Fréttablaðið - 14.12.2022, Síða 32
frettabladid.is
550 5000
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 2022 - 2025
Vínartónleikar
Sinfóníunnar
5., 6. OG 7. JANÚAR
MIÐASALA Á SINFONIA.IS
Vatnagörðum 14 104 Reykjavík
litrof@litrof.is 563 6000 litrof.is
UMHVERFISVÆN
PRENTUN
Önnu Sigrúnar
Baldursdóttur
n Bakþankar
Sagt hefur verið að hroki sé ein-
kenni þeirra sem engar dyggðir
hafi til að bera. Þess vegna verður
hrokinn svo áberandi í framgöngu
hrokafulls fólks, það bara hefur
ekki öðru til að dreifa í sam-
skiptum við aðra. Hvers vegna fólk
er hrokafullt er vafalaust misjafnt,
en í þeim tilvikum sem mér dettur
hroki í hug þegar ég horfi á sér-
staklega valdafólk koma þannig
fram, hefur mér komið tvennt í
hug.
Annars vegar virðist mikið
innra óöryggi um eigið ágæti,
þrátt fyrir mikil metorð, ráða för.
Segja má að eins konar blekkingar-
heilkenni (e. imposter syndrome)
en þó af sjúkari sortinni hrjái
þetta fólk. Þau sem þjást af blekk-
ingarheilkenninu efast um að
þau séu í raun vel að frama sínum
komin og að einn daginn komist
upp um þau, tjöldin falli. Þetta á
venjulega við um heiðarlegt fólk
sem er óþarflega auðmjúkt en
virðist líka geta brotist fram í and-
hverfu sinni; yfirlæti, stælum og
hroka, þegar betur færi á auðmýkt
og virðingu.
Hins vegar er hinn hefðbundni
hroki sem við þekkjum öll. Ein-
hver þykist betri en aðrir, af því
að pabbi þeirra, fótboltalið eða
jafnvel stjórnmálaskoðanir hefji
þau yfir samferðafólkið. Allt
byggir þetta á ímynduðum „rétti“
(e. entitlement) til einhverra gæða,
umfram aðra. Ágætur vinur minn
talar um eintittlinga í þessu sam-
hengi. Yfirlætið og hrokinn er ein-
hvern veginn náttúrulegri þessum
hóp og fer þeim eiginlega betur en
hinum.
Sumir rugla saman sjálfsöryggi
og hroka. En eins og ónefndur
sagði þarf þess alls ekki, því
örþunn lína auðmýktarinnar
skilur þarna á milli; sjálfsöryggið
brosir, hrokinn glottir. n
Hroki
Verslaðu á 66north.is
Fylgdu okkur @66north
Jólagjöfin er
66°Norður