Morgunblaðið - 18.08.2022, Page 29

Morgunblaðið - 18.08.2022, Page 29
FRÉTTIR 29Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. ÁGÚST 2022 18. ágúst 2022 Gjaldmiðill Gengi Dollari 138.49 Sterlingspund 166.59 Kanadadalur 107.3 Dönsk króna 18.866 Norsk króna 14.254 Sænsk króna 13.316 Svissn. franki 145.77 Japanskt jen 1.0308 SDR 182.27 Evra 140.3 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 173.6584 « Hagnaður Atl- antsolíu nam í fyrra tæplega 221 milljón króna, samanborið við 198 milljónir króna árið áður. Í samstæðu- reikningi félags- ins kemur fram að tekjur Atlantsolíu hafi í fyrra numið tæpum 7,5 milljörðum króna og hafi hækkað um rúmlega 1,5 milljarð á milli ára. Hagnaður fyrir skatta nam 291 milljónum króna og hækkar lítillega á milli ára. Eigið fé var í árslok tæpur 1,1 milljarður króna en félagið greiddi 400 milljónir króna í arð til eigenda sinna á árinu, líkt og árið áður. Sem fyrr segir námu tekjur félagsins í fyrra um 7,5 milljörðum króna en þær hafa aldrei verið hærri en nú. Eigendur Atlantsolíu eru Guðmundur Kjærnested og Bandaríkjamaðurinn Brandon Charl- es Rose, sem eiga móðurfélagið, Atl- antsolía Investments. Félagið var sett í söluferli árið 2018 en ekkert varð af þeirri sölu. Síðar sama ár keypti félagið fimm þjónustustöðvar af Olís á höf- uðborgarsvæðinu. Atlantsolía rekur í dag 25 sjálfsafgreiðslustöðvar, þar af 16 á höfuðborgarsvæðinu. Tekjur Atlantsolíu aldrei verið hærri en í fyrra Bensínstöð Atlants- olíu við Sprengisand. STUTT « Nýsköpunarfyrirtækið Spectaflow hefur fengið nýtt nafn og heitir nú Sweeply. Fyrirtækið fékk fyrr á árinu 260 milljóna fjármögnun frá Frumtaki og Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins. Sweeply þróar hugbúnaðarlausn sem sjálfvirknivæðir dagleg verkefni hjá starfsfólki hótela og gististaða. Lausnin er í notkun á yfir 100 hótelum og gisti- stöðum í sex löndum en í tilkynningu frá félaginu kemur fram að náðst hafi samningar við tvö íslensk og fimm er- lend hótelbókunarkerfi sem munu dreifa lausninni. Nýja stjórn skipa þau Eggert Claessen (formaður), Magnea Þórey Hjálmarsdóttir, Sigrún Dóra Sæ- vinsdóttir, Friðrik Friðriksson og Erlend- ur Steinn Guðnason. Morgunblaðið/Árni Sæberg Nýsköpun Pétur Orri Sæmundsen, fram- kvæmdastjóri og einn stofnenda Sweeply. Spectaflow fær nýtt nafn og heitir nú Sweeply Boðið verður upp á hressingu á fundunum. Mótum framtíðina saman Skannaðu inn QR kóðann til að skrá þig. Forsætisráðherra býður til opinna samráðsfunda um landið vegna vinnu við Grænbók um mannréttindi. Á fundunum verður fjallað um stöðu mannréttinda á Íslandi, helstu áskoranir, tækifæri og valkosti til framfara. Öll eru velkomin. Skráning fer fram á stjornarradid.is/mannrettindafundur. Hægt er að fara inn á síðuna með því að skanna QR-kóðann í vinstra horni auglýsingarinnar. Gott aðgengi er á öllum fundarstöðunum fyrir hjólastóla og táknmálstúlkun stendur til boða sé þess óskað með 7 daga fyrirvara. Fundirnir verða á eftirtöldum stöðum: 29. ágúst kl. 16:00 Selfoss (Hótel Selfoss) 31. ágúst kl. 16:00 Reykjavík (Ríma í Hörpu) 5. september kl. 17:00 Akureyri (Hamar í Menningarhúsinu Hofi) 6. september kl. 17:00 Egilsstaðir (Icelandair Hótel Hérað) 8. september kl. 16:00 Ísafjörður (Edinborgarhúsið) Opnir samráðsfundir um stöðu mannréttinda á vegum forsætisráðuneytisins Dagskrá Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra Opnunarávarp Dr. Kári Hólmar Ragnarsson, lektor við Lagadeild Háskóla Íslands Hvað eru mannréttindi? Örerindi um mannréttindi Selfoss: Unnur Helga Óttarsdóttir, formaður Landssamtakanna Þroskahjálpar Reykjavík: Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður Öryrkjabandalags Íslands Akureyri: Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB Egilsstaðir: Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri Fjarðabyggðar og stjórnarmaður í Sambandi íslenskra sveitarfélaga Ísafjörður: Nichole Leigh Mosty, forstöðumaður Fjölmenningarseturs Umræður Fundargestum er skipt upp í umræðuhópa sem fjalla um einstök viðfangsefni. Hver hópur kynnir niðurstöður sínar stuttlega í lok fundar. Ari Páll Karlsson ari@mbl.is Siggi Hall kemur að opnun nýs veit- ingastaðar sem verður til húsa í mat- höllinni við Pósthússtræti sem opnar á næstunni. Þetta staðfestir hann í sam- tali við Morgunblaðið. „Ég verð þarna með félaga mínum, við komum að opnun staðar í pósthúss- mathöllinni,“ segir hann og bætir við að um sé að ræða „mathöll á hærra plani“. Samkvæmt Sigga er staðurinn enn á byggingarstigi og því ekki tímabært að gefa upp nafn eða tegund staðarins á meðan hann tekur á sig mynd. -Ertu spenntur fyrir komandi tím- um? „Spenntur? Já, ég er alveg að deyja úr spenningi, ég er svo spenntur að ég er að flippa út, ég er að fríka út, ég er svo spenntur að ég er eins og héri,“ seg- ir hann í léttum tón og heldur áfram: „Nei, nei, ég er bara voðalega kúl og þægur og tek þessu bara á gáfaðan hátt.“ Siggi Hall rak um tíma veit- ingastað í Þjóðleikhúskjallaranum og ætti að vera mörgum landsmönnum kunnur af skjánum, þar sem hann starf- aði lengi vel sem sjónvarpskokkur. Spurður hvort um sé að ræða einhvers konar endurkomu segir Siggi: „Ég er alltaf búinn að vera í leiknum, á margvíslegan hátt. Maður er ekkert hættur þótt maður sé aðeins farinn að róa sig niður.“ Morgunblaðið/RAX Spenntur Siggi Hall kveður hina nýju mathöll „á hærra plani“. Siggi Hall opnar nýjan stað - Pósthús mathöll - Sýnir ekki á spilin - Spenntur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.