Fréttablaðið - 04.01.2023, Blaðsíða 21

Fréttablaðið - 04.01.2023, Blaðsíða 21
Nú erum við í flottri stöðu en enginn í liðinu er eitthvað sáttur. Það vilja allir fara upp á við. Alfons Sampsted, leikmaður Twente og íslenska karlalands- liðsins Micah Parsons var val- inn varnarnýliði ársins og var í öðru sæti í kjöri um varnarmann ársins á síðasta ári. Landsliðsmaðurinn Alfons Sampsted er genginn í raðir hollenska stórliðsins Twente. Hann kvaddi norska félagið Bodo/Glimt fyrir áramót eftir afar farsæl þrjú ár. Hinn 24 ára gamli Alfons er spenntur fyrir komandi áskorun og telur skrefið rétt á þessum tímapunkti. helgifannar@frettabladid.is Fótbolti Alfons Sampsted gekk í raðir Twente í Hollandi á frjálsri sölu á dögunum. Hann kemur frá norska félaginu Bodo/Glimt, þar sem hann átti góðu gengi að fagna. Bakvörðurinn segir í samtali við Fréttablaðið að Twente hafi sýnt sér áhuga fljótlega eftir að leiktíma- bilinu í Noregi lauk um miðjan nóv- ember. „Það var nokkuð langur aðdrag- andi að þessu. Eftir að ég kláraði tímabilið með Bodo/Glimt í nóvem- ber fer ég með landsliðinu í ferð og eftir hana fékk ég fyrst að heyra af áhuga Twente. Þetta var svona einn og hálfur mánuður,“ segir Alfons. Vildi skilja í góðu Hann lét Bodo/Glimt vita um leið og ákvörðun hans um að fara lá fyrir. „Af virðingu við þá sem vinna hjá Bodo/Glimt og klúbbinn sjálfan vildi ég segja þeim eins f ljótt og hægt var hvað ég ætlaði að gera. Það var svo þeir gætu fundið einhvern í mína stöðu og að við gætum skilið á góðum nótum.“ Alfons horfir stoltur til baka á tímann hjá Bodo/Glimt, þangað sem hann kom frá Norrköping fyrir tæpum þremur árum síðan. Leik- maðurinn viðurkennir að hafa ekki búist við því að félagið myndi ná eins frábærum árangri og raun ber vitni á tíma sínum þar. Bodo/Glimt varð norskur meistari í fyrsta sinn árið 2020 og aftur ári síðar. „Þetta voru þrjú f lott tímabil, bæði út frá Evrópuleikjunum og svo unnum við titilinn auðvitað tvisvar,“ segir Alfons. „Ég bjóst ekki við þessu þegar ég skrifaði undir. En fljótlega á fyrsta tímabilinu áttaði ég mig á því að við værum með hrikalega gott lið. Samstarfið á milli einstaklinga í liðinu var virkilega gott. Á einhvern hátt náðum við að viðhalda því í þessi þrjú tímabil þrátt fyrir að við værum að missa leikmenn til stórra liða eftir hvert tímabil, lykilmenn.“ Það var hálfmagnað hvernig Bodo/Glimt hélt alltaf uppteknum hætti þrátt fyrir að missa menn. „Eftir hvert tímabil spurði maður sig hvort við gætum haldið þessu á jafn- háu gæðastigi og áður. Maður komst einhvern veginn alltaf að því að við værum bara með frábæran hóp.“ Twente með háleit markmið Nú er Alfons hins vegar kominn til Twente. Það var þó ekki eina félag- ið sem hann gat valið um. „Það voru nokkrir möguleikar, eitthvað í Frakklandi og Þýskalandi. Tilfinn- ingin fyrir Twente var samt alltaf virkilega góð svo þetta var ekkert erfitt val.“ Alfons lýsir því þegar hann heill- aðist fyrst af Twente. „Þegar við í Bodo/Glimt vorum að fara að keppa við PSV í Evrópudeildinni notuðum við leik milli Twente og PSV til að undirbúa okkur. Við strákarnir vorum eftir það að ræða hvað þeir í Twente væru góðir. Við vorum heillaðir af kraftinum, hræðslu- leysinu þeirra við að spila og við- horfi Twente.“ Þegar kappinn heyrði af áhuga Twente fór hann svo að kynna sér liðið betur. „Þeir spila með miklum krafti, eru sóknarsinnaðir. Það er mikið svigrúm til að gera mistök og bæta sig. Heildarpakkinn heillaði mig bara.“ Twente hefur verið að sýna sitt rétta andlit undanfarið eftir smá dvala síðustu ár. Liðið hefur einu sinni orðið meistari, vorið 2010. Það féll hins vegar 2018 en virðist nú vera að finna taktinn. Sem stendur er Twente í fimmta sæti hollensku úrvalsdeildarinnar og í baráttu um Evrópusæti. „Twente horfir á sig sem eitt af stóru félögunum í Hollandi og er búið að gefa út að það vilji berjast um Evrópusæti á hverju ári. Nú erum við í f lottri stöðu en enginn í liðinu er eitthvað sáttur. Það vilja allir fara upp á við. Markmiðið er að stefna alltaf á efstu sætin í deildinni og þar af leiðandi Evr- ópukeppni.“ Ræddi við Arnar Þór Alfons segir að Arnar Þór Viðars- son landsliðsþjálfari hafi hjálpað sér að taka ákvörðun um að fara til Twente. Arnar var á mála hjá liðinu eitt tímabil er hann var leikmaður. „Á sínum tíma var ég með nokkra kosti og var bara að viðra hug- myndirnar við hann. Þá sagði hann mér frá sinni reynslu af Twente. Hún var góð. Hann sagði að þetta væri f lottur staður að vera á sem fótboltamaður og manneskja. Hann hafði virkilega góða hluti að segja, að þetta væri skemmtilegt næsta skref á ferlinum. Hans mat hafði mikið að segja þegar kom að því að taka ákvörðun.“ Alfons telur að hann geti tekið framförum með landsliðinu eftir skiptin til Twente. „Ég tel að ég geti lært margt hérna. Ég hef tekið eftir því fyrstu vikuna að það er hátt tempó og það er mikið lagt upp úr því að leysa sínar stöður. Ef ég set saman það sem ég hef lært um að vinna í kerfi og liðs- heild hjá Bodo/Glimt við það að vera hörkugóður í einn á móti einum og sem einstaklingur í Twente held ég að ég sé búinn að taka stórt skref og að það verði gott fyrir landsliðið.“ n Alfons Sampsted lék með Bodo/Glimt í Noregi fyrir áramót. Nú tekur við nýtt og spennandi verkefni með hollenska stórliðinu Twente. Fréttablaðið/Getty Alfons heillaðist strax af Twente kristinnpall@frettabladid.is ruðningur Micah Parsons, varnar- tröll frá Dallas Cowboys, er væntan- legur hingað til lands í vor þar sem hann og Andre Cisco, varnarmaður Jacksonville Jaguars, halda nám- skeið fyrir ungmenni í amerískum ruðningi. Þrátt fyrir ungan aldur og að vera að ljúka öðru tímabili sínu í NFL-deildinni hefur Parsons stimplað sig inn sem einn besti varnarmaður deildarinnar. „Þetta er ekkert smá nafn að fá hingað. Allir sem fylgjast með NFL- deildinni þekkja þetta nafn. Ég hlakka rosalega til að vera í kring- um hann og hlusta á hann,“ segir Úlfar Jónsson, leikmaður og þjálfari hjá Einherjum, en hann kemur að skipulagningu námskeiðsins. „Hann er einn besti varnarmaður deildarinnar og Cisco er byrjunar- liðsmaður hjá Jaguars. Við hrukkum í kút þegar við heyrðum af áhuga þeirra á að halda þetta námskeið hérna á Íslandi. Þeir sem standa á bak við þetta halda árlega sumar- búðir í Evrópu, oftast í Þýskalandi, Danmörku og Finnlandi þar sem íþróttin nýtur meiri vinsælda, en íþróttin fer stækkandi hér á landi. Svo hjálpar það okkur að þekkja ritstjóra American Footall Interna- tional sem hefur verið duglegur að skrifa um okkur undanfarin ár og hjálpað okkur að koma liðinu okkar á framfæri.“ Athygli vekur að námskeiðin eru fyrir unglinga. „Þetta getur reynst gríðarlega mikilvægt. Við erum bara með ákveðna reynslu en þarna kemur maður sem varð stjarna strax í háskólaboltanum. Við erum með efnilega unglinga sem eru að horfa á möguleikann á að fara út á skóla- styrk og jafnvel komast að í NFL- deildinni einn daginn og þetta gæti reynst dýrmætt í þessari vegferð.“ Úlfar segir að þarna verði um leið þjálfarar frá háskólum sem opni möguleikann á að íslenskir leik- menn komist á skólastyrk. „Þarna eru líka að koma þjálfarar frá menntaskólum og háskólum í Bandaríkjunum, það gefur þessum strákum meiri sýnileika. Það er komin heilmikil eftirvænting hjá yngri kynslóðinni að bíða eftir þessu.“ n Eitt stærsta nafn NFL-deildarinnar heldur námskeið á Íslandi Parsons fékk fullt hús stiga í kosningunni um varnarnýliða ársins í fyrra ásamt því að vera valinn í úrvalsliðið (e. All-Pro). Fréttablaðið/Getty MIÐVIKUDAGUR 4. janúar 2023 Íþróttir 17Fréttablaðið

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.