Fréttablaðið - 15.12.2022, Qupperneq 18
Í þessari vönduðu bók Helga Þorlákssonar
er fjallað um sex merka sögustaði á Íslandi,
sagan rakin og grennslast fyrir um það
á hverju hlutverk þeirra byggist.
B E S S A S T A Ð I R
S K Á L H O L T
O D D I
R E Y K H O L T
H Ó L A R
Þ I N G V E L L I R
SÖGUSTAÐIR Í NÝJU LJÓSI
„Það er mikið gagn af þessari bók ...
Hún leiðir skýrt í ljós að stór
verðmæti eru falin í sögu
staðanna sem hann fjallar um.“
PÁLL BALDVIN BALDVINSSON / STUNDIN
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Opið 10–19 alla daga til jóla | www.forlagid.is
Lifað með öldinni, endurminning-
ar Jóhannesar Nordal, er þrekvirki,
enda þrettán ár í smíðum. Sjálfur
er höfundurinn að nálgast 100 ára
afmælið. Þetta er stjórnmála- og
hagsaga Íslands á 20stu öld. Hvað
ætli Jóhannes hafi lifað af marga
forsætis- og fjármálaráðherra á
sinni tíð? En alltaf blífur Jóhannes
– okkar útgáfa af hinum menntaða
einvalda.
Honum dvaldist við námið í
London, m.a. vegna þess að hann
smitaðist alvarlega af berklum
og var vart hugað líf. Ætli sú lífs-
reynsla hafi ekki ef lt hann að viti
og þroska? Að lokinni þessari eld-
skírn lukust dyr Landsbankans upp
fyrir honum. Landsbankinn var
þá líka seðlabanki með einkarétt
á seðlaprentun. Hann var Seðla-
bankastjóri á 4ða áratug – heims-
met, ekki satt?
Brautryðjandi
Hann ruddi brautina á f leiri
sviðum. Hann var hinn eiginlegi
stjórnarformaður Íslands. For-
maður stóriðjunefndar. Stofnandi
Landsvirkjunar. Samningamaður
ríkisins við sérfræðinga fjölþjóð-
legra auðhringa sem vildu nýta
ríkulegar orkulindir Íslendinga.
Jóhannes stýrði samningunum
fyrir okkar hönd, bæði um orku-
verð og skattgreiðslur.
Um leið var hann arftaki föður
síns sem einskonar menningar-
páfi. Stjórnarformaður vísinda-
sjóðs – bæði hug- og raunvísinda.
Útdeildi styrkjum. Stóð fyrir útgáfu
fornrita. Sat í stjórn Almenna bóka-
félagsins. Það var stofnað til að
andæfa fyrirferð Moskvuhollra
kommúnista í menningarlífinu.
Vann með Ragnari í Smára við að
vekja menningarritið Helgafell
aftur til lífsins. Áhrifa hans gætti
víða – ekki síst bak við tjöldin.
Um hvað snýst þetta? Þetta snýst
um pólitík og hagstjórn – þetta
tvennt sem ekki verður sundur
skilið. Með hvaða veganesti snéri
hann heim? Hugmyndafræðistríð-
ið um hvers konar þjóðfélag geisaði
á þessum árum í elítuháskólunum
bresku: Óbeislað markaðskerfi
(auðræði) eða blandað hagkerfi þar
sem markaðurinn lyti samfélags-
legri stjórn. Hayek hélt því fram að
ríkisafskipti væru ævinlega af hinu
illa og enduðu í alræði.
Keynes sýndi fram á að markað-
urinn leiðrétti sig ekki sjálfur. Hann
yrði að lúta samfélagslegri stjórn í
lýðræðisríki, sem vildi halda uppi
fullri atvinnu og stemma stigu við
miskiptingu auðs og tekna. Keynes
vs. Hayek? Hvorum fylgdi Jóhannes
að málum? Jóhannes segist sjálfur
hafa verið f lokksbundinn í breska
verkamannaflokknum. Ég les það
milli línanna að Jóhannes hafi
verið einhvers konar hægri krati.
Hugmyndafræðingar
viðreisnarstjórnarinnar
Þungamiðjan í þessu mikla rit-
verki Jóhannesar er frásögn hans
af Viðreisnarstjórninni, ríkisstjórn
Sjálfstæðis- og Alþýðuflokks (1959-
1971) – þrjú kjörtímabil. Viðreisn-
arstjórnarinnar er minnst fyrir
það að hún gerði tilraun til „kerfis-
breytingar“. Allt fram að þeim tíma
höfðu íslendingar, nánast einir
þjóða í V-Evrópu, viðhaldið hafta-,
skömmtunar- og leyfisveitingakerfi
kreppuáranna. Þetta var einskonar
blanda af hálfsovésku ríkisforsjár-
kerfi og suður-amerískum „vensla-
kapítalisma“ (hvorttveggja spillt
fyrirgreiðslukerfi).
Sjálfstæðisflokkurinn hafði setið
í öllum ríkisstjórnum frá árunum
1944-1956 eða m.ö.o. í meira en
áratug eftir stríð. Þetta var f lokkur
sem boðaði einkaframtak, mark-
aðslausnir og lágmarksríkisaf-
skipti af efnahagslífinu. Reynslan
af þátttöku f lokksins, einnig þar
sem hann fór með stjórnarforystu,
var hinsvegar þveröfug á við það
sem hann boðaði.
Það er á þessum árum sem
„helmingaskiptareglan“ verður
grundvallarregla íslenskrar stjórn-
sýslu. Ríkisafskipti á öllum sviðum
voru allsráðandi. Ráðandi f lokkar,
Sjálfstæðis- og Framsóknarflokkur,
neyttu aðstöðu sinnar í ríkisstjórn
til að skipta f lestum gæðum milli
sín á áhrifasvæðum, annars vegar
kennt við einkaframtak en hitt við
SÍS.
Fjármálakerfið var ríkisrekið.
Bankastjórar voru pólitískt ráðnir.
Innf lutningur var háður leyfum
og einokunarfyrirtæki í tengslum
við f lokkana réðu útf lutningnum.
Shell tilheyrði íhaldinu, en Esso
SÍS. Gróðanum af hermanginu
var skipt milli verktakafyrirtækja
f lokkanna. Mannaráðningar í
opinbera kerfinu fóru eftir f lokks-
skírteinum. Lánveitingar og lóða-
úthlutanir sömuleiðis.
„Kerfisbreyting“
Gengi þjóðargjaldmiðilsins var
pólitískt ákveðið. Undir lokin kvað
svo rammt að ríkisforsjánni að ein-
staka tegundir útgerðar bjuggu
við sérstaka gengisskráningu og
nutu styrkja eða niðurgreiðslna
til að halda sér á f loti. Þegar allt
var komið í óefni og samkeppnis-
hæfni útf lutningsins þrotin, var
gengið fellt eftir þörfum. Efnahags-
lífið gekk í rykkjum og skrikkjum.
Póli tíkin snerist um að redda hlut-
unum á seinustu stundu.
Viðreisnarstjór nin markaði
tímamót að því leyti, að hún
reyndi að uppræta þetta ófremd-
arástand. Hún boðaði kerfisbreyt-
ingu. Grundvallaratriðið var að
skrá gengi gjaldmiðilsins rétt. Að
afnema þetta f lókna kerfi milli-
færslna, styrkja og niðurgreiðslna.
Að afnema leyfisveitingar í inn-
flutningi – gera innflutningsversl-
unina frjálsa.
En eftir sem áður var því þröng
takmörk sett, hversu langt var
unnt að ganga í frjálsræðisátt. Það
strandaði á Sjálfstæðisf lokknum.
Fjármálakerfið var áfram ríkis-
rekið. Útflutningurinn var áfram í
höndum einokunarfyrirtækja (SH,
SÍF og SÍS). Við þurftum enn að bíða
mörg ár áður en Ísland þótti tækt í
fríverslun í alþjóðaviðskiptum. Það
tókst ekki fyrr en með inngöng-
unni í EFTA (1970) og loks endan-
lega með EES-samningnum 1994.
Þríeykið
En hverjir voru helstu hugmynda-
fræðingar Viðreisnarinnar? Það
fer ekki milli mála, skv. frásögn
Jóhannesar, í þessari bók. Þeir voru
þrír: Gylfi Þ. Gíslason, hagfræðing-
ur og formaður Alþýðuf lokksins
(þáverandi viðskiptaráðherra),
Jónas H Haralz, forstjóri Þjóðhags-
stofnunar og Jóhannes Nordal,
Seðlabankastjóri. Jóhannes skýrir
frá því (bls. 371) að þeir þremenn-
ingarnir hafi komið saman til
fundar í Seðlabankanum vikulega
til þess að ræða helstu mál á dagskrá
ríkisstjórnarsamstarfsins. Einstakar
tillögur þeirra um kerfisumbætur
voru svo fyrirferðamiklar á fundum
ríkisstjórnarinnar að Bjarni Bene-
diktsson, þá dómsmálaráðherra,
kvartaði undan því að ekkert kæm-
ist að nema efnahagsmálin. Það
er ljóst að í þríeykinu var að finna
bæði hugmyndasmiði og talsmenn
kerfisbreytinga.
Verðbólguáratugirnir
Svo kom bakslagið: Framsóknar-
áratugurinn – óðaverðbólgan, sem
náði hámarki í 130% verðbólgu á
ársfjórðungi í ríkisstjórn Fram-
sóknar og Alþýðubandalags undir
forystu Gunnars Thoroddsen.
Eilífðarglíman við verðbólguna
fór ekki að skila árangri fyrr en í
tíð ríkisstjórnar Steingríms Her-
mannssonar (1988-1991). Þá tókst,
í kjölfar þjóðarsáttar, fyrst að koma
verðbólgunni niður í einstafstölu.
Það var reyndar þessi vinstri stjórn
Steingríms sem kláraði kerfisbreyt-
inguna, sem Viðreisnarstjórnin
skildi við hálf karaða. Það gerðist
með EES samningnum, sem var að
mestu fullsaminn í tíð þeirrar ríkis-
stjórnar.
Það eru reyndar einhver mestu
mistök sem gerð hafa verið í
íslenskum stjórnmálum þegar
Framsókn og Alþýðubandalag
hlupust undan ábyrgð á EES samn-
ingnum fyrir kosningar 1991. Þar
með neyddu þessir f lokkar mig
til að bjarga EES samningnum
með því að semja við íhaldið; til
að tryggja stuðning Sjálfstæðis-
f lokksins við EES, sem hann hafði
verið andvígur í stjórnarandstöðu.
En verðið var að gera Davíð Odds-
son að forsætisráðherra. Það var
dýru verði keypt, eins og síðar
kom á daginn. Steingrímur viður-
kennir þessi mistök í ævisögu sinni.
Stjórnmálaþróun seinni áratuga á
Íslandi hefði orðið öll önnur en
varð – ef ekki hefði verið fyrir þessi
mistök.
Það var um þetta leyti sem
Jóhannes Nordal lét af störfum
sem Seðlabankastjóri eftir að hafa
gengt því mikilvæga starfi á fjórða
áratug. Er hann ánægður með
árangurinn? Boðskapurinn var
alla tíð sá sami: Að standa vörð um
stöðugleika gjaldmiðilsins og að
skapa fólki og fyrirtækjum traust
og fyrirsjáanlegt efnahagskerfi
til frambúðar. Ég læt lesandanum
eftir að dæma um hvernig til hefur
tekist. En Jóhannes getur þakkað
sínum sæla fyrir, að hann ber enga
ábyrgð á Hruninu, sem sópaði eftir-
mönnum hans burt úr Seðlabanka
og stjórnarráði, loksins þegar
nýfrjálshyggjutilraun Eimreiðar-
klíkunnar með Ísland brotlenti.
Ítarlegri útgáfu þessarar greinar
má lesa á www.jbh.is n
Jóhannesarguðspjall (hið nýja)
Jón Baldvin
Hannibalsson
fyrrverandi utan-
ríkisráðherra
Boðskapurinn var alla
tíð sá sami: Að standa
vörð um stöðugleika
gjaldmiðilsins og að
skapa fólki og fyrir-
tækjum traust og fyrir-
sjáanlegt efnahagskerfi
til frambúðar.
18 Skoðun 15. desember 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ