Fréttablaðið - 04.01.2023, Page 32
frettabladid.is
550 5000
RitstjóRn ritstjorn@frettabladid.is
AuglýsingAdeild auglysingar@frettabladid.is
PRentun & dReifing Torg ehf.
2022 - 2025
Láru G.
Sigurðardóttur
n Bakþankar
„Verkurinn særir líkt og djöfullinn!
Snjóstormur nístir í gegnum sálu
mína. Ég er við það að bugast … en
get ekki lagst í kör og gefist upp.
Eina leiðin úr þjáningunni er að
skera sjálfan mig upp,“ skrifaði
læknirinn Leonid Rogozov í dag-
bók sína árið 1961 þar sem hann
var staddur í rússneskri bækistöð á
Suðurskautslandinu. Vegna óveð-
urs var ekki hægt að flytja hann
á sjúkrahús – og hann var eini
læknirinn á svæðinu. Er skemmst
frá því að segja að Leonid fjarlægði
eigin botnlanga. Botnlanginn var
svo sýktur að hefði hann hikað
væri hann ekki til frásagnar.
Hugur er í mönnum í upphafi
árs. Samkvæmt könnunum setur
um helmingur fólks sér áramóta-
heit. Mæta í ræktina, minnka
mittismálið eða meika’ða. Drekka
minna. Læra og leika sér meira.
Lifa lífinu! Sjálf er ég hætt að setja
mér áramótaheit. Ég varð ekkert
hamingjusamari þótt ég kæmist í
betra form og svo varð ég bara fúl
út í sjálfa mig þegar heitin runnu
út í sandinn. Samt finnst mér gott
að horfa um öxl og endurskoða líf
mitt. Hverju vil ég minna af – og
hverju meira? Hvernig mun það
bæta líf mitt?
Í hugarheimi eru fáar hindranir,
nema neikvæðar hugsanir, sem
letja okkur. Þegar svo er í kot komið
gæti verið ráð að minnast þess að
við erum ekki hugsanir okkar, þær
spretta frá líffræðilegum ferlum en
ekki sálartetrinu. Við getum hins
vegar hugsað um þankagang okkar
og valið að einblína á suma þanka,
en gefa öðrum minni gaum.
Leonid gekk ákveðinn til verks
án þess að véfengja getu sína og
sýndi okkur hinum hvers hugurinn
er megnugur. Málið er bara að átta
sig á hvað það er sem bætir lífið – og
gera meira af því. n
Betra líf
Vatnagörðum 14 104 Reykjavík
litrof@litrof.is 563 6000 litrof.is
UMHVERFISVÆN
PRENTUN