Fréttablaðið - 04.01.2023, Qupperneq 16
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur
Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf.
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn:
Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654,
Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Áður en Andrea Kristín Gunnars
dóttir lenti í slysinu örlagaríka
hafði hún alltaf verið dugleg að
hreyfa sig. Hún stundaði reglulega
blak, golf, göngur og hjólreiðar.
„Ég hef unnið að skóla og fræðslu
málum í rúmlega þrjátíu ár sem
kennari bæði á Akureyri og í Mos
fellsbæ. Af þeim hef ég síðastliðin
fimmtán ár starfað sem sérfræð
ingur og ráðgjafi hjá InfoMentor
þar sem ég sinni fjölbreyttum
verkefnum,“ segir Andrea.
Örlagarík hjólaferð
Haustið 2019 skellti Andrea sér
ásamt tveimur vinkonum í ellefu
daga hjólaferð til Króatíu. „Við
fórum þrjár valkyrjur frá Íslandi
í um þrjátíu manna hópi og í
siglingu frá Split á milli króatísku
eyjanna. Það var siglt á nóttunni
og á daginn hjóluðum við um eyj
arnar. Þetta var alger draumaferð
þar til næstsíðasta daginn þegar ég
datt,“ segir Andrea. „Hjólin sem við
vorum á voru ekki góð, en það vissi
ég ekki fyrr en við komum út. Ég
lenti með framdekkið ofan í holu,
f laug fram fyrir mig og lenti út í
vegarkanti. Ég skarst illa á vinstri
ökkla. Fóturinn var mjög illa
farinn og ég var hreinlega heppin
að hann skyldi ekki detta af. Ég
var öll lemstruð á vinstri hliðinni,
marin og blá og með sprungu í
upphandlegg.“
Andrea var flutt með þyrlu
á sjúkrahúsið í Split þar sem
hún dvaldi í níu daga. Hún fór
í stóra aðgerð og fætinum var
tjaslað saman með tveimur stórum
pinnum. „Á þriðja degi fékk ég
mikinn hita og þá var sýkingin
komin upp eftir fætinum. Ég þurfti
þá að fara í aðra aðgerð og varð
mjög lasin og veikburða í kjölfarið.
Spítaladvölin er efni í aðra grein en
aðstæður þarna voru vægast sagt
hræðilegar,“ segir Andrea.
„Heimferðin var söguleg og
það er eiginlega ótrúlegt að
vinkona mín hafi náð að drösla
mér heim með venjulegu flugi
og millilendingu í Kaupmanna
höfn. Fóturinn var mjög bólginn
og næstum svartur á litinn og ég
mátti ekki stíga í hann. Ég var því
keyrð um flugvellina í hjólastól og
lyft af f lugvallarstarfsmönnum í
flugsætin.
Að lokum komst ég þó heim
og fór beint á bráðamóttökuna í
Fossvogi þar sem beðið var eftir
mér. Þar sem ég var að koma frá
spítala erlendis og var með mikla
sýkingu fór ég beint í einangrun.
Enginn mátti koma til mín fyrstu
tvær vikurnar nema í búningi sem
við þekkjum svo vel eftir Covid
tímabilið. Ég er svo heppin með
fjölskyldu og vini að þrátt fyrir
búning og fyrirhöfn að heimsækja
mig þá leið ekki sá dagur að ein
hver kæmi ekki. Mér leið eins og ég
væri komin á fimm stjörnu hótel á
deild A7 á Landspítalanum í Foss
vogi miðað við spítalann í Split,“
segir Andrea.
Greri vel þökk sé kollageninu
Staðalbúnaðurinn á náttborðinu
alla spítaladvölina á Íslandi segir
Andrea að hafi verið kollagen og
Dvítamín frá Feel Iceland. „Ég
kynntist Feel Iceland kollageninu
þegar mamma kom með dollu
handa mér rétt eftir að ég kom
frá Króatíu. Hún hafði lesið sér
til um vöruna og var viss um að
hún myndi hjálpa mér. Það gerði
það heldur betur og í kjölfarið
lét ég krakkana mína kaupa það
fyrir mig þannig að ég átti alltaf
skammt.“
Þegar Andrea hafði dvalið um
tvær vikur á Landspítalanum í
Fossvogi var ákveðið að lýtalæknir
myndi gera húðágræðslu á henni.
„Hann myndi taka húð af lærinu
á mér og græða hana á sárið á
ökklanum. Mér var sagt að miklar
líkur væru á að svona húðágræðsla
heppnaðist ekki í fyrstu tilraun,
en ef þetta heppnaðist þá gæti
það flýtt bataferlinu um nokkrar
vikur. Í byrjun október var tekin
14x4 cm húð af lærinu með eins
konar „ostaskera“ og hún grædd
á ökklann. Allt gréri ótrúlega vel
og vil ég meðal annars þakka Feel
Iceland fyrir það,“ segir Andrea.
Kærkomin heimkoma
Allt í allt dvaldi Andrea í tíu vikur
á deild A7 í Fossvoginum þar sem
hún mátti ekki stíga í fótinn eða
nota vinstri handlegg. „Starfsfólkið
þar vildi allt fyrir mig gera og í lok
nóvember var ég svo heppin að
komast inn á Grensás. Ég var á legu
deildinni í fimm vikur og mætti
eftir það daglega í endurhæfingu.
Ég er ævinlega þakklát fyrir
endurhæfinguna á Grensás og það
dásamlega viðmót sem ég fékk þar.
Í byrjun snerist endurhæfingin
um að kenna mér og hjálpa mér að
komast upp tröppur svo ég gæti
verið heima um jólin. Ég komst
fyrst upp þrjár og fannst það erfitt,
en með herþjálfun Ingu sjúkra
þjálfara gekk þetta upp,“ segir
Andrea. „Þannig að ég komst
heim og upp fimm
tán tröppur þann 22.
desember, þá hafði ég
ekki komið heim til
mín síðan 5. septem
ber þegar ég „skrapp“
til Króatíu,“ bætir
Andrea við.
Andrea var í veik
indafríi þar til 1. mars
2020 þegar Covid
faraldurinn hófst. Þá
byrjaði hún að vinna
50% að heiman og
mætti á móti í sjúkra
þjálfun á Grensás. „Það
má segja að faraldur
inn hafi unnið með
mér þar sem ég gat
unnið að heiman, haldið
fundi og námskeið allt í
gegnum tölvuna. Vegna sýkingar
var ökklinn ónýtur og það þurfti
að stífa hann. Ég fór síðan í aðgerð
í byrjun maí 2020, ég mátti ekki
stíga í fótinn í átta vikur. Síðan var
ég í spelku í sex vikur eftir það.
Það er óhætt að segja að það sumar
hafi verið rólegt.
Í september sama ár, þegar eitt
ár var liði frá slysinu, gaus upp
sýking í fætinum. Ég komst strax
í aðgerð á Landspítalanum sem
heppnaðist vel. Sýkingin
var hreinsuð út og
gekk allt vel í kjöl
farið.“
Þakklát fyrir að geta gengið
Þegar þarna var komið sögu var
Andrea komin í 100% vinnu og
allt á uppleið. „Ég fór að komast í
göngutúra með hann Púka, Border
terrierhundinn minn, og dreif mig
út í hvaða veðri sem var. Ég fékk
mér bara góða skó og brodda.
Í sumar skellti ég mér í golfferð,
til að kanna hvort ég gæti gengið
völlinn og slegið eitthvað. Það
gekk eftir. Ég fór líka í göngu um
Borgarfjörð eystri með yndis
legasta ferðahóp sem til er og náði
að ganga þrjá daga af fimm. Þetta
var mikill sigur þar sem þriðji
dagurinn var rúmir sautján kíló
metrar og mikil hækkun í snjó og
alls kyns færi. Þarna kom gamla
góða seiglan að góðum notum
ásamt góðum hjálparhöndum. Ég
fór líka í frábæra ferð til Sikil
eyjar þar sem mikið var skoðað og
gengið,“ segir Andrea.
„Ég er svo þakklát fyrir að geta
gengið því það er sko alls ekki
sjálfgefið eftir svona slys. Þar hefur
kollagenið frá Feel Iceland klár
lega komið að góðum notum. Alla
morgna í fimm mánuði fékk ég
mér kollagenið út í hafragrautinn
ásamt bláberjum sem pabbi kom
með til mín. Þegar ég fékk nóg af
hafragrautnum fór ég að blanda
því út í Hleðslu eða möndlumjólk.
Samfleytt í átta mánuði tók ég
kollagenið inn upp á dag en fór
síðan upp frá því að taka kúra af
og til.
Oftast nota ég bláu hleðsluna,
set hana í hristiglas með klökum
ásamt 2 skeiðum af Feel Iceland
kollageninu. Ég fann og finn enn
mikinn mun á mér þegar ég tek
það. Fyrir utan gróandann á
fætinum þá finn ég mikinn mun á
nöglum, húð og hári sem er mun
heilbrigðara en áður. Í dag tek ég
kúra. Þá kaupi ég mér dollu og
klára hana. Síðan líður smá tími
og svo fer ég aftur af stað,“ segir
Andrea að lokum. n
Feel Iceland vörurnar fást meðal
annars á eftirtöldum stöðum:
Lyfju, Heilsuhúsinu, Lyfjum og
heilsu, Hagkaup, Fjarðarkaupum,
Apótekaranum, Fríhöfninni og
Nettó. Sjá nánar á feeliceland.com
Andrea blandar kollageninu frá Feel Iceland oftast út í Hleðslu. FRéttABLAðið/ERniR
Andrea fór síðasta sumar í fimm daga göngu um Borgarfjörð eystri með frábærum hóp ferðalanga. Mynd/AðSEnd
Í byrjun október
var tekin húð af
lærinu með „ostaskera“
og hún grædd á ökklann.
Allt gréri vel og vil ég
meðal annars þakka Feel
Iceland fyrir það.
Andrea Kristín
2 kynningarblað A L LT 4. janúar 2023 MIÐVIKUDAGUR