Fréttablaðið - 15.12.2022, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 15.12.2022, Blaðsíða 17
Þorsteinn Pálsson n Af Kögunarhóli Fjárlagafrumvarpið er heil bók og því að jafnaði þykkasta málið, sem lagt er fyrir Alþingi. Að auki er það þungt aflestrar og fremur þurrt. Fjárlagaumræðan tekur yfirleitt drjúgan tíma en vekur sjaldnast almennan áhuga úti í samfélag­ inu. Oftast er það þannig að efna­ hagsleg prinsipp og kerfisleg við­ fangsefni falla í skuggann af fjár­ veitingum til einstakra verkefna. Ábyrgðin Atvinnulífið og sum samtök launafólks reyna alla jafna að beina athyglinni að efnahags­ pólitíkinni í fjárlagafrumvarpinu. Þau hreyfa þó sjaldnast við þingmönnum og ná ekki eyrum almennings. Þyngsta gagnrýnin á efnahags­ stefnu núverandi ríkisstjórnar eins og hún birtist í fjárlagafrum­ varpinu kemur frá atvinnulífinu. Forystumenn þess staðhæfa að ríkisstjórnin ýti skuldavandanum yfir á næstu ríkisstjórn og kyndi þannig undir verðbólgu. BHM hefur sett fram svipaða gagnrýni. Á Alþingi eru það einkum þing­ menn Viðreisnar sem tala fyrir meiri ábyrgð í þessum efnum. En slíkur boðskapur er ekki nógu skemmtilegur til að þykja gott fréttaefni. Heimsmetið Hlutfall skulda og vaxtaútgjalda eru tveir sjálfstæðir mælikvarðar. Nauðsynlegt er að lesa af þeim báðum til að sjá hvort lausung eða ábyrgð ræður för. Daði Már Kristófersson, hag­ fræðiprófessor og varaformaður Viðreisnar, vakti í fjárlagaum­ ræðunni á Alþingi í síðustu viku athygli á sérstöðu Íslands þegar kemur að hlutfalli vaxtaútgjalda ríkisins. Orðrétt sagði hann: „Það er athyglisvert að velta fyrir sér, þó að íslensk stjórnvöld stæri sig oft af því að ríkisskuldir á Íslandi séu hóflegar, þá eru vaxtagjöld á Íslandi úr öllu hófi. Raunar er það þannig að Ísland á met innan OECD í vaxtaútgjöldum hins opinbera. Til samanburðar getum við tekið gríska ríkið, sem fáum þykir sennilega upphefð í að bera sig saman við. Ríkisskuldir Grikk­ lands eru þrisvar sinnum hærri en ríkisskuldir Íslands, en vaxta­ byrðin er lægri. Klípan Það er með öðrum orðum ekki skuldahlutfallið heldur hlutfall vaxtaútgjalda, sem segir mest til um hvort ríkisfjármálastefnan telst ábyrg. Svo fyllsta hófs sé gætt í orðavali er heimsmet í vaxtaútgjöldum þróaðra ríkja ekki beinlínis merki um ábyrga fjármálastjórn. Klípan er svo sú að þetta heimsmet þrengir stöðu okkar til þess að veita fjármunum inn í velferðarkerfið án skattahækkana eða verðbólguáhrifa. Einn Einn þingmaður stjórnarflokk­ anna hefur rætt þennan grund­ vallarvanda ríkisfjármálanna. Það er Bjarni Benediktsson, fjármála­ ráðherra og formaður Sjálfstæðis­ flokksins. Í vor sem leið skrifaði hann sterka pólitíska athugasemd með fjármálaáætlun til ársins 2027. Þar sagði hann: „Á smáu myntsvæði eins og Íslandi hafa miklar vaxtahækkanir umfram stærstu hagkerfi heims einnig óæskileg hliðaráhrif í formi aukinna líkinda á innstreymi sveiflukennds skammtímafjár­ magns. Meðal annars af þeim ástæðum er mikilvægt að stefna í fjármálum hins opinbera sé almennt aðhaldssamari en í stærri hagkerfum.“ Hér segir fjármálaráðherra tæpitungulaust að séríslenskur kostnaður við krónuna þýði meira aðhald í ríkisfjármálum en í grannlöndunum. Þetta aðhaldssama grundvallar­ viðhorf fjármálaráðherra endur­ speglast hins vegar ekki í fjárlaga­ frumvarpinu og hann hefur ekki nefnt það í allri umræðunni á haustþinginu. Áhrifin Erfitt er að trúa því að fjármála­ ráðherra hafi skipt um skoðun frá vori fram á haust. Hitt er líklegra að samkvæmt eðli stjórnarsamstarfsins ráði for­ sætisráðherra meir um útgjöldin en fjármálaráðherra meir um tekj­ urnar. Þannig er stefnt í gagnstæð­ ar áttir á tekjuhlið og útgjaldahlið. Afleiðingin er hallarekstur fram yfir mitt næsta kjörtímabil. Á mesta hagvaxtarári í manna minnum hefðu ábyrg fjárlög átt að leiða til umtalsverðrar lækkunar skulda og minni vaxtaútgjalda. Veruleikinn fer með okkur í hina áttina. Nýlegar tölur sýna að þrátt fyrir methagvöxt hefur framleiðni þjóðarbúsins beinlínis minnkað. Það þýðir að minna er til skipta í þjóðarbúinu, þar á meðal fyrir ríkissjóð. En þá loka þingmenn meirihlutans bara augunum. Þörfin Hermt er að nýir kjarasamningar séu innan verðbólguviðmiða Seðlabankans. Þá er það bara ríkisfjármálastefnan, sem rímar ekki við stöðugleikamarkmiðið. Þessi staða sýnir að það er þörf á dýpri umræðu um prinsippin í fjárlagafrumvarpinu. Það er engin afsökun þótt það sé þykkt, þungt og þurrt. Slík umræða er holl þótt hún sé ekki sjálfkrafa skemmtileg. n Þykkt, þungt og þurrt FIMMTUDAGUR 15. desember 2022 Skoðun 17FRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.