Morgunblaðið - 18.08.2022, Side 4
4 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. ÁGÚST 2022
„Niðurstaða fundarins er sú að það
mun ekki takast að bjóða 12 mánaða
börnum leikskólavist í haust. Með-
alaldur þeirra barna sem fá innritun
á leikskóla fram að áramótum verður
14 til 15 mánuðir.“
Þetta sagði Marta Guðjónsdóttir,
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í skóla-
og frístundaráði Reykjavíkurborgar,
í samtali við mbl.is að loknum fundi
skóla- og frístundaráðs í gær.
Að sögn Mörtu kom einnig fram
að um 200 leikskólapláss væru laus
en ekki væri hægt að nýta þau vegna
manneklu. Þá sé alls 171 stöðugildi
laust á leikskólum borgarinnar.
Eins og kom fram í Morgun-
blaðinu í gær hefur Sjálfstæðisflokk-
urinn lagt fram tillögur að lausnum á
leikskólavandanum. Greint var frá
fimm þeirra í blaðinu í gær en tvær
hafa síðan bæst við. Önnur snýr að
því að fé fylgi hverju barni og stuðlað
verði að því að sjálfstætt starfandi
leikskólum fjölgi. Hin tillagan er sú
að upplýsingar um laus leikskóla-
rými og stöðu biðlista verði settar í
svokallað mæliborð á vef borgarinn-
ar.
Í dag tekur Ráðhús Reykjavíkur
við nýju hlutverki á meðan borgar-
ráðsfundi stendur. Hópur foreldra
barna sem var lofað leikskólaplássi í
haust ætlar að mæta með börnin sín í
Ráðhús Reykjavíkur í dag og setja
upp hústökuleikskóla. Er þetta í
annað sinn sem boðað er til mótmæla
vegna leikskólavandans.
Morgunblaðið/Hákon
Aukafundur Skóla- og frístundaráð fundaði um leikskólavandann í gær.
171 stöðugildi laust á
leikskólum í borginni
SLÚTTAÐU SUMRINU
ÚRVAL ÚTSÝN HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓPAVOGUR SÍMI 585-4000 GOLF@UU.IS
MEÐ SÓL OG SVEIFLU Á ALICANTE
INNIFALIÐ Í VERÐI:
FLUG OG GISTING
ÓTAKMARKAÐ GOLF
INNRITUÐ TASKA 20 KG OG HANDFARANGUR
GOLFBÍLL INNIFALINN
FLUTNINGUR Á GOLFSETTI
MORGUNVERÐUR
ÍSLENSK FARARSTJÓRN
26. - 30. ÁGÚST VERÐ FRÁ 126.900 KR.
Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA Á ALICANTE GOLF
26. ÁGÚST - 02. SEPT. VERÐ FRÁ 176.900 KR.
Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA Á ALICANTE GOLF
26. ÁGÚST - 06. SEPT. VERÐ FRÁ 240.900 KR.
Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA Á ALICANTE GOLF
26. ÁGÚST - 09. SEPT. VERÐ FRÁ 135.900 KR.
Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA Á ALICANTE GOLF
30. ÁGÚST - 2. SEPT. VERÐ FRÁ 110.900 KR.
Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA Á ALICANTE GOLF
30. ÁGÚST - 6. SEPT. VERÐ FRÁ 174.900 KR.
Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA Á ALICANTE GOLF
30. ÁGÚST - 9. SEPT. VERÐ FRÁ 226.900 KR.
Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA Á EL PLANTIO
Stökktu strax í sveiflu á Alicante. Í þessum ferðum
er spilað á El Plantio eða Alicante Golf og þú ræður
lengdinni á þinni ferð. Margar dagsetningar í boði
ÓTAKM
ARKAÐ
GOLF O
G AFNOT
AF GOL
FBÍL
INNIFA
LIÐ Í VERÐ
I
*NÝT
T* BÓ
KAÐU
GOLF
KENN
SLU
HJÁ PGA GOLFK
ENNAR
A Á
MEÐAN
Á FERÐIN
NI ÞIN
NI
STEND
UR
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Veðurstofa Íslands stefnir að því
að setja upp veðursjár á Skaga og
á Seyðisfirði nú í haust. Þær eru
næsta skref í uppbyggingu veð-
ursjárkerfis sem nær yfir allt Ís-
land og vel út á haf með geislum
sínum. Veðursjár eru öflugustu
tækin til mælinga á veðri, vindi og
úrkomu á stórum svæðum. Árni
Snorrason, forstjóri Veðurstofunn-
ar, segir að þetta sé mesta fjár-
festing Veðurstofunnar í innviðum
frá stofnun hennar fyrir meira en
100 árum en hún er fjármögnuð af
stjórnvöldum og Alþjóðaflugmála-
stofnuninni.
Veðurstofan hefur verið með
ratsjá, eða veðursjá eins og hún er
kölluð, á Miðnesheiði frá árinu
1990. Þar er fylgst með hvernig
veðrið berst upp að landinu, enda
koma flestar lægðirnar eftir braut
sem liggur þar um.
Betri upplýsingar um gosösku
Veðursjáin nýtist einnig til að
fylgjast með gosmekki og ösku-
dreifingu frá eldgosum og leggur
til lykilgögn í reiknilíkön. Óðinn
Þórarinsson, framkvæmdastjóri
athugana- og tæknisviðs Veður-
stofunnar, rifjar upp að í kjölfar
gossins í Eyjafjallajökli árið 2010,
sem hafði mikil áhrif á flug um
Norður-Atlanatshaf, hafi orðið ljós
þörf fyrir betri mælingar á gos-
mekki og öskudreifingu. Vegna
lögunar jarðar sást gosmökkurinn
í Eyjafjallajökli ekki frá Miðnes-
heiði fyrr en hann var kominn í
þriggja kílómetra hæð. Alþjóða-
flugmálastofnunin fjármagnaði í
kjölfarið kaup á tveimur færanleg-
um veðursjám til notkunar í ná-
grenni við eldsumbrot en þær hafa
undanfarið verið staðsettar í ná-
grenni við nokkrar af virkustu eld-
stöðvum landsins, Heklu, Kötlu og
Grímsvötn. Til viðbótar keypti
Veðurstofan ratsjá sem varnarliðið
skildi eftir á Keflavíkurflugvelli og
var hún sett upp á Miðfelli á
Fljótsdalsheiði. Þessar fjórar veð-
ursjár, fastar og færanlegar, hafa
myndað net sem notað er til að
fylgjast með veðurkerfum og til
eftirlits með gosmekki og ösku-
dreifingu í eldgosum.
Óðinn segir að færanlegu veður-
sjárnar hafi ekki sömu drægni og
þær föstu og það takmarki vissu-
lega notagildi þeirra til eftirlits
með veðri. Þá sé stöðin á Fljóts-
dalsheiði komin til ára sinna. Þess
vegna hafi Veðurstofan kynnt
stjórnvöldum tillögu um uppbygg-
ingu nýs veðursjárkerfis með sex
föstum ratsjám. Áætlunin hafi ver-
ið samþykkt og fjármagn fengist á
fjárlögum jafnframt því sem Al-
þjóðaflugmálastofnunin, ICAO,
leggi mikla fjármuni í uppbygg-
inguna. Kostnaður er áætlaður
hálfur annar milljarður og segir
Óðinn miðað við að kerfið verið
tilbúið í síðasta lagi árið 2030. Þó
séu vonir bundnar við að það verði
mun fyrr, jafnvel innan fimm ára.
Nú er verið að undirbúa upp-
setningu stöðva á Selfjalli á Skaga
og Bjólfi við Seyðisfjörð. Óðinn
segir stefnt að því að önnur eða
báðar veðursjárnar verði settar
upp fyrir veturinn. Líklegt sé að
fjórða stöðin verði sett upp á Mel-
rakkasléttu, sú fimmta í nágrenni
Kirkjubæjarklausturs og sú sjötta
á Bolafjalli við Ísafjarðardjúp.
Áberandi mannvirki
Veðursjárnar verða áberandi
mannvirki. Eðli málsins sam-
kvæmt standa þær hátt í landinu
og eru sjálfar tæplega 12 metrar á
hæð. Efsti hlutinn er hvít kúla
sem skýlir loftnetsdiskinum og
öðrum tækjabúnaði en húsið undir
nýju ratsjánum verður áttstrend-
ingur byggður úr forsteyptum ein-
ingum.
Þótt kröfur alþjóðaflugsins, um
betri upplýsingar um dreifingu
gosösku, hafi verið kveikjan að
þessu mikla átaki þá nýtast veð-
ursjárnar við almennt starf Veð-
urstofunnar. Óðinn segir hægt að
fylgjast með veðurkerfunum, til
dæmis hversu mikil úrkoma er í
þeim og hversu mikill vindur fylgi.
Lægðir sem koma inn á landið úr
norðri geta leitt til ofanflóða og
eru upplýsingar úr veðursjám lyk-
ilupplýsingar í eftirliti og spám
fyrir ofanflóðasvæði.
Nýtt öflugt veðursjárkerfi sett upp
- Mesta fjárfesting Veðurstofunnar - Nýjar stöðvar á Skaga og við Seyðisfjörð á næstu mánuðum og
þrjár til viðbótar á næstu árum - Nýtast alþjóðafluginu, við veðurspár og eftirlit með ofanflóðasvæðum
Ljósmynd/Hermann Arngrímsson
Veðursjá Kúlan hífð á sinn stað við endurnýjun stöðvarinnar á Miðnesheiði.
Miðnesheiði Húsið undir kúlunni
verður öðruvísi á nýju stöðvunum.
Veðursjárnet á Íslandi
1
2
5
6
4
7
1 Miðnesheiði
Ný stöð komin
í gagnið
2 Selfjall á Skaga
Stefnt að upp-
setningu í haust
3 Bjólfur í Seyðisfirði
Stefnt að uppsetningu
í haust
4 Melrakkaslétta Staðsetning óákveðin
5 Nágrenni Kirkjubæjar-
klausturs
Staðsetning óákveðin
6 Bolafjall Staðsetning óákveðin 7 Miðfell á Fljótsdalsheiði
3