Fréttablaðið - 15.12.2022, Side 2
Kærleikskúlan
2022
Kúla með stroku
eftir Karin Sander
Fáanleg til 23. desember
kærleikskúlan.is
Tímamót í Sundahöfn
Landtenging flutningaskipa Eimskips við Sundahöfn var formlega tekin í notkun í gær um borð í Dettifossi. „Um er að ræða tímamótaverkefni á sviði loftslags-
mála á Íslandi og þó víðar væri leitað þar sem unnið er að samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda og loftmengandi efna frá flutningastarfsemi,“ segir á vef
Eimskips. Er þetta samstarfsverkefni Eimskips, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins, Reykjavíkurborgar, Faxaflóahafna og Veitna. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Skrásetningargjald í Háskóla
Íslands hækkar um 20.000
krónur. Skólanum er ætlað að
skera niður. Erfitt er að reka
skóla þegar nemendafjöldi
sveiflast mikið til, segir rektor.
bth@frettabladid.is
MENNTUN Háskólaráð Háskóla
Íslands hefur samþykkt harðorða
bókun þar sem ráðið lýsir yfir
áhyggjum af fyrirhuguðum niður-
skurði fjárveitinga árið 2023.
„Eftir mikla fjölgun nemenda í
kjölfar Covid þar sem brugðist var
við óskum stjórnvalda um að opna
skólann fyrir f leiri nemendum er
boðuð lækkun fjárveitinga með
skömmum fyrirvara,“ segir í bókun
Háskólaráðs.
Einnig segir í bókuninni að erfitt
sé fyrir háskólann að bregðast við.
Rektor muni ræða við stjórnvöld
um stöðuna sem komin er upp.
Jón Atli Benediktsson, rektor
HÍ, sagði í samtali við Fréttablaðið
í gærkvöld að hann vonaðist til
að samtöl sem hann hefði átt við
stjórnvöld síðustu daga skiluðu
árangri með auknum fjármunum.
Fyrir aðra umræðu fjárlaga sé um
500 milljóna króna gat.
Fréttablaðinu er kunnugt um að
óvinsælar hagræðingar- og niður-
skurðaraðgerðir bitni með mis-
miklum hætti á deildum skólans að
óbreyttu. Meðal annars eru til skoð-
unar tillögur sem munu þrengja að
einkaskrifstofum kennara.
Jón Atli rektor segir þó ekki alla
von úti og óvíst sé hve harkalega
þurfi að bregðast við. Erfitt sé að
reka skóla þegar nemendafjöldi
sveiflist svo mikið til vegna heims-
faraldurs.
Fyrir liggur einnig að skrásetn-
ingargjald verður hækkað verulega
næsta ár, það fer að líkindum úr
75.000 krónum í 95.000.
Í bókun Brynhildar Ásgeirsdóttur
fulltrúa stúdenta í Háskólaráði
segir: „Það er sorgleg staða að óskað
sé eftir því að stúdentar beri uppi
rekstur opinberrar háskólamennt-
unar með þessum hætti. 95.000
krónur er margfalt meira en tíðkast
á Norðurlöndunum.“
Stúdentar telja að gjaldið sé í
raun dulbúið skólagjald en rektor
bendir á að gjaldið hafi lengi verið
óbreytt og nauðsynlegt sé að hækka
það. Ekki sé um skólagjald að ræða
heldur tryggingu fyrir að geta veitt
ákveðna þjónustu.
„Almenningi og þar á meðal stúd-
entum hefur verið talin trú um að
hér sé búið þannig um að opinber
háskólamenntun sé gjaldfrjáls að
öðru leyti en að gjald renni í skrá-
setningu.
Þegar betur er að gáð stenst það
ekki, enda eiga umræddar 95.000
krónur að renna í skipulag prófa,
skipulag kennslu, og ýmsan rekstur,“
segir í bókun fulltrúa stúdenta. n
Ósammála um hvort gjöld
við HÍ séu ígildi skólagjalda
Rektor HÍ, Jón Atla Benediktsson, og fulltrúa stúdenta í Háskólaráði greinir á
um hvort hækkun á skrásetningargjaldi megi kalla skólagjald eða ekki.
MYND/KRISTINN INGVARSSON
benediktboas@frettabladid.is
STJÓRNSÝSLA Sögufélag mælir ekki
með tillögu um að setja upp að nýju
skjaldarmerki sem var á Alþingis-
húsinu á vígsludegi þess 1. júlí 1881.
Um er að ræða tvö skjaldarmerki,
annars vegar hinn krýnda þorsk
Íslands og hins vegar hin krýndu
ljón Danmerkur. Færa eigi framhlið
hússins í upprunalegt horf.
Í umsögn sögufélagsins sem
Brynhildur Ingvarsdóttir ritar segir
að ekki sé endilega ljóst að gömlu
skjaldarmerkin tvö hafi verið fastur
hluti af ytri gerð þess þótt þau hafi
vissulega hangið þar á vígsludegi og
í rúmlega tvo áratugi eftir það.
Þá bendir félagið á að núverandi
framhlið hússins hafi fyrir löngu
áunnið sér fasta hefð í huga þjóðar-
innar og þykir ekki rétt að hrófla
við henni nú með þeim hætti sem
lagt er til með tillögunni. Að lokum
bendir félagið á að merki Kristjáns
IX. Danakonungs prýði enn húsið
og virðist það fullnægjandi til að
halda sögulegum tengslum land-
anna tveggja á lofti. n
Skjaldarmerkið á
Alþingi óbreytt
Alþingi. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR
benediktarnar@frettabladid.is
KÓPAVOGUR Lukasz Frydrychewicz,
íbúi við Marbakkabraut í Kópavogi,
segir að Kópavogsbær og trygginga-
félögin vilji ekki hjálpa honum og
kærustu hans, eftir að kaldavatns-
lögn við Kársnesbraut rofnaði og
vatn lak inn í íbúðir í hverfinu.
Sagði Lukasz í gær að hann vissi
ekki hvar hann og Ewa Jaszczuk,
kærasta hans, ættu að sofa .
„Við eigum enga fjölskyldu á
Íslandi til að hjálpa okkur og hvorki
Kópavogsbær né tryggingafélögin
vilja hjálpa,“ sagði Lukasz. Hann hafi
spurt Kópavogsbæ hvort það væri
hægt að koma þeim fyrir í félagslegri
íbúð á meðan þau leysa úr stöðunni.
„Þau sögðu mér að fara á vefsíðuna
sína og sækja um, það væru engar
íbúðir lausar núna. Ég hef ekki tíma
í þetta núna, ég get varla hugsað.“ n
Á köldum klaka eftir kaldavatnsleka
Lukasz Frydryc-
hewicz og Ewa
Jaszczuk í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
95.000 krónur er
margfalt meira en
tíðkast á Norðurlönd-
unum.
Úr bókun fulltrúa stúdenta
í Háskólaráði HÍ
2 Fréttir 15. desember 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ