Morgunblaðið - 18.08.2022, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 18.08.2022, Qupperneq 26
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. ÁGÚST 2022 Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is stalogstansar.is VARAHLUTIR Í KERRUR 2012 2021 ELTAK sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Rússneskir togarar halda áfram að landa og fá þjónustu í norskum höfn- um þrátt fyrir að það sé hvergi leyfi- legt annars staðar í Evrópu, þar með talið á Íslandi, vegna sameiginlegra efnahagsaðgerða sem beint er gegn stjórnvöldum í Rússlandi í kjölfar innrásarinnar í Úkraínu. Norsk stjórnvöld segjast í svari við fyrir- spurn blaðamanns hafa veitt rúss- neskum fiskiskipun undanþágu, í þeim tilgangi að viðhalda fiskveiði- samstarfinu í Barentshafi. Frá byrjun þessa árs til 7. ágústs síðastliðins lönduðu rússneskir tog- arar 90.570 tonnum af sjávarfangi í norskum höfnum, að verðmæti 1,5 milljarða norskra króna, jafnvirði 21,4 milljarða íslenskra króna. Um er að ræða um 4.000 tonnum minni afla en á sama tímabili í fyrra en á móti kemur að verðmæti afurðanna er hátt í 50% meiri en þá. Svein-Ove Haugland, fram- kvæmdastjóri samtaka norskra fisk- vinnslustöðva (Norges Råfisklag), viðurkenndi í Fiskeribladet á dög- unum að um 15% af aflanum væri unninn í Noregi, en restin væri áframseld til vinnslu í Evrópu, þar sem helsti áfangastaðurinn er Hol- land. „Bæði eigendur og lögaðilar frá Rússlandi voru settir á refsiað- gerðalistann og urðu bankarnir fyrir áhrifum á sama tíma. En eftir þetta lítur út fyrir að afhendingarmynstur til flotans hafi gengið nánast eins og venjulega,“ var haft eftir Haugland. Þá fullyrti Haugland að bann við löndun rússneskra togara myndi hafa lítil áhrif á rekstur norskra fisk- vinnslna þar sem landað magn hefur dregist saman frá upphafi kór- ónuveirufaraldursins. Styður við stríðsreksturinn Norska viðskiptablaðið Dagens Næringsliv fjallaði 12. ágúst um það hvernig fiskiskip einnar af stærstu útgerðum á heimsvísu, Norebo, fái að landa og stunda viðskipti óáreitt í Noregi. Útgerðin er í eigu ólígarkans Vitaly Orlov sem er meðal auðugustu manna Rússlands, metinn á 2,1 millj- arð bandaríkjadala sem er jafnvirði um 291 milljarðs íslenskra króna. Or- lov hefur verið ötull stuðningsmaður Vladímírs Pútíns, forseta rússneska lýðveldisins, og stutt flokk forsetans, Sameinað Rússland, fjárhagslega í gegnum árin. Niðurstaða alþjóðlegra sérfræð- inga á sviði efnahagsþvingana full- yrtu í samtali við blaðamenn Dagens Næringsliv að Noregur væri, með því að leyfa umrædd viðskipti í norskum höfnum, að ýta undir stríðsrekstur Pútíns í Úkraínu. Yfirvöld í Noregi hafa því, þvert á yfirlýsingar sínar, ekki fylgt fordæmi Evrópusambandsins og annarra sam- starfsríkja, eins og til að mynda Ís- lands. Hér á landi var tilkynnt um að öllum skipum undir rússneskum fána væri óheimill aðgangur að íslenskum höfnum. Í apríl afturkallaði Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, undanþágu fyrir rússneska togara til löndunar og umskipunar í íslenskum höfnum. Aðlagaðar refsiaðgerðir „Noregur hefur tekið þátt í refsi- aðgerðum ESB gegn Rússlandi, að- lagað einstökum þjóðlegum skil- yrðum. Efnahagsaðgerðirnar hafa verið innleiddar í nokkrum lotum undanfarið hálft ár og eru þær um- fangsmestu í sögulegu samhengi. Þessar aðgerðir eru nauðsynleg við- brögð við hrottalegu og tilefnislausu árásarstríði Rússa gegn Úkraínu,“ segir í svari Eivinds Vad Pet- erssons, ríkisritara norska utanrík- isráðuneytisins (aðstoðarmanns ráð- herra), við fyrirspurn Morgunblaðsins. „Noregur hefur meðal annars gefið út bann við því að veita skipum undir rússneskum fána aðgang að höfnum á meginlandi Noregs. Hafnarbann ESB er því miður nokkuð óljóst. Í norska regluverkinu er lögð áhersla á að það sé fyrirsjáanlegt, not- endavænt og skýrt. Einnig hefur ver- ið tekið tillit til þess að Noregur ásamt Rússum ber ábyrgð á hinum mikilvæga þorskstofni í Barentshafi. Þetta er eitt fengsælasta hafsvæði heims. Við erum algjörlega háð nýt- ingarstjórnun á norðlægu slóðunum sem bæði tekur tillit til lang- tímamarkmiða og sjálfbærni þannig að við hlúum að þeim tegundum sem þar lifa og verndum lífríkið. Noregur kaus því að taka upp almenna und- anþágu frá hafnarbanninu fyrir fiski- skip.“ Rússneskir togarar halda áfram að landa í Noregi - 21,4 milljarðar króna - Stuðningsmaður Pútíns hagnast AFP Stríð Stefna Norðmanna er sögð styðja við stríðsrekstur Rússa. Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Stjórn Útgerðarfélags Reykjavíkur hf. (ÚR) hefur ákveðið að selja frystitogarann Sólborgu RE-27 ásamt allri aflahlutdeild ÚR í makr- íl, loðnu, veiðiheimildum í Barents- hafi og 11,42% af aflaheimildum í gulllaxi, að því er fram kemur í til- kynningu frá félaginu. Þar segir að kaupandinn sé óstofnað dótturfélag, að fullu í eigu ÚR, og að söluverðmætið sé 12,3 milljarðar króna. Þá var bókfært virði eignanna 41,7 milljónir evra um síðustu áramót, jafnvirði um 5,8 milljarða íslenskra króna, eða um 8,3% af eignum ÚR eins og þær voru um síðustu áramót í samstæðuárs- reikningi fyrirtækisins. Áhöfninni sagt upp í sumar Samkvæmt tilkynningunni gera áætlanir ÚR ráð fyrir að skipið verið gert út í óbreyttri mynd í eigu hins óstofnaða félags. Fyrr í sumar var sagt frá því að allri áhöfn Sólborgar hefði verið sagt upp og að til stæði að kaupa annað skip. Um borð hafa starfað tvær 24 manna áhafnir. Runólfur Viðar Guðmundsson, framkvæmdastjóri, segir í samtali við 200 mílur að ekki sé til skoðunar nú að festa kaup á nýju skipi. „Þegar verið er að reka stórt fyrirtæki er alltaf verið að skoða marga mögu- leika og sífellt þörf á að taka ákvarð- anir eftir breyttum aðstæðum,“ seg- ir hann og kveðst ekki ætla að tjá sig öðru leyti. Þegar til uppsagnanna kom í sum- ar hafði ÚR gert skipið út í minna en ár, en upphaflegur tilgangur kaupa ÚR á Sólborgu var sagður vera veið- ar í Barentshafi. Lögsaga Rússlands lokaðist fyrir íslenskum skipum í kjölfar innrásar Rússlands í Úkra- ínu. Morgunblaðið/Unnur Karen Frystitogari Gert er ráð fyrir að Sólborg RE-27 verði gerð út í óbreyttri mynd en af dótturfélagi ÚR. Kvóti skipsins fylgir með til dótturfélagsins. ÚR selur frysti- togara og kvóta - Selt á 12,3 milljarða til dótturfélags Afurðaverð á markaði 17. ágúst,meðalverð, kr./kg Þorskur, óslægður 526,85 Þorskur, slægður 533,48 Ýsa, óslægð 495,25 Ýsa, slægð 442,38 Ufsi, óslægður 192,60 Ufsi, slægður 279,56 Gullkarfi 238,45 Blálanga, slægð 250,20 Langa, óslægð 48,10 Langa, slægð 357,52 Keila, óslægð 153,01 Keila, slægð 181,28 Steinbítur, óslægður 128,23 Steinbítur, slægður 309,98 Skötuselur, slægður 854,07 Grálúða, slægð 178,59 Skarkoli, slægður 543,72 Þykkvalúra, slægð 547,25 Langlúra, óslægð 261,15 Langlúra, slægð 153,00 Sandkoli, óslægður 118,27 Sandkoli, slægður 108,00 Hlýri, óslægður 279,35 Hlýri, slægður 365,42 Lúða, slægð 618,14 Lýsa, óslægð 112,74 Lýsa, slægð 123,44 Makríll 82,12 Náskata, slægð 11,00 Skata, slægð 80,00 Tindaskata, óslægð 11,67 Undirmálsýsa óslægð 195,08 Undirmálsþorskur óslægður 289,05

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.