Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.06.1938, Page 61
í. árgangur . 2. ársfjórðungur VAKA
Okkai' á milli . . .
Rabb milli ritstjórnar
og lesenda.
Um Vöku. — Bréf, orðsendingar og uppástungur
frá lesendum. — Stökur. - Spurningar og svör. -
Og ýmislegt annað efni af svipuðu tagi
Þegar fram líða stundir, er svo ráð
fyrir gert, að undir þessari fyrirsögn
verði að finna fjölbreyttan og skemmti-
legan efnisflokk.
Vaka er engum háð öðrum en lesend-
um sínum og hún vill gera þeim til hæf-
is í hvívetna. En til þess að svo megi
verða, er nauðsynlegt að gott samband
sé milli ritstjórnar og lesenda. í greina-
köflunum, sem birtast undir þessari fyr-
irsögn, verður á hverjum tíma ítar-
lega rœtt um ritið sjálft, breytingar á
efni og frágangi, fyrirœtlanir í framtíð-
inni, vandamál þess, lagðar spurningar
fyrir lesendurna, o. s. frv.
Vöku berst mikið af bréfum. Oft geta
þessi bréf — eða a. m. k. kaflar úr þeim
— verið þannig vaxin, að ritstjórn tíma-
ritsins þyki ástœða til að beina orðum
þeirra til allra lesenda þess. Þessi efnis-
flokkur verður vettvangur slíks.
Ef lesendurnir beina spurningum til
Vöku um eitt eða annað, verður þeim
svarað hér
Vera má, að „rabbað" verði um ýmis
umrœðuefni almennings og dagblaða á
þessum stað i ritum, og þá bœði af rit-
stjórn og lesendum.
Lesendur Vöku skulu hvattir til að
gefa þessum efnisflokki gaum. Ef rétt
er á haldið, á hann að geta orðið til
gagns, fróðleiks og skemmtunar fyrir
báða aðila, bœði lesendur og ritstjórn.
— Þess er vœnzt, að lesendurnir geri sitt
til: Svari flótt og greiðlega fyrirspurn-
um frá ritinu, láti í Ijósi álit sitt á því,
sendi því línu um eitt og annað, vel
kveðnar stökur, snúi sér til þess með
fyrirspurnir o. s. frv. — Eitt höfuð-
boðorð er öllum sett í þessu sambandi:
Verið stuttorð og gagnorð!
Við skulum svo að endingu óska okkur
til hamingju með þennan efnisflokk, sem
við berum sameiginlega ábyrgð á!
A eftir áætlan
/Sfyrirsjáanleg atvik ollu þeim leiðin-
lega drætti, er varð á útkomu þessa
heftis af Vöku. Pantaður var pappír í
ritið í októbermánuði s.l. og var hans
von hingað til lands skömmu eftir miðj-
an desember. En þegar til kom, brást
það, og pappírinn kom tæpum mánuði
síðar en búizt var við. Pappír af sömu
gerð og stærð og notaður er í Vöku var
ófáanlegur. Var því ekki um annað að
ræða, en að bíða þangað til pappirs-
sendingin kom. Af þessum sökum gat
síðara hefti 1. árgangs ekki komið út
fyrir áramót, eins og ætlað var — þenn-
an leiðinlega — en óviðráðanlega —
drátt á útkomu ritsins eru lesendur
beðnir að afsaka.
Dómar nm Vöku
ti/teð síðustu póstferðum utan af landi
1V1. fyrir jólin barst Vöku mikið af bréf-
um. Mörg þeirra fluttu álit bréfritara á
ritinu. Voru þau — eins og yfirleitt
allir dómar, sem felldir hafa verið um
Vöku — mjög lofsamleg. Freistandi væri
að birta eitthvað af þessum bréfum,
eða kafla úr þeim. en rúmið leyfir það
ekki. Skulu í þess stað teknar upp
nokkrar setningar sem sýnishorn:
„Allir ljúka lofsorði á smekkvísi og að
öllu leyti góðan frágang á þessu fyrsta
hefti ... Kvæði Egils er ótrúlega þrótt-
mikið eftir svo ungan mann .....Ein-
ræðið og lýðræðið" hans Ásgeirs er grein,
sem allir ættu að lesa og leggja sér á
minni. Hún skín eins og perla í þeim
moldreyk, er pólitísku blöðin þyrla upp“
(Elinór Þorleifsson). — „Það er mitt
álit, og mun vera einróma álit hér í
skólanum, að frágangur á Vöku sé mjög
góður ... Mér finnst að Vaka hafi er-
indi til allra eins og Fjölnir forðum.
139