Morgunblaðið - 18.08.2022, Side 10

Morgunblaðið - 18.08.2022, Side 10
10 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. ÁGÚST 2022 DAGSKRÁ 13:15 - 14:30 14:30 & 16:00 13:00 - 17:00 Laganemar endurflytja mál í dómsal 101 sem leiddu til aðskilnaðar dóms- og framkvæmdavalds og stofnunar héraðsdómstólanna. Leiðsögn um hús Héraðsdóms Reykjavíkur í boði Péturs Ármannssonar arkitekts. Krakkahorn í dómsal 102 þar sem hægt verður að máta dómaraskikkjur og ýmis fróðleikur í boði. Kaffi í boði Héraðsdómur Reykjavíkur | Dómhúsið við Lækjartorg | heradsdomstolar.is Opið hús í Héraðsdómi Reykjavíkur Menningarnótt laugardaginn 20. ágúst. kl. 13-17 í tilefni 30 ára afmælis héraðsdómstóla á Íslandi 1. júlí sl. 1992-2022 DAGMÁL Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Garðar Stefánsson og samstarfs- menn hans töldu mikil tækifæri fel- ast í framleiðslu sætuefna, einkum úr stevíu. Þeir ofmátu hins vegar tækifærin til sölu þessara efna, jafnvel þótt þeim hafi orðið ágengt á mörkuðum í Þýskalandi og Portú- gal. Þegar ljóst var að þeir sætu uppi með nokkur tonn af fram- leiðslu sinni ákváðu þeir að hraða sjálfir vöruþróun þar sem þessi efni léku lykilhlutverk. „Við áttum fleiri, fleiri tonn af sætuefnum sem voru að fara að renna út. Við urðum að gera eitt- hvað við þetta [...]“ útskýrir Garðar og segir að hann hafi tekið til við að gera stevíublandaða bláberja- sultu í eldhúsinu heima hjá sér. „Ég bjó til einhverja verstu sultu sem ég hef nokkurn tíma bragðað. Það var fyrsta skref en eftir svona hundrað tilraunir tókst okkur að mastera þetta og búa til þetta jafn- vægi.“ Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar, ekki síst í vöruþróun. Nú er svo komið að Good Good vermir 15. sætið yfir stærstu sultuframleið- endurna á Bandaríkjamarkaði. Vöruþróunin og framleiðslan hef- ur hins vegar ekki einskorðast við sultugerð, heldur teygir sig yfir í súkkulaðismjör og vöfflumix, og nú síðast í þessari viku kynnti fyrir- tækið til sögunnar hnetusmjör án viðbætts sykurs. Með haustinu verður það aðgengilegt íslenskum neytendum. Bandaríkin lykilmarkaður Garðar segir sókn fyrirtækisins á Ameríkumarkað ekki tilviljun. Þar búi ríflega 300 milljónir manna og að hagræði felist í því að geta framleitt vöruna í einni tegund um- búða með sömu innihaldslýsing- unni. Í Evrópu sé staðan flóknari enda mismunandi reglur sem gildi og tungumálin mörg. Hann segir einnig að fyrirtækið hafi með afgerandi hætti haslað sér völl á sultumarkaðnum í Bandaríkj- unum. „Við vorum fyrstir á markað með sultu sem er náttúruleg, er með 60% ber eða aðra ávexti og svo notum við sætuefni til þess að auka sætuna. Á markaðnum eru mest sykurlausar sultur sem eru bara bragðefni og gervisæta. Þann- ig að við komum þarna inn með nýja vöru í þessum flokki þar sem hefur ekki verið nýsköpun í fleiri fleiri ár.“Garðar segir að það hjálpi fyrirtækinu að þeir sem ahyllist ketó-mataræði hafi tekið vörunum fagnandi. Þær fái mikla umfjöllun á netinu hjá þessum hópi og það ryðji þeim braut inn í matvöru- keðjur. Bandaríkin spennandi og krefjandi - Mestur vöxtur í vörusölu Good Good í Bandaríkjunum - Erfitt að koma vörum að hjá stórum keðj- um - Nýjar vörur hafa náð fótfestu í gegnum netsölu - Framleiðslan í Bandaríkjunum og Evrópu Uppbyggingin Garðar Stefánsson kom að uppbyggingu tveggja saltframleiðslufyrirtækja áður en hann beindi sjón- um sínum að sætuefninu stevíu. Hann hefur frá 2015 stýrt uppbyggingu Good Good og segir tækifærin óteljandi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.