Fréttablaðið - 15.12.2022, Side 10

Fréttablaðið - 15.12.2022, Side 10
Niðurstöðurnar verða kynntar á nýju ári. Halla Hrund Logadóttir, orkumálastjóri Það er mögulegt að nýta þessa auðlind þar sem það er ráð fyrir verulegri fjölgun á höfuðborgarsvæðinu á næstu árum. Rósa Guðbjarts- dóttir, bæjar- stjóri Hafnar- fjarðarbæjar S Í G I L D K Á P U B Ú Ð Skipholti 29b • Sími 551 4422 • www.laxdal.is Laxdal er í leiðinniFylgið okkur á FB SKOÐIÐ LAXDAL.IS Glæsilegar síðar dúnkápur frá Dagskrá: Hefðbundin ársfundarstörf samkvæmt samþykktum sjóðsins Tillögur til breytinga á samþykktum sjóðsins Önnur mál Við bjóðum sjóðfélaga velkomna á fundinn. Stjórn Gildis-lífeyrissjóðs. Grand Hótel Reykjavík, fimmtudaginn 28. apríl kl. 17:00 Gildi-lífeyrissjóður Ársfundur 2022 ▪ ▪ ▪ Lífeyrissjóður www.gildi.is ser@frettabladid.is SAMGÖNGUR Umferðarmet var slegið á höfuðborgarsvæðinu í nóv- ember. Hún jókst hún um fimm af hundraði miðað við sama tíma í fyrra. Á vef Vegagerðarinnar segir að umferðin í ári verði líklegast rétt undir því sem hún var árið 2019. Gamla nóvembermetið er einmitt frá því ári. Í ár reyndist umferðin vera ríf lega þremur prósentum meiri en nóvembermetið frá 2019. n Metumferð á höfuðborgarsvæðinu Umhverfis- og framkvæmda- ráð Hafnarfjarðarbæjar ýjaði að mikilvægi þess að rannsaka virkjunarmöguleika í Krýsu- vík á nýjasta fundi sínum. Bæjarstjóri segir að ef það verði gert á réttan máta geti þetta reynst mikilvæg orku- lind fyrir höfuðborgarsvæðið. kristinnpall@frettabladid.is ORKUMÁL „Við skrifuðum undir viljayfirlýsingu við HS Orku um rannsóknir á þessu svæði. Þau hafa verið að sækjast eftir því undan- farin ár og það náðist samstaða innan bæjarstjórnar um að ræða samstarf og það gæti farið svo að það verði gert samkomulag f ljót- lega,“ segir Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar, spurð um möguleikann á virkjun í Krýsuvík. Umhverfis- og framkvæmda- ráð Hafnarfjarðarbæjar lýsti yfir áhyggjum af heitavatnsöryggi á nýjasta fundi sínum og talaði um möguleikann á því að reisa virkjun í Krýsuvík. Með því væri hægt að skapa tengingu við kerfi Veitna sem dregur úr álagi á virkjunum á Hellisheiði og Nesjavöllum og það sé því gild ástæða til að f lýta fyrir rannsóknum á nýtingu jarðvarma á svæðinu. „Það er mögulegt að nýta þessa auðlind þar sem það er ráð fyrir verulegri fjölgun á höfuðborgar- svæðinu á næstu árum og aukningu ferðamanna sem eykur eftirspurn eftir heitu vatni.“ Í bókuninni er fjallað um að skerðing á heitu vatni sé að verða að föstum lið í kuldaköstum sem sé miður þegar umhverfis- og framkvæmdaráðið leggi áherslu á afhendingaröryggi heita vatnsins á álagstímum. Telur ráðið að með nýtingu jarðvarma í Krýsuvík væru komin tvö samtengd kerfi sem gætu aukið öryggi og fyrirsjáanleika afhendingaröryggis á heitu vatni inn á höfuðborgarsvæðið. Rósa segir að það sé að mörgu að huga ef til samstarfsins kemur, meðal annars að gæta upp á nátt- úruna á svæðinu. „Það er mikilvægt að gera þetta af skynsemi og í jafnvægi við nátt- úruna þar sem þetta er viðkvæmt og fallegt svæði. Þessi umræða hefur verið til staðar í langan tíma og við viljum gera þetta með umhverfis- sjónarmið að leiðarljósi.“ Ólafur Ingi Tómasson, sem situr í ráðinu, segir að þessi umræða sé ekki ný af nálinni. „Það eru sennilega um fimmtán ár síðan síðan þetta kom fyrst til umræðu og rataði á deiliskipulagið. Sjálfur hef ég lengi velt þessu fyrir mér og sérstaklega eftir eldgosið og umræðuna um hitaveituöryggi á Suðurnesjum.“ Hann segir þörfina til staðar að finna nýjar lausnir í þessu málefni og kuldakast eins og gengur yfir Ísland þessa dagana sé áminning um það. „Þetta er mikið háhitasvæði og það hefur verið talað um að það sé þörf á tvöfalt meiri afköstum árið 2060. Veitur hafa talað um að þau séu komin að þolmörkum með heita vatnið og það er talið að Krýsuvík gæti þjónustað allt að 30 prósent af höfuðborgarsvæðinu.“ n Skoða að virkja í Krýsuvík Jarðhitasvæðið í Krýsuvík hefur lengi verið áfangastaður innlendra og erlendra ferða- manna. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA kristinnhaukur@frettabladid.is ORKUMÁL Halla Hrund Logadóttir orkumálastjóri segir stöðuna á heitu vatni á höfuðborgarsvæðinu í lagi til skamms tíma þó að kuldatíðin sé óvenju löng. Hins vegar sé þörf á heildarmati á heitu vatni. Það sé á döfinni, bæði hvað varðar flutning og leit að heitu vatni á Íslandi. Hitaveitur eru í nokkru basli, bæði vegna kuldatíðar og annarra óhappa. Hafa veitustjórar kallað eftir lands- átaki í leit að heitu vatni. „Orkustofnun vinnur nú að því, í samvinnu við ÍSOR og ráðuneytið, að gera áhættugreiningu á landinu öllu. Til að sjá hvar þörfin er mest og hvernig stjórnvöld geta komið að,“ segir Halla. Þetta sé undanfari þess að átak geti hafist. „Þetta er mjög mikilvæg vinna og niðurstöðurnar verða kynntar á nýju ári,“ segir hún. Síðasta átak í hitaveitu var ein- mitt í síðustu orkukreppu, 20 kerfi sem byggð voru á árunum 1961 til 1983. „Við erum enn þá að njóta góðs af þeirri fjárfestingu,“ segir Halla. „Það er eðlilegt að þegar fólki fjölgar og heitavatnsneysla eykst til annarrar notkunar að geta kerfisins sé skoðuð.“ En með annarri notkun á hún til dæmis við fiskeldi, þar sem aukningin er einna mest, og upp- byggingu nýrra baðlóna. Varðandi skerðingar segir Halla að ástæður þeirra geti verið ólíkar, hvort vatn sé lítið eða að flutningskerfinu sé forgangsraðað til heimila. „Það er mikilvægt að allir séu meðvitaðir um að heitt vatn er takmörkuð auðlind,“ segir hún og minnir á að mikilvægt sé að sólunda henni ekki. n Meti heitt vatn í heild 10 Fréttir 15. desember 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.