni á YouTube.
Myndbandið var um Lilla Tígur
og vini hans og er um að ræða svo-
kallað stop motion-myndband.
„Hann var veikur heima og við
gerðum saman myndband sem var
nú bara upp á gamanið en svo eigin-
lega fengum við ekki frið,“ segir Þór-
hildur hlæjandi.
Viðbrögðin voru afar mikil og
myndbandið sló hreinlega í gegn.
„Þetta var líka rosalega krútt-
legt, enda fékk hann að
stjórna þessu alveg sjálfur
og handritið er pínu kostu-
legt,“ segir Þórhildur hlæj-
andi. Nú er búið að horfa
á Lilla Tígur yfir 4.000
sinnum.
„Ég var farin að
fá endalaust af fyrir-
spurnum um hvenær
næsta myndband með
Lilla Tígri kæmi. Sem ég
skil auðvitað mjög vel, þetta
virðist hafa slegið í gegn
enda er leikstjórinn, handritshöf-
undurinn og framleiðandinn fimm
ára strákur sem skilur hvað það er
sem krakkar vilja horfa á.
Þannig að við ákváðum bara að
slá til og henda í söfnun. Fyrsta
myndbandið var nefnilega gert á
frekar frumstæðan hátt, við tókum
upp hljóðið á iPhone-heyrnartól og
svona og eftir öll þessi viðbrögð og
þessa miklu eftirspurn eftir f leiri
myndböndum ákváðum við að slá
til, enda eru myndvinnsluforrit og
búnaður mjög dýr.“
Söfnun hófst á degi íslenskrar
tungu þann 16. nóvember síðast-
liðinn og lýkur á föstudag-
inn. Þórhildur er vongóð
um að nóg muni safnast
til að Grettir geti gert hið
minnsta tíu myndbönd
til viðbótar í tveimur
seríum.
Aðspurð hvort Grettir
fái ekki að ráða öllu við
gerð þáttanna segir Þór-
hildur hlæjandi að það
verði að sjálfsögðu þann-
ig.
„Hann auðvitað bara
leikur sér að þessu og
gerir þetta á sinn hátt
og veit að sjálfsögðu
ýmislegt um vináttu
og umhverfismál og svoleiðis en
ég hef kannski aðeins verið að ýta
honum í þá átt að hafa smá boð-
skap um vináttu, menningarheima
og umhverfismál í þessu,“ segir Þór-
hildur hlæjandi.
Sjálf hefur Þórhildur reynslu
af myndbandagerð. „En þetta er
merkilega einfalt. Það er líka ótrú-
lega gaman að verja tímanum svona
saman og fá að gera YouTube-mynd-
bönd með barninu sínu, frekar en til
dæmis þegar maður er að vinna við
þetta,“ segir Þórhildur. n
Fimm ára safnar
til að gera fleiri
þætti um tígur
Mæðginin eru
spennt fyrir því
að gera fleiri
myndbönd um
Lilla Tígur og
vonast til þess
að ná að ljúka
söfnuninni á
tilsettum tíma.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Ég var farin að fá
endalaust af fyrir-
spurnum um hvenær
næsta myndband með
Lilla Tígri kæmi.
ninarichter@frettabladid.is
Hegðun bandarísku poppstjörn-
unnar Britney Spears á samfélags-
miðlum heldur áfram að valda
heilabrotum meðal fylgjenda og
aðdáenda. Fyrir viku leit út fyrir að
Instagram-reikningi stjörnunnar
hefði verið eytt, en þar hefur hún
verið dugleg að deila nektarmynd-
um og dansmyndböndum sem
vakið hafa meiri furðu en hrifningu.
Þá hefur Britney ritað kraftmiklar
yfirlýsingar, ásakanir og f leira
í myndatextum við Insta gram-
færslurnar. Reikningurinn birtist
aftur þremur dögum seinna og þá
vakti mikla athygli útskýringin sem
söngkonan gaf á hvarfi reikn ings ins.
„Úbbs … ég ýtti óvart á rangan
hnapp,“ sagði hún. Þeir sem þekkja
til Instagram vita að slík aðgerð er
tekin í nokkrum skrefum og það
er næsta ómögulegt að eyða Insta-
gram-reikningi án þess að ætla sér
það.
Nú hafa kenningar af ýmsum toga
farið eins og eldur um sinu. Ein kenn-
ing er á þá leið að Britney Spears sé
ekki manneskjan á myndum og
myndböndum frá afmæli söngkon-
unnar í vikunni, heldur hafi teymi
söngkonunnar einfaldlega ráðið
leikkonu til að þykjast vera hún.
Önnur kenningin er á þá leið að
Britney Spears sé vistuð á stofnun.
Britney er stödd í New York og hefur
vakið athygli að hún hefur hvergi
birst með aðdáendum sínum eða
komið opinberlega fram, og þykir
kenningasmiðum það gefa slíkri
atburðarás byr undir báða vængi.
Eiginmaður Britney, Sam Ashgari,
hvatti fylgjendur sína á dögunum til
að virða einkalíf söngkonunnar og
benti á að stundum þyrfti fólk ein-
faldlega að draga sig í hlé frá sam-
félagsmiðlum. n
Hegðun Britney
veldur heilabrotum
Brotthvarf Britney af Instagram í
síðustu viku vakti furðu.
24 Lífið 14. desember 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 14. desember 2022 MIÐVIKUDAGUR