Fréttablaðið - 15.12.2022, Síða 17
Þorsteinn
Pálsson
n Af Kögunarhóli
Fjárlagafrumvarpið er heil bók
og því að jafnaði þykkasta málið,
sem lagt er fyrir Alþingi. Að auki
er það þungt aflestrar og fremur
þurrt.
Fjárlagaumræðan tekur yfirleitt
drjúgan tíma en vekur sjaldnast
almennan áhuga úti í samfélag
inu.
Oftast er það þannig að efna
hagsleg prinsipp og kerfisleg við
fangsefni falla í skuggann af fjár
veitingum til einstakra verkefna.
Ábyrgðin
Atvinnulífið og sum samtök
launafólks reyna alla jafna að
beina athyglinni að efnahags
pólitíkinni í fjárlagafrumvarpinu.
Þau hreyfa þó sjaldnast við
þingmönnum og ná ekki eyrum
almennings.
Þyngsta gagnrýnin á efnahags
stefnu núverandi ríkisstjórnar
eins og hún birtist í fjárlagafrum
varpinu kemur frá atvinnulífinu.
Forystumenn þess staðhæfa að
ríkisstjórnin ýti skuldavandanum
yfir á næstu ríkisstjórn og kyndi
þannig undir verðbólgu. BHM
hefur sett fram svipaða gagnrýni.
Á Alþingi eru það einkum þing
menn Viðreisnar sem tala fyrir
meiri ábyrgð í þessum efnum. En
slíkur boðskapur er ekki nógu
skemmtilegur til að þykja gott
fréttaefni.
Heimsmetið
Hlutfall skulda og vaxtaútgjalda
eru tveir sjálfstæðir mælikvarðar.
Nauðsynlegt er að lesa af þeim
báðum til að sjá hvort lausung eða
ábyrgð ræður för.
Daði Már Kristófersson, hag
fræðiprófessor og varaformaður
Viðreisnar, vakti í fjárlagaum
ræðunni á Alþingi í síðustu viku
athygli á sérstöðu Íslands þegar
kemur að hlutfalli vaxtaútgjalda
ríkisins. Orðrétt sagði hann:
„Það er athyglisvert að velta
fyrir sér, þó að íslensk stjórnvöld
stæri sig oft af því að ríkisskuldir
á Íslandi séu hóflegar, þá eru
vaxtagjöld á Íslandi úr öllu hófi.
Raunar er það þannig að Ísland á
met innan OECD í vaxtaútgjöldum
hins opinbera.
Til samanburðar getum við
tekið gríska ríkið, sem fáum þykir
sennilega upphefð í að bera sig
saman við. Ríkisskuldir Grikk
lands eru þrisvar sinnum hærri en
ríkisskuldir Íslands, en vaxta
byrðin er lægri.
Klípan
Það er með öðrum orðum ekki
skuldahlutfallið heldur hlutfall
vaxtaútgjalda, sem segir mest til
um hvort ríkisfjármálastefnan
telst ábyrg.
Svo fyllsta hófs sé gætt í orðavali
er heimsmet í vaxtaútgjöldum
þróaðra ríkja ekki beinlínis merki
um ábyrga fjármálastjórn.
Klípan er svo sú að þetta
heimsmet þrengir stöðu okkar
til þess að veita fjármunum inn í
velferðarkerfið án skattahækkana
eða verðbólguáhrifa.
Einn
Einn þingmaður stjórnarflokk
anna hefur rætt þennan grund
vallarvanda ríkisfjármálanna. Það
er Bjarni Benediktsson, fjármála
ráðherra og formaður Sjálfstæðis
flokksins. Í vor sem leið skrifaði
hann sterka pólitíska athugasemd
með fjármálaáætlun til ársins
2027. Þar sagði hann:
„Á smáu myntsvæði eins og
Íslandi hafa miklar vaxtahækkanir
umfram stærstu hagkerfi heims
einnig óæskileg hliðaráhrif í formi
aukinna líkinda á innstreymi
sveiflukennds skammtímafjár
magns. Meðal annars af þeim
ástæðum er mikilvægt að stefna
í fjármálum hins opinbera sé
almennt aðhaldssamari en í stærri
hagkerfum.“
Hér segir fjármálaráðherra
tæpitungulaust að séríslenskur
kostnaður við krónuna þýði
meira aðhald í ríkisfjármálum en í
grannlöndunum.
Þetta aðhaldssama grundvallar
viðhorf fjármálaráðherra endur
speglast hins vegar ekki í fjárlaga
frumvarpinu og hann hefur ekki
nefnt það í allri umræðunni á
haustþinginu.
Áhrifin
Erfitt er að trúa því að fjármála
ráðherra hafi skipt um skoðun frá
vori fram á haust.
Hitt er líklegra að samkvæmt
eðli stjórnarsamstarfsins ráði for
sætisráðherra meir um útgjöldin
en fjármálaráðherra meir um tekj
urnar. Þannig er stefnt í gagnstæð
ar áttir á tekjuhlið og útgjaldahlið.
Afleiðingin er hallarekstur fram
yfir mitt næsta kjörtímabil.
Á mesta hagvaxtarári í manna
minnum hefðu ábyrg fjárlög átt að
leiða til umtalsverðrar lækkunar
skulda og minni vaxtaútgjalda.
Veruleikinn fer með okkur í hina
áttina.
Nýlegar tölur sýna að þrátt fyrir
methagvöxt hefur framleiðni
þjóðarbúsins beinlínis minnkað.
Það þýðir að minna er til skipta
í þjóðarbúinu, þar á meðal fyrir
ríkissjóð. En þá loka þingmenn
meirihlutans bara augunum.
Þörfin
Hermt er að nýir kjarasamningar
séu innan verðbólguviðmiða
Seðlabankans. Þá er það bara
ríkisfjármálastefnan, sem rímar
ekki við stöðugleikamarkmiðið.
Þessi staða sýnir að það er þörf
á dýpri umræðu um prinsippin í
fjárlagafrumvarpinu. Það er engin
afsökun þótt það sé þykkt, þungt
og þurrt.
Slík umræða er holl þótt hún sé
ekki sjálfkrafa skemmtileg. n
Þykkt, þungt og þurrt
FIMMTUDAGUR 15. desember 2022 Skoðun 17FRÉTTABLAÐIÐ