Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.06.1938, Page 25

Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.06.1938, Page 25
líkingu. — Hernaður, sem svíkst undan merkjum á þýðingarmikilli stund, er hiklaust sakfelldur fyrir skort á drengskap, fyrir kjark- leysi og vöntun á manndómi. Hann er sakfelldur fyrir að hafa brugðizt heilagri skyldu. Það fólk, sem nú tekur þátt í frelsisstriði íslendinga, heyir bar- áttu sína á örlagastund. Marg- háttaðir erfiðleikar hindra sókn þeirra. Erfiðleikar, sem öllum eru kunnir og því ástæðulaust að rekja hér. Meðal örðugleikanna, sem þetta fólk á við að stríða, er mannfœð hersins sjálfs, fylking þeirra, sem hafa helgað fram- leiðslunni krafta sína er of þunn. Ef ekki tekst að sigrast á þeim meinum, sem þjá íslenzka fram- leiðslu, ef ekki tekst að f jölga her- mönnunum — auka framleiðsluna — er sögu þjóðarinnar lokið. Hún getur þá ekki lengur séð fyrir sér, ekki hagnýtt sér náttúruauð landsins og möguleika. Eitthvert stórveldi tekur þjóðina undir sinn „verndarvæng“. íslenzkt þjóðerni, tunga og menning þurrkast út. Það er því nauðsynlegra nú en nokkru sinn áður, að enginn skor- ist undan merkjum, bregðist skyldu sinni. Nú, fremur en nokkru sinni fyrr, þarf á öllu liði og öllum kröftum að halda. Eng- inn má snúa baki við starfsins önn, enginn má flýja það erfiði, sem er grundvöllur þjóðfélagsins, enginn kjósa fremur að vera Á síðari árum hefir notkun véla, hesta og ýmiskonar nýtízku landbúnaðarverk- færa farið hraðvaxandi við atvinnu- reksturinn í sveitum landsins. Á mynd- inni sést herfing með hestum. framfærður á annarra kostnað í höfuðborg landsins heldur en taka hiklausan og djarfmannleg- an þátt í frelsisstríði þjóðarinnar. Það má enginn kjósa flóttann af þeirri einföldu ástæðu, að þá er úti um sókn og vörn og þjóðin glötuninni ofurseld. Flóttamenn- irnir bjarga heldur ekki sjálfum sér, því að jafnan kemur þeirra misvitra ráðstöfun harðast niður á þeim sjálfum. Ég vil að lokum spyrja unga fólkið, karla og konur, sem fram til þessa hefir unnið að fram- leiðslustörfum: Ætlið þið að bregðast heilagri skyldu, ætlið þið að svíkjast undan merkjum, yfir- gefa þann vettvang, sem feður ykkar og mæður hafa kosið að 103

x

Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál
https://timarit.is/publication/1746

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.