Morgunblaðið - 18.08.2022, Side 34

Morgunblaðið - 18.08.2022, Side 34
34 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. ÁGÚST 2022 Porsche á Íslandi | Krókhálsi 9 | 110 Reykjavík | S: 590 2000 | benni.is | porsche.is | Opið virka daga frá 9:00 til 17:00 Sumartilboð. Porsche eBike Cross - fulldempað. • 504Wh rafhlaða • 100 km. drægni • Rafmagn - 85 Nm tog • 21,7 kg þyngd (miðað við M stell og pedala) • Koltrefjastell SHIMANO XT 12 gíraskipting | MAGURAMT diskabremsur í yfirstærð | CRANKBROTHERS vökvadælustilling á sæti | MAGURA fram demparar (Upside-Down) og FOX demparar að aftan Verð nú: 1.190.000 kr. Verð áður: 1.490.000 kr. Það var fyrst fyrir 12 árum sem ég heyrði lof- orð Samfylkingarinnar um leikskólapláss við 12 mánaða aldur. Þá var ég tvítug móðir á bið- lista eftir leikskóla- plássi sem var þó svo heppin að fá pláss hjá dagforeldri. Stefna borgarstjórnarmeiri- hluta Samfylkingar- innar þá var að leggja niður dagfor- eldrakerfið því ungbarnaleikskól- arnir ættu að taka við og ekki var gert ráð fyrir neinni annarri dagvist- unarþjónustu. Heilt yfir áttu þetta líka allt að vera borgarreknir leik- skólar og því einkarekn- ir leikskólar ekki beint í náðinni heldur. Aug- ljóslega bar þessi stefna engan árangur enda gegnsýrð af forræðis- hyggju og einsleitni en í þessu kristallast mun- urinn á hugmyndafræði vinstri meirihlutans í borgarstjórn og Sjálf- stæðisflokksins í mála- flokknum. Á meðan vinstri meirihlutinn í borgarstjórn leitast við að hefta valfrelsi fjöl- skyldna og vinna gegn fjölbreytni berst Sjálfstæðisflokkurinn fyrir því að auka það. Excel-sósíalismi virðist vera helsta hugmyndafræði meiri- hlutans. Fólk er bara tölur á tölvu- skjám. Þegar frjálslynd hugmyndafræði leiðir málaflokkinn verður hlutverk borgarinnar fyrst og fremst það að tryggja fjölskyldum fjölbreytt þjón- ustuframboð svo allir finni eitthvað við sitt hæfi. Með því að veita fjöl- skyldum raunverulegt val fá þær verkfærin til að leiða framþróun í málaflokknum með vali sínu. Ein- hverjar fjölskyldur vilja kannski helst hafa börnin sín á leikskóla vegna skipulags starfsins þar en aðrar vilja frekar hafa börnin sín hjá dagfor- eldri, til dæmis vegna minni barna- hópa og persónulegri tengsla við dag- foreldrið. Það er munur á milli dag- foreldra eins og leikskóla og ein- hverjir dagforeldrar gætu ákveðið að bjóða upp á sértækari þjónustu sem leikskólar geta ekki boðið upp á þar sem unnið er með sérþarfir barna. Þar fyrir utan eru fjölmargar mis- munandi stefnur og straumar í kennslufræðum á leikskólastigi og fá- mennur hópur í Ráðhúsinu mun seint geta séð fyrir eða látið sér detta í hug alla framtíðarkennslu- og þjónustu- möguleika málaflokksins. Enda þarf þess ekki þegar við rekum málaflokk- inn af frjálslyndi, en þá tryggjum við að kerfið sé þannig að frumkvöðlar og fagmenntaðir geti lagt sitt á vogar- skálarnar með því að greiða leið þeirra sem vilja bæta við framboð dagvistunarþjónustu í borginni. Við sjálfstæðismenn í borginni höf- um áður barist fyrir því að fé fylgi barni í leikskóla óháð því hvort hann sé einkarekinn eða borgarrekinn og við höldum þeirri baráttu ötullega áfram. Nú leggjum við fram tillögu þess efnis að niðurgreiðslur til dag- foreldra séu hækkaðar svo kostnað- urinn sé til jafns við leikskólagjöld. Allt eru þetta skref í átt að meira frjálslyndi í þágu fjölskyldna í borg- inni, en það er ljóst að vandinn mun ekki leysast ef haldið er áfram á for- ræðishyggjubraut meirihlutans í borgarstjórn. Eftir Ragnhildi Öldu Vilhjálms- dóttur » Fámennur hópur í Ráðhúsinu mun seint geta séð fyrir eða látið sér detta í hug alla framtíðarkennslu- og þjónustumöguleika málaflokksins. Ragnhildur Alda Vilhjálmsdóttir Höfundur skipar 2. sæti á lista Sjálf- stæðisflokksins í Reykjavík. Ragnhildur.Alda.Vilhjalmsdott- ir@reykjavik.is Frjálslyndi leysir leikskólavandann, ekki forræðishyggja Örn Gunnlaugsson skrifar athyglisverða grein sem birtist í Morgunblaðinu 13. ágúst sl. sem ber heit- ið Ófyndnasti brandari Íslandssögunnar. Hann er að benda á að það þurfi samkvæmt lögum að greiða skatt af verðtryggingu og þannig sé verið að verðrýra eign. Með öðrum orðum ríkið er að taka eign af þeim sem greiðir skatta af verðtryggingu. Þetta má sjá í töflunni sem er hér meðfylgjandi þar sem gert er ráð fyrir að tveir einstaklingar eigi í upphafi kr. 20.000.000. Annar ákveður að kaupa fasteign og hinn að setja peningana á verðtryggðan bankareikning til þess að kaupa fasteign síðar. Í dæminu í töflunni er gert ráð fyrir að bæði inneignin í bankanum sem og fasteignin hækki með sama hætti, þ.e. báðar þessar eignir hækki að verðmæti til sam- ræmis við 10% verðbólgu. Eftir níu ár er mismunur á eign þessara ein- staklinga um kr. 8.000.000 vegna þess að hjá öðrum hefur átt sér stað eignaupptaka vegna þess að tiltekið fyrirbæri sem er hvorki tekjur né eignaaukning er skattlagt. Sam- kvæmt stjórnarskrá íslenska lýð- veldisins er eignarrétt- urinn friðhelgur og engan má skylda til að láta af hendi eign sína nema almenningsþörf krefji. Þarf til þess lagafyrirmæli og komi fullt verð fyrir. Í grein sinni ræðir Örn um mannvitsbrekkur en telja verður að það þurfi engar sérstakar mannvitsbrekkur til að sjá að eignaupptakan hjá innistæðueigand- anum er ekki í samræmi við orðalag stjórnarskrárinnar. Telja verður ólíklegt að almenningsþörf krefji frekar að innistæðueigandinn sé skyldaður til að láta af sinni eign en fasteignaeigandinn, auk þess að ef eign er tekin af innistæðueigand- anum þá ber að bæta honum það að fullu, samkvæmt stjórnarskránni, sem er augljóslega ekki gert. Ríkið gæti komið með þau mótrök að þetta sé ekki eignaupptaka heldur sé þetta skattlagning og ríkinu sé slík skattlagning heimil. Ekki ætti að vera þörf á að fjalla um slík rök þar sem þá er ríkið í raun farið að verja sig á einhverjum forms- atriðum, kannski svipað og þeir sem reyna að fara í kringum lögin. Ef þessi skattlagning væri heimil þá gæti þessi skattur t.d. verið 50% og þá væri mismunur á eign innistæðu- eigandans og fasteignaeigandans eftir tíu ár um kr. 23.000.000. Hér er því haldið fram að þessi eignaupptaka sé óheimil vegna þess að hún gangi gegn stjórnarskránni. Hvað er stjórnarskrá? Stjórnar- skráin er lög en ekkert kemur fram í henni hvort hún gangi framar öðr- um lögum. Dómstólar hafa komist að þeirri niðurstöðu í nokkrum mál- um að stjórnarskráin gangi framar öðrum lögum þótt þeir hafi aldrei bent á þá heimild sem þeir byggja þá ákvörðun á. Hér er þess vegna gengið út frá því að stjórnarskráin sé öðrum lögum æðri og dómstólar í samræmi við það talið tiltekna hluti óheimila, þótt ákvæði sé um þá í lög- um, vegna þess að þeir gangi í ber- högg við stjórnarskrána. Framan- greind eignaupptaka gengur í ber- högg við orðalag stjórnarskrárinnar. Þingmenn vinna drengskaparheit að stjórnarskránni og forseti Íslands vinnur eið að henni. Hvað felur það í sér? Er það einungis formsatriði? Þetta snýst í raun um það að ís- lenska ríkið getur ekki bæði sett reglur um að tiltekin formúla reikni út að tiltekin eign sé að sama verð- mæti næsta ár og hún er í ár miðað við útreikning formúlunnar og einn- ig skattlagt þennan útreikning sem er í raun ekkert. Þ.e. raunveruleg eignaaukning hefur orðið engin, núll, en þrátt fyrir það ákveður ríkið að skattleggja enga eignaaukningu, þ.e. skattleggja núll eign. Hvers vegna eru ekki aðrar núll eignir skattlagðar til að gæta samræmis eins og Örn bendir á? Það gengur engan veginn upp að ef engin verð- bólga er, þá sitja fasteignaeigandinn og innistæðueigandinn við sama borð, þ.e. báðir halda sinni eign að fullu en ef einhver verðbólga er þá er innistæðueigandinn beðinn að færa sig á annað borð vegna þess að það eigi að skerða eign hans en fast- eignaeigandinn situr áfram við borð- ið þar sem engin skerðing á sér stað. Smá viðbót við ófyndnasta brandarann Eftir Berg Hauksson Bergur Hauksson » Samkvæmt stjórn- arskrá íslenska lýð- veldisins er eignarrétt- urinn friðhelgur og engan má skylda til að láta af hendi eign sína nema almenningsþörf krefji. Höfundur er lögmaður. Samanburður á þróun inneignar í banka og verði íbúðar 2022-2031 Miðað við 10% verðbólgu Milljónir króna 2022 2023 2024 2025 2026 2027 2028 2029 2030 2031 Inneign í banka 20,0 21,6 23,2 25,1 27,0 29,1 31,4 33,8 36,5 39,3 Verðtrygging á inneign 2,0 2,2 2,3 2,5 2,7 2,9 3,1 3,4 3,6 3,9 22% skattur af verðtryggingu -0,4 -0,5 -0,5 -0,6 -0,6 -0,6 -0,7 -0,7 -0,8 -0,9 Verð íbúðar fylgir verðbólgu 20,0 22,0 24,2 26,6 29,3 32,2 35,4 39,0 42,9 47,2 Hækkun á verði íbúðar til samræmis við verðbólgu 2,0 2,2 2,4 2,7 2,9 3,2 3,5 3,9 4,3 4,7

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.