Fréttablaðið - 15.12.2022, Qupperneq 6
Því miður er raunin sú
að sumir hafa greiðari
aðgang að nefndinni
en aðrir.
Kristrún Frosta-
dóttir, formaður
Samfylkingar-
innar
Allar jólavörur á
25% afslætti
Jólatrén
eru komin
Verð frá 5.995
Það er eitthvað við lyktina af grenitrjám.
Sumir elska að skreyta það á meðan öðrum
finnst skemmtilegast að velja það
Öll okkar tré eru sérvalin og ættu því öll að
geta fundið sitt fullkomna jólatré
Danskur nordmannsþinur og
sérvalin stafafura frá Skógræktinni
Í fjárlaganefnd var 100 millj
óna króna styrkur sem N4
bað um kynntur sem almenn
aukning við fjölmiðlastyrk.
Framkvæmdastjóri fjölmiðla
hjá Sýn segir stjórnmálamenn
vilja geta refsað eða umbunað
fjölmiðlum.
kristinnhaukur@frettabladid.is
ALÞINGI Tillaga um að styrkja sjón
varpsstöðvar á landsbyggðinni um
100 milljónir króna, sem einungis
getur átt við um tvær stöðvar, var
kynnt sem almenn hækkun á fram
lögum til fjölmiðla í fjárlaganefnd.
Var þessu svo breytt þegar erindið
fór frá nefndinni.
„Þegar tillaga um hækkun fjöl
miðlastyrks var borin upp af hálfu
meirihlutans í nefndinni fyrir
úttekt málsins var hún ekki eyrna
merkt neinu sérstöku verkefni,“ segir
Kristrún Frostadóttir, formaður
Samfylkingar sem situr fyrir minni
hlutann í fjárlaganefnd. „Það var
minn skilningur framan af að þetta
snerist um að styrkja einkarekna
fjölmiðla almennt um 100 milljónir
króna sem myndu bætast við fram
lögin.“
Minnihluti nefndarinnar styður
ekki neina fjárbeiðni heldur ákvarð
ar meirihlutinn þær einhliða.
Málið hefur vakið nokkra furðu,
enda eru N4 og Víkurfréttir afar
starfsmannafáir fjölmiðlar. 100
milljónir eru meira en fimmtungur
af heildarfjölmiðlastyrkjunum.
Meðal annars hefur Blaðamanna
félag Íslands gagnrýnt þetta, sem
og ritstjórar einstakra miðla en N4,
sem er að stórum hluta í eigu Sam
herja og Kaupfélags Skagfirðinga,
báðu fjárlaganefnd um 100 milljóna
króna styrk.
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, for
maður fjárlaganefndar, segir það
vilja nefndarinnar að styrkja sér
staklega sjónvarp á landsbyggðinni
en nefnt hefur verið að hún og fleiri
Norðlendingar séu fjölmennir í fjár
laganefnd.
Kristrún segir að beiðnir líkt og
frá N4 ættu ekki lengur að koma inn
til fjárlaganefndar, heldur beint til
ráðherra sem beri ábyrgðina. „Ég tel
að það sé hægt að setja spurningar
merki við að fjárlaganefnd sé enn þá
að afgreiða stakar beiðnir,“ segir hún.
„Því miður er raunin sú að sumir
hafa greiðari aðgang að nefndinni
en aðrir.“
Þórhallur Gunnarsson, fram
kvæmdastjóri fjölmiðla hjá Sýn,
segir þennan gjörning meirihluta
fjárlaganefndar segja allt sem segja
þurfi um styrkjakerfið í heild sinni.
Stjórnvöld þurfi að klára þá umræðu
hvernig rekstrarumhverfi fjölmiðla
verði best fyrir komið.
„Þetta hefur verið rætt í áratugi í
ansi mörgum rándýrum nefndum
sem skila alls kyns álitum sem eng
inn tekur mark á,“ segir hann.
Bendir hann á að ríkisstjórnin
hafi aukið framlög til RÚV um millj
arð frá árinu 2021 án þess að ræða
umsvifin á auglýsingamarkaði. Það
þó að Lilja Alfreðsdóttir ráðherra
hafi sagt að minnsta kosti sex sinn
um að hún vildi stofnunina af þeim
markaði.
Ekki hafi heldur verið tekið á
erlendum streymisveitum eða sam
félagsmiðlum sem starfi á íslenskum
markaði án þess að greiða skatta eða
gangast undir þær skyldur sem hvíli
á íslenskum fjölmiðlum.
„Ég er kominn á þá skoðun að
stjórnmálamönnum finnist gott að
hafa þetta svona,“ segir Þórhallur.
„Að með þessum hætti hafi þeir
betri tök á fjölmiðlaumhverfinu og
telji sig geta refsað með skerðingum
eða umbunað með fjármunum úr
ríkissjóði.“ Skapa þurfi fyrirsjáanlegt
fjölmiðlaumhverfi, laust við kenjar
stjórnmálanna. n
Sagt vera almennur styrkur
til fjölmiðla í fjárlaganefnd
Bjarkey Olsen
Gunnarsdóttir
og aðrir í meiri-
hluta fjárlaga-
nefndar hafa
legið undir
gagnrýni vegna
styrksins.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
bth@frettabladid.is
ALÞINGI Björn Leví Gunnarsson,
þingaður Pírata og nefndarmaður í
fjárlaganefnd, segist hafa sent fyrir
spurn á alla meðlimi í fjárlaganefnd
Alþingis um hvort úttekt hefði verið
gerð á tengslum þingmanna við það
sem hann kallar „bitlingaúthlutun“
meirihluta nefndarinnar.
„Þá vissi ég ekki um tengsl Stefáns
Vagns Stefánssonar,“ segir Björn
Leví.
Fr a m hef u r kom ið veg na
umsóknar N4 sem virðist hafa
tryggt sér bróðurpartinn af hund
rað milljóna króna aukastyrk frá
Alþingi í gegnum fjárlaganefnd, að
María Björk Ingvadóttir, sjónvarps
stjóri N4, sem ritaði bréfið þar sem
hún óskaði fjárframlags, er mág
kona Stefáns Vagns, nefndarmanns
Framsóknarflokksins í meirihluta
nefndarinnar.
Björn Leví telur að mögulega sé
um að ræða brot á siðareglum. Eng
inn fyrirvari hafi verið gerður þrátt
fyrir fyrirspurn hans.
„Ég gef þessari afgreiðslu núllein
kunn, þetta á ekki að gerast,“ segir
Björn Leví.
Þingmaðurinn telur að Stefáni
hafi borið að sanna fyrir fram
að tengslin hafi ekki haft áhrif á
afgreiðsluna með sama hætti og
Bjarna Benediktssyni fjármálaráð
herra hafi borið að sanna að pabbi
hans hafi ekki notið tengsla við
hann í Íslandsbankamálinu.
„Þetta er nýja skúffuféð.“ n
Stefán Vagn gat ekki um tengsl sín
Björn Leví
Gunnarsson,
þingaður pírata
bth@frettabladid.is
ALÞINGI „Siðferðileg viðmið um
hvernig kjörnir fulltrúar fara með
vald hljóta alltaf að vera mats
kennd,“ segir Henrý Alexander
Henrýsson siðfræðingur um N4
málið.
„En um leið er þessum viðmið
um ætlað að koma í veg fyrir ger
ræðislegar og handahófskenndar
ákvarðanir, ekki síst þegar kemur
að fjárveitingarvaldi,“ bætir hann
við.
Henrý segir að spurningar um
fagmennsku við fjárveitinguna til
N4 reyni á siðferðileg viðmið.
„Hér hefur verið komið á kerfi
sem á að sjá til þess að opinbert fé
geti skilað sér til einkarekinna fjöl
miðla. Hvaða ástæða getur verið
fyrir að fara fram hjá því kerfi?“
Þá segir Henrý um hæfi Stefáns
Vagns að það sé list að kunna að
spyrja sig hvort ekki sé einhver
annar betur til þess fallinn að taka
ákvarðanir ef maður stendur of
nærri því sem til umfjöllunar er.
„Í þessu máli stingur líka í augu
hvernig fjárlaganefnd er samsett
hvað kjördæmin varðar og tengsl
við það svæði sem N4 þjónustar
fyrst og fremst.“
Henrý segir að enginn vilji hafa
svo geirneglt regluverk að kjörnir
fulltrúar þurfi ekki að læra að beita
dómgreind sinni þegar kemur að
ýmsum ákvörðunum.
„Í þessu máli virðist hins vegar
ljóst að þetta lítur ekki vel út. Það
er bókstaflega verið að bjóða upp
á að gagnrýnum spurningum sé
varpað fram.“ n
Siðfræðingur segir að
N4-málið líti ekki vel út
Í þessu máli stingur
líka í augu hvernig
fjárlaganefnd er sam-
sett.
Henrý Alexander
Henrýsson,
siðfræðingur
6 Fréttir 15. desember 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ