Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.06.1938, Page 54
VA14 A /. drgangur . 2. ársfjórðungur
sömu tedósirnar staðið á hillunum
svo öldum skipti, hver á sínum
ákveðna stað. Li naut mikillar
virðingar meðal þorpsbúa og það
var ávallt gefinn mikill gaumur
að orðum hans. Nú sat hann á
sínum venjulega stað í miðstofu
hússins, hægra megin við borðið,
sem stóð fyrir miðjum innri vegg
stofunnar. í dag var hann klædd-
ur sínum beztu fötum í tilefni af
heimkomu sonar síns. Hann var
horaður og húð hans var gulbleik
af opiumnautn, því að Li reykti
opium. En hann neytti þess ekki í
óhófi eins og ómenntaðir og
ruddalegir menn gera, heldur ör-
lítils á ákveðnum tíma dagsins.
Hann hafði því ekki orðið að lúta
í lægra haldi fyrir þessari nautn,
eins og svo margir aðrir. Hún
hafði aðeins fengið hörundi hans
þennan sérkennilega litarhátt og
ráðið holdafarinu.
Gagnvart Li, vinstra megin við
borðið, sat kona hans, móðir
einkasonar hans. Hún hafi eign-
azt fjögur börn, en aðeins þetta
eina var nú á lífi. Það var yngsta
barnið og hún unni því mjög.
Gamla konan hefði áreiðanlega
ekki getað gert sér í hugarlund,
að hægt væri að neita einkasyni
hennar um nokkurn skapaðan
hlut. Það hefði ekki verið viðeig-
andi, og það, sem ekki var við-
eigandi, var í augum gömlu kon-
unnar óhugsandi. Þó var hún
töluvert skapbráð, og baráttulaust
132
lét hún sjaldan hlut sinn fyrir
manni sínum eða syni. Eigi að
síður sat hún nú í stól, sem var
nákvæmlega eins og stóll manns
hennar að öðru leyti en því, að
hann stóð lægra, og hún var full-
komlega þögul eins og sæmdi
góðri eiginkonu, því að hún hefur
ekki máls á neinu að fyrra bragði,
þegar eiginmaðurinn er viðstadd-
ur. Gömul vinnukona, nálega
jafngömul og frúin sjálf, stóð við
aðra hlið hennar. Hún hélt á
messingpípu í hendinni, og í hvert
sinn, sem gamla frúin rétti út
höndina, kveikti hún í örlítilli
tóbakskúlu, sem hún hafði hnoð-
að af mikilli vandvirkni og lagt
í haus pípunnar. Gamla frúin tók
síðan við pípunni, dró tvisvar að
sér reyk úr henni og rétti hana
síðan aftur til vinnukonunnar.
Þetta endurtók sig með stuttu
millibili. Vinnukonan gamla fram-
kvæmdi sinn hluta af því alltaf
með jafnmikilli nákvæmni og
virtist naumast þreytast. Ef aska
slæddist niður á hinn gráa silki-
kjól húsmóður hennar, dustaði
hún hana ávallt mjög vandlega
burtu með sínum hrukkóttu fingr-
um.
Á lægri stól fyrir framan gömlu
frúna sat tengdadóttir þeirra
hjónanna. Hún var enn ekki þrí-
tug að aldri þessi kona, sem hvorki
var frí né ófríð. Andlitsdrættir
hennar voru smágervir og reglu-
legir og hendur hennar voru óvið-