Fréttablaðið - 15.12.2022, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 15.12.2022, Blaðsíða 18
Í þessari vönduðu bók Helga Þorlákssonar er fjallað um sex merka sögustaði á Íslandi, sagan rakin og grennslast fyrir um það á hverju hlutverk þeirra byggist. B E S S A S T A Ð I R S K Á L H O L T O D D I R E Y K H O L T H Ó L A R Þ I N G V E L L I R SÖGUSTAÐIR Í NÝJU LJÓSI „Það er mikið gagn af þessari bók ... Hún leiðir skýrt í ljós að stór verðmæti eru falin í sögu staðanna sem hann fjallar um.“ PÁLL BALDVIN BALDVINSSON / STUNDIN LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Opið 10–19 alla daga til jóla | www.forlagid.is Lifað með öldinni, endurminning- ar Jóhannesar Nordal, er þrekvirki, enda þrettán ár í smíðum. Sjálfur er höfundurinn að nálgast 100 ára afmælið. Þetta er stjórnmála- og hagsaga Íslands á 20stu öld. Hvað ætli Jóhannes hafi lifað af marga forsætis- og fjármálaráðherra á sinni tíð? En alltaf blífur Jóhannes – okkar útgáfa af hinum menntaða einvalda. Honum dvaldist við námið í London, m.a. vegna þess að hann smitaðist alvarlega af berklum og var vart hugað líf. Ætli sú lífs- reynsla hafi ekki ef lt hann að viti og þroska? Að lokinni þessari eld- skírn lukust dyr Landsbankans upp fyrir honum. Landsbankinn var þá líka seðlabanki með einkarétt á seðlaprentun. Hann var Seðla- bankastjóri á 4ða áratug – heims- met, ekki satt? Brautryðjandi Hann ruddi brautina á f leiri sviðum. Hann var hinn eiginlegi stjórnarformaður Íslands. For- maður stóriðjunefndar. Stofnandi Landsvirkjunar. Samningamaður ríkisins við sérfræðinga fjölþjóð- legra auðhringa sem vildu nýta ríkulegar orkulindir Íslendinga. Jóhannes stýrði samningunum fyrir okkar hönd, bæði um orku- verð og skattgreiðslur. Um leið var hann arftaki föður síns sem einskonar menningar- páfi. Stjórnarformaður vísinda- sjóðs – bæði hug- og raunvísinda. Útdeildi styrkjum. Stóð fyrir útgáfu fornrita. Sat í stjórn Almenna bóka- félagsins. Það var stofnað til að andæfa fyrirferð Moskvuhollra kommúnista í menningarlífinu. Vann með Ragnari í Smára við að vekja menningarritið Helgafell aftur til lífsins. Áhrifa hans gætti víða – ekki síst bak við tjöldin. Um hvað snýst þetta? Þetta snýst um pólitík og hagstjórn – þetta tvennt sem ekki verður sundur skilið. Með hvaða veganesti snéri hann heim? Hugmyndafræðistríð- ið um hvers konar þjóðfélag geisaði á þessum árum í elítuháskólunum bresku: Óbeislað markaðskerfi (auðræði) eða blandað hagkerfi þar sem markaðurinn lyti samfélags- legri stjórn. Hayek hélt því fram að ríkisafskipti væru ævinlega af hinu illa og enduðu í alræði. Keynes sýndi fram á að markað- urinn leiðrétti sig ekki sjálfur. Hann yrði að lúta samfélagslegri stjórn í lýðræðisríki, sem vildi halda uppi fullri atvinnu og stemma stigu við miskiptingu auðs og tekna. Keynes vs. Hayek? Hvorum fylgdi Jóhannes að málum? Jóhannes segist sjálfur hafa verið f lokksbundinn í breska verkamannaflokknum. Ég les það milli línanna að Jóhannes hafi verið einhvers konar hægri krati. Hugmyndafræðingar viðreisnarstjórnarinnar Þungamiðjan í þessu mikla rit- verki Jóhannesar er frásögn hans af Viðreisnarstjórninni, ríkisstjórn Sjálfstæðis- og Alþýðuflokks (1959- 1971) – þrjú kjörtímabil. Viðreisn- arstjórnarinnar er minnst fyrir það að hún gerði tilraun til „kerfis- breytingar“. Allt fram að þeim tíma höfðu íslendingar, nánast einir þjóða í V-Evrópu, viðhaldið hafta-, skömmtunar- og leyfisveitingakerfi kreppuáranna. Þetta var einskonar blanda af hálfsovésku ríkisforsjár- kerfi og suður-amerískum „vensla- kapítalisma“ (hvorttveggja spillt fyrirgreiðslukerfi). Sjálfstæðisflokkurinn hafði setið í öllum ríkisstjórnum frá árunum 1944-1956 eða m.ö.o. í meira en áratug eftir stríð. Þetta var f lokkur sem boðaði einkaframtak, mark- aðslausnir og lágmarksríkisaf- skipti af efnahagslífinu. Reynslan af þátttöku f lokksins, einnig þar sem hann fór með stjórnarforystu, var hinsvegar þveröfug á við það sem hann boðaði. Það er á þessum árum sem „helmingaskiptareglan“ verður grundvallarregla íslenskrar stjórn- sýslu. Ríkisafskipti á öllum sviðum voru allsráðandi. Ráðandi f lokkar, Sjálfstæðis- og Framsóknarflokkur, neyttu aðstöðu sinnar í ríkisstjórn til að skipta f lestum gæðum milli sín á áhrifasvæðum, annars vegar kennt við einkaframtak en hitt við SÍS. Fjármálakerfið var ríkisrekið. Bankastjórar voru pólitískt ráðnir. Innf lutningur var háður leyfum og einokunarfyrirtæki í tengslum við f lokkana réðu útf lutningnum. Shell tilheyrði íhaldinu, en Esso SÍS. Gróðanum af hermanginu var skipt milli verktakafyrirtækja f lokkanna. Mannaráðningar í opinbera kerfinu fóru eftir f lokks- skírteinum. Lánveitingar og lóða- úthlutanir sömuleiðis. „Kerfisbreyting“ Gengi þjóðargjaldmiðilsins var pólitískt ákveðið. Undir lokin kvað svo rammt að ríkisforsjánni að ein- staka tegundir útgerðar bjuggu við sérstaka gengisskráningu og nutu styrkja eða niðurgreiðslna til að halda sér á f loti. Þegar allt var komið í óefni og samkeppnis- hæfni útf lutningsins þrotin, var gengið fellt eftir þörfum. Efnahags- lífið gekk í rykkjum og skrikkjum. Póli tíkin snerist um að redda hlut- unum á seinustu stundu. Viðreisnarstjór nin markaði tímamót að því leyti, að hún reyndi að uppræta þetta ófremd- arástand. Hún boðaði kerfisbreyt- ingu. Grundvallaratriðið var að skrá gengi gjaldmiðilsins rétt. Að afnema þetta f lókna kerfi milli- færslna, styrkja og niðurgreiðslna. Að afnema leyfisveitingar í inn- flutningi – gera innflutningsversl- unina frjálsa. En eftir sem áður var því þröng takmörk sett, hversu langt var unnt að ganga í frjálsræðisátt. Það strandaði á Sjálfstæðisf lokknum. Fjármálakerfið var áfram ríkis- rekið. Útflutningurinn var áfram í höndum einokunarfyrirtækja (SH, SÍF og SÍS). Við þurftum enn að bíða mörg ár áður en Ísland þótti tækt í fríverslun í alþjóðaviðskiptum. Það tókst ekki fyrr en með inngöng- unni í EFTA (1970) og loks endan- lega með EES-samningnum 1994. Þríeykið En hverjir voru helstu hugmynda- fræðingar Viðreisnarinnar? Það fer ekki milli mála, skv. frásögn Jóhannesar, í þessari bók. Þeir voru þrír: Gylfi Þ. Gíslason, hagfræðing- ur og formaður Alþýðuf lokksins (þáverandi viðskiptaráðherra), Jónas H Haralz, forstjóri Þjóðhags- stofnunar og Jóhannes Nordal, Seðlabankastjóri. Jóhannes skýrir frá því (bls. 371) að þeir þremenn- ingarnir hafi komið saman til fundar í Seðlabankanum vikulega til þess að ræða helstu mál á dagskrá ríkisstjórnarsamstarfsins. Einstakar tillögur þeirra um kerfisumbætur voru svo fyrirferðamiklar á fundum ríkisstjórnarinnar að Bjarni Bene- diktsson, þá dómsmálaráðherra, kvartaði undan því að ekkert kæm- ist að nema efnahagsmálin. Það er ljóst að í þríeykinu var að finna bæði hugmyndasmiði og talsmenn kerfisbreytinga. Verðbólguáratugirnir Svo kom bakslagið: Framsóknar- áratugurinn – óðaverðbólgan, sem náði hámarki í 130% verðbólgu á ársfjórðungi í ríkisstjórn Fram- sóknar og Alþýðubandalags undir forystu Gunnars Thoroddsen. Eilífðarglíman við verðbólguna fór ekki að skila árangri fyrr en í tíð ríkisstjórnar Steingríms Her- mannssonar (1988-1991). Þá tókst, í kjölfar þjóðarsáttar, fyrst að koma verðbólgunni niður í einstafstölu. Það var reyndar þessi vinstri stjórn Steingríms sem kláraði kerfisbreyt- inguna, sem Viðreisnarstjórnin skildi við hálf karaða. Það gerðist með EES samningnum, sem var að mestu fullsaminn í tíð þeirrar ríkis- stjórnar. Það eru reyndar einhver mestu mistök sem gerð hafa verið í íslenskum stjórnmálum þegar Framsókn og Alþýðubandalag hlupust undan ábyrgð á EES samn- ingnum fyrir kosningar 1991. Þar með neyddu þessir f lokkar mig til að bjarga EES samningnum með því að semja við íhaldið; til að tryggja stuðning Sjálfstæðis- f lokksins við EES, sem hann hafði verið andvígur í stjórnarandstöðu. En verðið var að gera Davíð Odds- son að forsætisráðherra. Það var dýru verði keypt, eins og síðar kom á daginn. Steingrímur viður- kennir þessi mistök í ævisögu sinni. Stjórnmálaþróun seinni áratuga á Íslandi hefði orðið öll önnur en varð – ef ekki hefði verið fyrir þessi mistök. Það var um þetta leyti sem Jóhannes Nordal lét af störfum sem Seðlabankastjóri eftir að hafa gengt því mikilvæga starfi á fjórða áratug. Er hann ánægður með árangurinn? Boðskapurinn var alla tíð sá sami: Að standa vörð um stöðugleika gjaldmiðilsins og að skapa fólki og fyrirtækjum traust og fyrirsjáanlegt efnahagskerfi til frambúðar. Ég læt lesandanum eftir að dæma um hvernig til hefur tekist. En Jóhannes getur þakkað sínum sæla fyrir, að hann ber enga ábyrgð á Hruninu, sem sópaði eftir- mönnum hans burt úr Seðlabanka og stjórnarráði, loksins þegar nýfrjálshyggjutilraun Eimreiðar- klíkunnar með Ísland brotlenti. Ítarlegri útgáfu þessarar greinar má lesa á www.jbh.is n Jóhannesarguðspjall (hið nýja) Jón Baldvin Hannibalsson fyrrverandi utan- ríkisráðherra Boðskapurinn var alla tíð sá sami: Að standa vörð um stöðugleika gjaldmiðilsins og að skapa fólki og fyrir- tækjum traust og fyrir- sjáanlegt efnahagskerfi til frambúðar. 18 Skoðun 15. desember 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.