Morgunblaðið - 18.08.2022, Qupperneq 25
FRÉTTIR 25Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. ÁGÚST 2022
Stór alþjóðleg vísindaráðstefna fer
fram í Hörpu á vegum Veðurstofu
Íslands dagana 21. til 26. ágúst um
afdrif íss og snævar í hlýnandi
loftslagi jarðar. Um 150 vís-
indamenn taka til máls á ráðstefn-
unni en alls sækja fleiri en 330 vís-
indamenn ráðstefnuna, sem ber
heitið Cryosphere 2022.
Fjallað verður um ummerki
hlýnandi loftslags og vísindamenn
kynna nýjustu niðurstöður rann-
sókna á því sviði skv. umfjöllun á
vef Veðurstofunnar.
„Ráðstefnan og efniviður hennar
er mikilvægt tækifæri til að móta
framtíðarstefnu í þessum mála-
flokki,“ er haft eftir Árna Snorra-
syni, forstjóra Veðurstofunnar.
„Það að takast á við loftslagsbreyt-
ingar er stærsta verkefni sam-
félagsins um ókomin ár og vöktun,
rannsóknir og miðlun upplýsinga
um loftslagsbreytingar er að verða
sífellt stærri og mikilvægari þáttur
í hlutverki Veðurstofunnar,“ segir
hann. Árni bætir við að viðbrögðin
þurfi að byggjast á samtali fulltrúa
ríkisstjórna, alþjóðastofnana og
vísindafélaga. Þessi ráðstefna sé
hluti af því samtali. „Ég veit að í
erindum sem verða flutt koma
fram skýr skilaboð um alvarleika
stöðunnar sem er ekki hvað síst
sýnileg á norðurhveli, en þar eru
breytingarnar örari en annars
staðar á jörðinni,“ segir Árni.
Nýjar niðurstöður rannsókna
Flutt verða sérhæfð erindi frá
þriðjudegi til föstudags og auk er-
inda sem vísindamennirnir flytja
verða niðurstöður margvíslegra
rannsókna kynntar, með um 170
veggspjöldum.
„Árlega eru haldnar ráðstefnur
um margvísleg áhrif loftslags-
breytinga en nýmæli er fólgið í því
að fjalla á sama þinginu um alla
þætti hins svonefnda freðhvolfs
jarðar og samspil þess við veðra-
hvolfið og úthöfin, “ er haft eftir
Þorsteini Þorsteinssyni, sérfræð-
ingi á Veðurstofunni. Fjallað verði
m.a. um hveljökla, fjallajökla, snjó-
þekju, hafís, sífrera og lagnaðarís
og jafnt um breytingar í fortíð, nú-
verandi ástand og framtíð-
arhorfur.
Afdrif íss
og snævar
í hlýnandi
heimi
- Alþjóðleg vísinda-
ráðstefna í Hörpu
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Eyjafjallajökull 150 vísindamenn
flytja erindi á ráðstefnunni.
Líney Sigurðardóttir
Þórshöfn
Viðgerð stendur nú yfir á Þórs-
hafnarkirkju en í langan tíma hefur
þar verið lekavandamál, einkum
frá turninum. Skemmdir hafa orðið
innandyra vegna þessa en loks mun
sjá fyrir endann á því.
Reiknað er með að verkinu ljúki í
septemberlok en undirbúningur
hófst í júlíbyrjun. Veðurguðirnir
hafa ekki verið hliðhollir verktök-
um, þótt um kirkjuþak sé að ræða,
og nokkru lengri tími farið í verkið
vegna þess.
„Helmingur verksins er þó loks-
ins búinn, sjálf turnspíran, sem hef-
ur 75° halla svo nú er bara að fara
með bænirnar og biðja um betra
veður,“ sagði verktakinn Ævar V.
Ævarsson.
Það er ekki fyrir lofthrædda að
príla á kirkjuþakinu en skipta þarf
um pappa, þakkant og þakjárnið.
Fyrsta skóflustunga var tekin að
Þórshafnarkirkju árið 1993 og hún
var vígð árið 1999. Kirkjan tekur
160 manns í sæti og hefur mögu-
leika á fjölbreyttu safnaðarstarfi.
Þar er einnig ágætt safnaðarheim-
ili sem er nýtt til ýmissar starfsemi
en í kirkjunni sjálfri er afar góður
hljómburður og hafa kórar og
hljóðfæraleikarar lýst mikilli
ánægju með það.
Þórshafnarkirkja fær nýtt þak
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
Nýtt þak Unnið hefur verið við að leggja nýtt þak á Þórshafnarkirkju.
- Lekavandamál hafa verið í kirkjunni lengi - Veður tefur
framkvæmdir - Reiknað með verklokum í septemberlok
HJÓLAÐU Í SKÓLANN
EITTMESTA ÚRVAL LANDSINS AF REIÐ- OG RAFHJÓLUM
ME I R I H R E Y F I NG - ME I R I ÁNÆG JA
MARLIN5
Frábært fjölnota hjól
Álstell - 24 gírar
Vökva diskabremsur
Læsanlegur dempari
Gunmetal
TREK Black
129.990 kr.
DS2
Frábært fjölnota hjól
Álstell - 24 gírar
Vökva diskabremsur
Matte Dnister Black
109.990 kr.
FX2Disc
Frábært fjölnota hjól
Álstell, 16 gírar
Vökvabremsur
Lithium Grey Chrome
114.990 kr.
Skoðaðu úrvalið á www.orninn.is
Sendum hvert á land sem er fyrir 2.990 (verð fyrir eitt reiðhjól) FAXAFEN 8 - SÍMI 588 9890
Fleiri litir í boði