Morgunblaðið - 18.08.2022, Side 14

Morgunblaðið - 18.08.2022, Side 14
14 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. ÁGÚST 2022 ugri staðsetning en höfuðborgar- svæðið vegna nálægðar við svæðin þar sem rússneskir kafbátar athöfn- uðu sig reglulega. Þá myndi slík að- Kristján H. Johannessen khj@mbl.is „Komið hefur fram að mikill áhugi sé fyrir hendi hjá Bandaríkjaher á aðstöðu á Austurlandi til þess að auðvelda eftirlit með ferðum rúss- neskra kafbáta um Norður-Atlants- hafið, sem fyrir liggur að hefur stór- aukist á síðustu árum. Hvað sem líður frétt Frétta- blaðsins á dögun- um, sem ekki verður séð að hafi átt við rök að styðjast.“ Þetta segir Hjörtur J. Guð- mundsson, sagn- fræðingur og al- þjóðastjórnmálafræðingur, í samtali við Morgunblaðið, en Fréttablaðið greindi frá því á forsíðu 29. júlí síð- astliðinn að Atlantshafsbandalagið (NATO) hefði farið fram á heimild til að reisa viðlegukant á Langanesi og að Landhelgisgæsla Íslands hefði áhuga á að nýta aðstöðuna. Sama dag sendi utanríkisráðuneytið hins vegar frá sér tilkynningu um að eng- in slík áform væru uppi og að stað- hæfingar um beiðni frá NATO ættu sér enga stoð í raunveruleikanum. Austurland sagt hentugra Fram kom í viðtali Morgunblaðs- ins við bandaríska flotaforingjann Robert Burke, þáverandi yfirmann bandaríska sjóhersins í Evrópu, í lok október 2020, að áhugi væri fyrir því að fjölga þjónustusvæðum fyrir sjó- herinn á Íslandi. Horft væri sérstak- lega til Austurlands sem væri hent- staða geta stutt við öflugri leit og björgun á hafsvæðinu umhverfis landið. Aukinn áhugi bandarískra ráða- manna á undanförnum árum, á því að efla samstarf við Íslendinga á sviði varnarmála, hefur ekki leynt sér að sögn Hjartar. Þessi áhugi hafi meðal annars sýnt sig í aukinni fjár- festingu í varnarmannvirkjum hér á landi á vegum Bandaríkjahers. Sú uppbygging snúi þó ekki að varan- legri viðveru herliðs hér á landi, líkt og var fyrir hendi á árum kalda stríðsins, enda hafi bæði íslenskir og bandarískir ráðamenn ítrekað lýst því yfir að engin áform væru uppi um slíkt. Helstu innviðir séu fyrir hendi „Hins vegar þarf eftir sem áður að sjá til þess að nauðsynlegir innviðir séu fyrir hendi til þess að tryggja megi varnir landsins og Bandaríkin geti staðið við skuldbindingar sínar í þeim efnum samkvæmt varnarsamn- ingnum á milli landanna. Hugmyndir um hafnaraðstöðu á Austurlandi, sem gæti þjónustað herskip á vegum Bandaríkjanna og annarra aðildar- ríkja NATO, eru í þeim anda enda liggur sá landshluti hvað best við þeim svæðum sem einkum þarf að hafa eftirlit með,“ segir hann. Fyrir vikið sé áhugi Bandaríkja- manna á Austurlandi skiljanlegur. Vísar Hjörtur þar til að mynda til skýrslu sem gefin var út af breska varnarmálaráðuneytinu fyrr á þessu ári þar sem fram kemur meðal ann- ars að umferð rússneskra kafbáta um Norður-Atlantshafið sé nú sam- bærileg við það sem gerðist á tímum kalda stríðsins. Við þeirri stöðu hafi Bandaríkjamenn verið að bregðast í samráði við íslensk stjórnvöld. Ekki síst með því að tryggja að nauðsyn- leg aðstaða sé fyrir hendi hér á landi. Gæslan í alla landshluta Spurður hvort ekki megi gera ráð fyrir því að aukin umsvif Banda- ríkjahers á Austurlandi myndu styrkja stoðir atvinnulífs á svæðinu segir Hjörtur að þótt ákvarðanir í varnarmálum sem slíkar snúist ekki fyrst og fremst um efnahagsleg áhrif þeirra liggi engu að síður fyrir að slíkar ákvarðanir gætu hæglega haft í för með sér jákvæð áhrif í at- vinnumálum. Viðbúið sé þannig að hugsanleg innviðauppbygging vegna varnarmála á Austurlandi myndi skapa störf á svæðinu, bæði til skemmri og lengri tíma. Hvað Landhelgisgæsluna varðar segir Hjörtur að það myndi án efa styrkja starfsemi hennar að geta nýtt slíka aðstöðu á Austurlandi fyr- ir varðskipin og mögulega björgun- arþyrlurnar líka. „Sjálfur hef ég talað fyrir því á undanförnum árum, meðal annars á síðum Morgunblaðsins, að æskilegt væri að Landhelgisgæslan hefði fasta aðstöðu í öllum landshlutum fyrir varðskip og þyrlur. Einkum vegna öryggis fiskveiðiflotans en einnig vaxandi umferðar farþega- og flutningaskipa. Þetta væri klárlega skref í rétta átt í þeim efnum.“ Skiljanlegur áhugi á Austurlandi - Hugmyndir um aðstöðu fyrir NATO á Austurlandi til þess fallnar að efla varnir landsins sem og leit og björgun - Aukinn áhugi meðal bandarískra ráðamanna - Viðbúið að störf sköpuðust á svæðinu Morgunblaðið/Árni Sæberg Varnarsamstarf Þessi herskip lágu þétt saman í Sundahöfn í Reykjavík í apríl síðastliðnum áður en haldið var á varnaræfinguna Norður-Víking. Hjörtur J. Guðmundsson Sundaborg 7-9 | 104 Reykjavík | Sími 511 4747 | www.northwear.is Starfsmannafatnaður Hvar er næsta verkstæði? FINNA.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.